Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 10
10 27. desember 2019FRÉTTIR
Áramótaeftirréttir að hætti Maríu Gomez
n Ekki jól án marsípanmola n Áramótin oft erfið og kvíðavaldandi
M
aría Gomez er mikill ástríðukokkur
en hún heldur úti síðunni paz.is.
Hún segir áramótahefðirnar tals
vert frjálslegri en þær sem koma að
jólahátíðinni þar sem allt snúist um að halda
hefðunum óbreyttum frá barnæsku. Við feng
um Maríu til að deila tveimur af sínum eftir
lætisuppskriftum að hinum fullkomna eftir
rétti yfir hátíðirnar. „Þótt ég reyni að halda
í þær hátíðarhefðir sem ég ólst upp við, höf
um við vissulega skapað okkar eigin saman
sem fjölskylda. Jólin eru talsvert heilagari að
mínu mati en áramótin því þá finnst okkur
alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég hef ver
ið með allt milli himins og jarðar, lambalund
ir, hreindýr, kalkún, reyktan hátíðarkjúkling
og bara nefndu það. Stundum er ég þó mjög
hefðbundin og endurtek aðfangadagskvöldið
með hamborgarhrygg ef þannig liggur á mér.
Það eru þó alltaf vissir fastir punktar sem
fylgja áramótunum hjá mér, til dæmis að fara á
brennu, horfa á fréttaannálinn þar sem árið er
rifjað upp og svo horfa á áramótaskaupið auð
vitað, sama hversu leiðinlegt eða skemmtilegt
það er.“
Engin jól án Nóa
Einn af föstum liðum á aðventunni segir María
vera að baka lakkrístoppa og engiferkökur, en
samhliða þeim bakar hún ýmsar aðrar sortir.
„Fastur punktur í jóla og áramótahaldi er þó
alltaf Nóa Siríuskonfektið, en það er lang
besta konfektið mitt og hefur verið frá barns
aldri, það eru engin jól án þess. Það vill svo
heppilega til að við hjónin elskum hvort sína
tegundina af molum en ég vill bara marsípan
molana á meðan Ragnar og börnin kjósa frekar
þá fylltu, svo ég get setið ein að marsípanmol
unum sem hverfa furðulega hratt ofan í mig.“
Áramótin oft erfið
María segir áramótin oft geta reynst erfið til
finningalega. „Einhverra hluta vegna finnst
mér áramótin oft vera smá erfið og eiga þau
það til að hræra upp í mér, veit ekki alveg hvað
það er, en það er eins og nýtt upphaf sé að byrja
og þá kvíðir maður smá því sem verða vill, veit
ekki alveg hvort aðrir tengi en ég hef oft fund
ið þetta yfir áramótin. Ég reyni þó auðvitað
að halda í góða skapið og eiga gott kvöld með
fjölskyldunni og borða góðan mat og snakk
og osta yfir skaupinu, en það er hefð sem hef
ur fylgt mér úr æsku. Gamlárskvöld er auðvit
að partí og þá hefur maður snakk. Fyrir þessi
jól og áramót ákvað ég að baka bæði lakk
rístoppa og hátíðarpavlovu sem mig langar að
deila með ykkur. Lakkrístopparnir eru þó ekki
nýir af nálinni en á þennan hátt hef ég gert
þá í langan tíma. Þeir eru dúnmjúkir inni í og
smá seigir, en segja má að þeir séu í pavlovu
líki þar sem ég set í þá Maizenamjöl og borð
edik sem gerir þá guðdómlega góða, sérstak
lega daginn eftir. Það er svo alveg bannað að
geyma þá í kæli því það gerir þá bara harða.
Hugmyndin að pavlovunni fæddist hins vegar
fyrir þessi jól. Þar sem bragðarefur er mitt upp
áhald ákvað ég að reyna að koma honum í há
tíðarbúning í líki spariköku, sem myndi vera
bæði jólaleg og minna á uppáhaldsbragða
refinn minn. Ekki er útkoman slæm. Hockey
Pulver, fersk jarðarber, Þristur og Snickers út í
rjómann! Getur ekki klikkað. Tertuna er einfalt
að gera ef hún er látin vera í ofninum, en hafa
slökkt á honum, yfir nótt þá lukkast hún pott
þétt. Flestir vita hvað pavlova er en það er mar
ens sem búið er að bæta í sýru og sterkju svo
hann verður mjúkur inn að miðju, nánast eins
og sykurpúði, en stökkur og þurr á endunum.
Sama og ég geri með lakkrístoppana. Ekki láta
ykkur bregða ef hann er ekki alveg þurr eins
og hefðbundin marens, því þannig á pavlova
einmitt að vera. Ég vona að þið njótið vel.“
n 4 stórar eggjahvítur
n 225 g strásykur
n 2 tsk. Maizena-mjöl
n 1 tsk. borðedik
Hitið ofninn á 175°C blástur. Þeytið eggjahvíturnar þar til þið
sjáið för eftir pískinn. Byrjið þá að bæta við sykri smátt og smátt
meðan þær þeytast. Þegar þær eru alveg að verða stífþeyttar
bætið þá Maizenamjöli og ediki út í og blandið vel saman. Stíf
þeytið það vel að hægt sé að hvolfa skálinni án þess að nokkuð
hreyfist. Teiknið hring á bökunarpappa um 23–25 cm. í þver
mál. Fyllið inn í hringinn með eggjahvítunum og myndið svo
dæld í miðjunni eða eins og brunn þar sem fyllingin kemur.
Lækkið nú ofninn niður í 100°C, stingið inn og bakið í eina og
hálfa klukkustund. Slökkvið svo á ofninum og leyfið botninum
að kólna alveg í ofninum, best ef hægt er yfir nótt. Athugið ef
pavlovan er sprunginn í botninn skiptir það engu, takið bara
það sem fellur af og setjið í sprungurnar áður en hún er fyllt.
Fylling
n 350 ml rjómi
n 40 g flórsykur
n 7–10 fersk jarðarber
n 1/2 tsk. vínsteinslyftiduft eða cream of tartar
n 2 msk. Hockey Pulver
n 7 litlir Þristar
n 2 lítil Snickers
Best er að setja á pavlovur rétt áður en á að neyta þeirra,
ólíkt marenstertum, svo ekki gera það fyrr. Setjið þá rjómann,
vínsteinslyftiduft, Hockey Pulver og 5 stöppuð jarðarber (skor
in smátt og stöppuð með gaffli) saman í hrærivélarskál. Byrjið
fyrst að þeyta á lágum hraða og aukið svo hraðann þar til rjóm
inn er alveg stífþeyttur. Skerið niður Þristinn og Snickers í smáa
bita og leggið til hliðar. Skerið niður rest af jarðarberjum, mjög
smátt. Hrærið svo jarðarberjum, Þrist og Snickers ofur varlega
saman við rjómann með sleikju. Setjið fyllinguna í brunninn á
pavlovunni eða dældina, eins miklu og þið komið fyrir. Dreifið
smá Hockey Pulver yfir rjómann og skreytið með ferskum berj
um, Snickers og Þristum.
Ég veit að flestir elska lakkrístoppa og ég er þar á meðal. Ég
veit líka að hjá mörgum eiga þeir það til að misheppnast. Ég hef
smakkað alls kyns toppa hjá fólki. Harða að utan með keim af
brunabragði og glerhörðum lakkrís haha, harða að utan og hola
að innan, svo það er ekkert nema skelin og bara nefndu það. Á
einhverjum tímapunkti ákvað ég að gera þá bara „my way“, og
eftir það hafa þeir alltaf lukkast hjá mér, sama hvað. Þessir eru
eins og marens að utan en mjúkir og seigir innan í. Lakkrísinn
helst líka mjúkur og þeir molna akkúrat ekkert. Ég nota alltaf
hvítan sykur í toppana í stað púðursykurs en mér finnst þeir
bara heppnast betur þannig. Ég hef líka núna í seinni tíð byrjað
að nota Maizenamjöl og borðedik en það bitnar alls ekkert á
bragðinu, en gerir þá svona mjúka inni í. Það mætti því kannski
segja að þeir séu í svona pavlovuútgáfu. Okkur finnst þeir alla
vega mjög góðir svona og ég vona ykkur finnist það líka.
n 4 eggjahvítur
n 200 g strásykur
n 1/2 tsk. cream of tartar eða vínsteinslyftiduft (er
það sama)
n 150 g Nóa-rjómadropar eða 200 g niðurskorið
rjómasúkkulaði
n 1 poki eða 150 g lakkrískurl, súkkulaðihúðað
n 1 tsk. Maizena-mjöl
n 1 tsk. borðedik
n 1/2 tsk. gróft lakkríssalt, en því má líka sleppa
Hitið ofninn á 180°C blástur. Setjið svo eggjahvítur
í skál og byrjið að þeyta. Þegar þær eru orðnar hvítar
og þið sjáið för eftir pískinn í þeim byrjið þá að bæta
sykrinum út í, smátt og smátt, gott er að setja eins og
matskeið í einu. Þeytið vel þar til þið getið hvolft skál
inni án þess að leki úr og hvíturnar eru orðnar alveg
pikkstífar. Bætið þá við Maizenamjöli, borðediki og
saltinu ef þið kjósið að hafa salt. Hrærið því vel inn í
blönduna í hrærivélinni. Þegar því er lokið hellið þá
lakkrískurlinu og smátt skornu súkkulaði eða dropun
um út í og hrærið mjög varlega saman. Best er að gera
það með sleikju eða gaffli og afar rólega svo ekki fari
allt loft úr toppunum. Ég setti svo toppana í sprautu
poka með engum stút og klippti frekar vítt gat á hann
og sprautaði á smjörpappírsklædda bökunarplötu.
Bakið svo í 10 mínútur á 180°C blástur og lækkið svo
niður í 160°C blástur og bakið í aðrar 10 mínútur.
Leyfið toppunum að kólna ögn áður en þið takið
þá af bökunarplötunni og færið þá yfir á annað fat. Ef
þið reynið að taka þá of snemma þá munu þeir fara í
klessu. Mikilvægt er að leyfa þeim að þorna og kólna
uppi á borði í eins og 15–20 mínútur. Best er svo að
geyma toppana ekki í kæli, heldur í krukku eða boxi
uppi á borði svo þeir haldist dúnmjúkir. n
Pavlova
Lakkrístoppar
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is