Heimsmynd - 01.12.1993, Síða 81

Heimsmynd - 01.12.1993, Síða 81
DESi: manuðurW MBER ánuðanna Þegar maður var lítill var desember alltof lengi að líða. Gluggarnir á súkkulaðidagatalinu voru tuttugu og fjórir og maður átti að opna einn á dag. Og þótt maður stælist stundum til að opna fleiri en einn glugga flýtti það ekkert fyrir komu jólanna. Síðan gerðist það að desember fór að styttast; maður var að verða fullorðinn. Núna hverfa þessir dagar fram að jólum alltof hratt. I minningunni er síðasta vikan í þessum mánuði mánuðanna böðuð sérstöku Ijósi. Jólagjafirnar, fullar sælgætisskálar og malt og appelsín eins og maður gat í sig látið. Og nýársnótt. Með áramótabrennunni, stjörnuljósunum, ýlunum og tívolíbombunum. Þessi nótt var ævintýri. Maður mátti vaka frameftir, fékk útdeilt sínum skammti af sprengiefni, reykti njóla við brennuna og sofnaði loks alsæll með helíu fyrir eyrunum. I desember er svo sannarlega margt að gerast, litlir og stórir, hlutir. Við settum saman þátt í anda mánaðarins og lítum á árið sem er að líða, skoðum jól eins og þau voru fyrir rúmlega hálfri öld, bendum á það sem þarf að varast þennan mánuð og ýmislegt fleira. -Jón Kaldal Greinarhöfundurinn Herdís Tryggvadóttir í hópi þriggja systkina sinna (Anna sú yngsta ófœdd). Frá vinstri: Rannveig, Herdís, Páll Asgeir og Jóhanna. Myndina tók Jón Kaldal 1933. Dýrmætasta æskuminningin Jól á millistríðsárunum í gamla daga, og það er ekki svo langt síðan, fengu börn yfirleitt kerti, spil og einhvern klæðnað um jólin. í frásögnum frá þessum tíma virðist þó gleðin og fögn- uðurinn yfir jólunum síst minni en í nú. Ytri aðstæður skipta ekki eins miklu máli og margir halda, gleðin kemur innan frá og í háleitum boðskap jólanna skynjum við tilgang lífsins. Jólaundirbúningurinn er skemmtilegur því hann byggir upp spennu hjá öllum og eykur á tilhlökkunina. Fyrstu jólin sem ég man eftir eru með dýrmætari minningum frá bernsku minni. Páll Ásgeir bróðir minn var vanur að búa til marsipan konfekt sem hann dýfði í súkkulaði, og marsipanjólasveina sem hann litaði rauða með matarlit. Hann var líka aðalskreytingamaðurinn á heimilinu, en í þá daga varð maður að búa til megnið af jólaskrautinu sjálfur. Úr alla vega lituðum pergament pappír bjó hann til vafða Heimsmynd Desember 8 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.