Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 20
20 27. desember 2019ANNÁLL - APRÍL
Morð í Mehamn og leitin að Litlakisa
n Áhrifavaldar afhjúpaðir n Ósáttur flugmaður n Heimsfrægð Leoncie n Ófremdarástand í Gistiskýlinu
Það má segja að aprílmánuð-
ur hafi verið slæmur fyrir
áhrifavalda þessa lands þar
sem tveir af þeim vinsælustu
urðu fréttaefni vegna svika við
neytendur. Sólrún Diego var
sá fyrri en DV afhjúpaði að
Sólrún hefði auglýst vefversl-
un eiginmanns síns, Frans
Veigars Garðarssonar, grimmt
á Instagram, án þess að geta
þess að verslunin væri í eigu hans. Við eftirgrennslan
kom í ljós að Sólrún sjálf sat í stjórn fyrirtækisins og
var prókúruhafi. Um var að ræða afar dulda auglýs-
ingu og mislíkaði Sólrúnu fréttin svo mjög að lög-
fræðingar hennar sendu bréf á DV þar sem hótað var
aðgerðum ef DV hætti ekki að fjalla um hana.
Síðar í mánuðinum var komið að Tönju Ýri Ást-
þórsdóttur sem seldi skartgripi og glingur á átt-
földu verði samanborið við nákvæmlega sömu vöru
á Aliexpress. Gerði hún þetta undir merkjum Boss
Babe, en tók aldrei fram á Instagram að hún sjálf ætti
verslunina. Tanja var ekki sátt við afhjúpun DV. „Ég
hef ekki haft neinn áhuga að ræða við fréttamiðla
í langan tíma því ég styð ekki fréttamennsku sem
snýst um að tala niður til fólks, gera lítið úr eða fara
með rangt mál án þess að kynna sér málin til enda,“
skrifaði hún á Instagram, en þess ber að geta að hún
skellti á blaðamann DV þegar hann vildi grennslast
fyrir um fyrrnefnt fyrirtæki við vinnslu greinarinnar.
Það var sem reiðarslag fyr-
ir þjóðina í lok apríl þegar
Íslendingurinn Gísli Þór
Þórarinsson fannst lát-
inn í bænum Mehamn í
Noregi. Gunnar Jóhann
Gunnarsson hefur ját-
að að hafa orðið Gísla
að bana, en þeir
voru hálfbræður.
Samkvæmt nýj-
ustu fregnum
af gangi mála í
Noregi þá var
réttarhöld-
um frestað,
en það stóð
til að aðalmeðferð hæfist þann 2. des-
ember næstkomandi. Nú er talið líkleg-
ast að réttað verði í málinu í febrúar. Gunnar Jóhann
neitar að hafa komið að heimili Gísla Þórs með þann
ásetning í huga að verða honum að bana. Hann á að
baki langan sakaferil á Íslandi og hefur meðal annars
verið dæmdur fyrir nauðgun og ofbeldisbrot.
Pistill Ögmundar Gíslasonar, fyrrverandi flugmanns
WOW air, vakti gríðarlega athygli. Í pistlinum viðr-
aði hann þá óánægju sína með að íslenska ríkið hefði
ekki rétt flugfélaginu hjálparhönd áður en það varð
gjaldþrota. „Eftir að hafa hugsað þetta þá hef ég tekið
þessa ákvörðun: Ég mun ALDREI borga framar skatta
á Íslandi. ALDREI! Og það fólk sem þekkir mig veit ég
stend við svona fáránlegar yfirlýsingar. Ég mun þiggja
þær greiðslur sem ég á rétt á úr ábyrgðarsjóði launa
og ég ætla að þiggja atvinnuleysisbætur eins lengi og
ég má, en ég mun aldrei aftur vera launamaður á Ís-
landi og greiða staðgreiðslu. Þetta sker getur átt sig.
Þetta pakk sem er í ríkisstjórninni getur átt sig,“ skrif-
aði hann meðal annars. Hann starfar nú á erlendum
vettvangi.
Að morgni 9. apríl lést ung kona á Landspítalanum.
Konan hafði verið í teiti þar sem mikið var um eiturlyf.
Þegar lögregla var kölluð til og hafði afskipti af henni
fór unga konan í hjartastopp og báru endurlífgunartil-
raunir ekki árangur. Foreldrar konunnar voru ósátt-
ir við aðferðir lögreglu, sögðu dóttur sína hafa verið
handjárnaða og bundna á fótum en bættu við að hún
hefði verið í geðrofi. Héraðssaksóknari tók málið til
rannsóknar en ákveðið var að engin ákæra yrði gefin út
vegna málsins.
Frétt DV um starfshætti Innheimtustofnunar sveitar-
félaga vakti mikla reiði í samfélaginu. Var forstöðu-
maður útibús stofnunarinnar á Ísafirði til að mynda
sakaður um ógnarstjórnun, einelti, furðuleg afskipti
af einkalífi og sérkennilega framgöngu varðandi
starfslok. Þá sagði fyrrverandi starfsmaður stofnunar-
innar í Reykjavík frá því hvernig starfsmenn gerðu
grín að meðlagsgreiðendum í Facebook-hópi.
Indverska prinsessan Leoncie
öðlaðist langþráða heimsfræg
þegar spjallþáttaprinsinn
Jimmy Fallon spilaði lag tón-
listarkonunnar í þætti sín-
um um miðjan apríl. Jimmy
skemmti sér konunglega og
hermdi eftir söngstíl Leoncie og
sagði: „Ég hef aldrei heyrt
neinn syngja svona
áður.“ Leoncie
sagði síðar að hún
hefði verið boðin í
þáttinn en neitað,
því þeir vildu ekki
borga henni nóg.
DV fjallaði ítarlega um Gistiskýlið að Lindargötu
í Reykjavík og að þar væri rekið neyslurými fyrir
sprautufíkla. Myndir sem DV birti sýndu fram á
óboðlega umgengni, sóðaskap og illan aðbúnað í
skýlinu. „Það hefur verið reynt að hafa einhverjar
reglur um þetta, til dæmis að menn séu skráðir inn
í hús. En þetta fer meira og minna úr böndunum,
því það er miklu meiri aðsókn í þetta en húsið leyfir.
Núna er það ekki bara þessi stóri hópur fólks sem er
á götunni, heldur bætast við sprautufíklar, og meðal
þeirra eru menn sem aldrei áður hafa nýtt sér gisti-
skýlið sem slíkt, en nýta sér aðstöðuna til að geta
sprautað sig,“ sagði Tómas Jakob Sigurðsson, starfs-
maður skýlisins, við DV. Hann var rekinn í kjölfarið.
Svo var það fréttin sem snerti fólk – hvarf Litlakisa,
högna Svanhildar Hólm, aðstoðarkonu Bjarna Bene-
diktssonar, og Loga Bergmanns fjölmiðlamanns. Hjón-
in leituðu kisans í 35 daga og teygði leitin sig til Selfoss.
Að lokum var bænum þeirra hjóna svarað. „Hann er
horaður og soltið óöruggur en greinilega mjög glaður
að vera kominn heim,“ sögðu þau á samfélagsmiðlum,
að springa úr hamingju og þakklæti.
Áhrifavaldar í klemmu
Heimsfrægð prinsessunnar
Hæddust að
meðlagsgreiðendum
Horaður högni
Harmleikur í Mehamn
Ung kona lést
„Þetta
sker getur
átt sig“Farið úr
böndunum Ögmundur Gíslason. Mynd-Hringbraut
Engin ákæra
var gefin
út í málinu.
Mynd: Eyþór
Árnason
Meðal mynda sem DV birti.
Meðal mynda sem DV birti.
M
Y
N
D
: S
K
JÁ
SK
O
T
IN
S
TA
G
R
A
M
@
TA
N
JA
Y
R