Heimsmynd - 01.12.1993, Page 88

Heimsmynd - 01.12.1993, Page 88
DES E & mánuður E R Jólabíó varasamur manuour Much Ado About Nothing Kenneth Branagh var hampað sem nýjum Laurence Olivier eftir að hann bjó til frábæra bíómynd úr ieikritinu Hinriki V eftir Shakespeare. Branagh hefur gert þrjár myndir síðan: Kill Me Again, spennutryllir með nýaldarsniði, Peter's Friends, sem er eiginlega hin bandaríska The Big Chill bara með enskum formerkjum. Báðar voru þetta svona lala myndir og Branagh þótti ekki standast þær væntingar sem til hans voru gerðar. í nýjustu mynd sinni sækir hann aftur efnivið í smiðju Shakespeares og tekur að þessu sinni fyrir rómantíska gamanleikinn Ys og þys útafengu. Branagh fór með óskarsverðiaunahafann Emmu Thompson (eiginkonu sína) og aðra leikara á söguslóðir leikritsins í Toscana a Ítalíu og tók myndina þar upp. Hann valdi að nota ekki eingöngu þjálfaða Shakespeareleikara heldur eru bandarískir leikarar í stórum hlutverkum. Denzel Washington er til dæmis göfugur greifi og Keanu Reeves er óprúttinn látbragðsleikari. Man without a face Það er eins og allar stjörnurnar í Hollywood dreymi um vera leikstjórar. Mel Gibson lætur þessa ósk sína rætast í Andlitslausa manninum. Sjálfur leikur hann titilhlutverkið, mann sem hefur skaddast alvarlega í andliti og á af þeim sökum erfitt með að umgangast annað fólk. Hann nær þó að vingast við ungan dreng og fjallar myndin um, samband þeirra. Til stóð að Gibson kæmi til íslands og yrði viðstaddur frumsýningu myndarinnar en eitthvað eru þau mál enn á reiki. Aladdin Disneymyndin um strákinn Aladdin og andann í flöskunni er vinsælasta teiknimynd allra tíma. í Bandaríkjunum sló Robin Williams í gegn sem rödd flöskuandans og um jólin fær Laddi þaö erfiða hlutverk að feta, í fótspor hans. Þá verður sýnd í fyrsta skipti á íslandi Disneymynd talsett með íslens,kum leikurum. Auk Ladda fara meðal annars Örn Árnason, Arnar Jónsson, Edda Heiðrún Bachman og Felix Bergsson með hlutverk í myndinni. Myndin verður líka sýnd á frummálinu þannig að það er hægt að sjá báðar útgáfurnar og skoða hvernig íslensku leikararnir standa sig í samanburði við þá bandarísku. A Good Man in Africa Ekki alls fyrir löngu var Sean Connery góðmennit með grátt hárið í tagli í Amason frumskógunum. I þetta skiptið er hann kominn til Afríku og að er að sjálfsögðu góði maðurinn þar. A Good Man in Africa gerist í Afríkuríki sem hefur nýlega losnað undan yfirráðum nýlenduherranna frá Evrópu en þeir vilja ekki allir sætta sig við að heimamenn sitji einir að auðlindum sínum. Leikstjóri myndarinnar er hinn ástralski Bruce Beresford, sem gerði Driving Miss Daisy, og auk Connery leika í myndinni John Lithgow, Joanne Walley-Kilmer og Louis Gosset jr. The Age of Innocence Öld sakleysisins eftir Martin Scorsese fjallar um líf yfirstéttarliðsins í New York undir lok síðustu aldar. Þetta er mynd um miklar tilfinningar og bælda ást og fer einvalalið leikara með aðalhlutverkin. Daniel Day-Lewis er karlhetjan og Winona Ryder og Michelle Pfeiffer eru konurnar tvær í lifi hans. Myndinni er spáð mikilli velgengni við næstu Óskarsverðlauna-útnefningu. Það verður gaman að fylgast með því hvort leikstjórinn dáði hljóti í loksins náð fyrir augum Óskarsverðlaunaakademíunnar og fái styttuna eftirsóttu. Desember er svo sannarlega mánuður sem margt skemmtilegt gerist í, en hann hefur líka að geyma sumt sem þarf að passa sig á. 0Jólainnkaupin- ekki kaupa of dýrar jólagjafir. Nema þú viljir vera aö borga þær fram í júlí. „Þetta reddast” er ekki góð afstaða í jólainnkaupunum. 3^5 Jólaglöggiö- menn geta lent í furðulegustu hremmingum undir áhrifum jólaglöggs. Sumir spæla einhvern í vinnunni eða káfa á einhverjum í vinnunni eða eru teknir fullir á bílnum á leiðinni heim, aðrir gera allt þrennt. Þetta er reyndar ekkert svo skrítið því fæstir eru vanir að drekka á þessum tíma og við þessar aðstæður. 0 Kæst skata- skötupartýin á Þorláksmessu eru ómissandi fyrir þá sem borða skötu en hreint stór varasöm fyrir hina, sumir kúgast þegar þeir finna ilminn af skötunni og svo vill lyktin af henni loða endalaust við fötin. Jólaseríur- það er einhvern veginn eins jólaseríur séu gæddar þeim eiginleikum að alltaf þegar á að nota þær er ein peran biluð, og aldrei er til varapera. Til að forðast neyðarástand á aðfangadag er ráðlegt að prófa seríuna viku áður en hún á að fara á tréð. Megrunarkúrar- ekki reyna þá yfir hátíðarnar nema að þú sért haldinn sadó-masó þörf á háu stigi. Dansleikirnir annan jóladag- böllin á annan í jólum eru hættu- legustu dansleikir ársins. Þá eru menn búnir að standa í svo ströngu við að vera góðir og viðkunnalegir í dagana tvo á undan, að öll bönd bresta þegar þeir fá sér í glas og allt logar í slagsmálum og hasar í bænum. 0 Fulli nágranninn- sem kann ekki að skjóta upp rakettum, eða kann það kannski of vel að eigin mati og passar sig því ekki, með þeim afleiðingum að allir í kringum hann eru í stór hættu. Það má þekkja þennan mann á því að hann kveikir gjarnan í flugeldunum með vindli. 0 Hátíðarmaturinn- það er hægt að borða sig til dauða, sérstaklega þegar krásir eins og hamborgar- hryggur, rjúpur og kalkún eru á borðum með þykkri brúnni sósu, sultu, brúnuðum kartöflum og öðru tormeltu meðlæti. 0 Bókasölumenn- námsmenn sem ætla að redda sér með bóksölu í heimahúsum í jólamánuðinum eru stórháskalegir. Þeir koma seint og þú heldur að þú getir reddað þér út úr jólagjafavandræðunum með því að gefa öllum bók. Kjörin sem eru í boði hljóma vel, ekkert út og þú þarft ekki að byrja að borga fyrr en á næsta ári. En þá kemur líka að skuldadögunum, og þeir geta veriö um hver mánaðarmót fram að næstu jólum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.