Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 51
Sérblað27. desmber 2019 KYNNINGARBLAÐ KLIFURHÚSIÐ: Klifur er lífsstíll Innanhússklifur er sívaxandi áhugamál á Íslandi og víða um heim. „Hér á landi eru um tæplega 1.500 félagar sem stunda klifur reglulega í Klifurhúsinu,“ segir Benjamin Mokry, framkvæmdastjóri Klifurhússins. Klifursambandið sótti fyrir stuttu um aðild að ÍSÍ og hafa sprottið upp Klifurhús um land allt. „Þeir eru að byggja klifurhús á Grundarfirði, einnig er verið að stækka klifurhús á Akureyri og svo er verið að setja upp klifurveggi í Skaftafelli,“ segir Benjamin sem stundar klifur bæði utanhúss og innan af miklum krafti. „Klifur er lífsstíll og þegar menn byrja þá eiga þeir erfitt með að hætta, þetta er svo gaman,“ segir Benjamin. Allir geta klifrað Í Klifurhúsinu eru í boði ýmist opnir tímar eða lokaðir og margs konar námskeið fyrir alla aldurshópa. „Við erum með barna- og unglinganámskeið hér fyrir 5 til 18 ára en einnig kennslu fyrir alla aldurshópa. Elstu þátttakendurnir eru um sextugt,“ segir Benjamin. Klifurveggirnir eru smíðaðir úr timbri og á gólfinu fyrir neðan er stór dýna sem þátttakendur hoppa niður á í lok klifursins. „Í Klifurhúsinu er stunduð svokölluð „grjótglíma“, þar sem klifurveggurinn er mjög brattur en klifurhæðin lítil, eða um 4–6 metrar. Einnig eru lagðar línuklifurleiðir fyrir þá sem eru að æfa það,“ segir Benjamin. Eflir styrk, liðleika og þol Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði á styrk og liðleika. „Það er enginn munur á getu stráka og stelpna. Þótt strákarnir fari langt á kraftinum þá eru stelpurnar oftast með betri tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt enda eru tækni og liðleiki mikilvægir þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í senn, þol, liðleika og styrk, og hentar fólki á öllum aldri. „Til dæmis getur maður aldrei orðið of sterkur í fingrunum en klifrið eflir mjög fingrastyrk. Það er nokkuð sem fólk er almennt ekki að þjálfa með sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf erfiðast þó svo að sé óneitanlega alltaf skemmtilegt að prófa klifur. En þegar maður byrjar að mæta reglulega í klifur, kannski 2–3 skipti í viku, er maður fljótur að sjá árangurinn og er ótrúlegt hvað sumir hafa náð langt á stuttum tíma,“ segir Benjamin. Klifur fyrir byrjendur og lengra komna Það þarf ekki að fara á námskeið til að kynnast klifrinu né þarf að kaupa sér aðgöngukort, hægt er að mæta á staðinn og kaupa sér stakan tíma og leigja klifurskó. Klifurleiðunum er raðað upp í mismunandi erfiðleikastig þannig að byrjendur geta valið leið sem hentar þeim fullkomlega á meðan meira krefjandi leiðir eru í boði fyrir þá sem eru lengra komnir. Hópar klifra „Það er kjörið fyrir litla hópa að koma hingað og eiga góða stund saman. Klifurhús spretta víða upp erlendis og eru að verða mjög vinsælir samkomustaðir. Fólk hittist, fær sér kaffi og spjallar, og klifrar síðan saman í tvo tíma. Þetta kemur algerlega í staðinn fyrir að hittast á barnum. Það er alveg jafn sjálfsagt að hittast í klifri eins og að hittast á kaffihúsi eða krá. Og svo fær maður mikla og góða hreyfingu í leiðinni,“ segir Benjamin, en bætir svo við að það megi líka kíkja á barinn eftir klifrið, hann hafi ekkert á móti því. Gefðu klifur Gjafabréf hjá Klifurhúsinu eru mjög vinsæl í jólagjafir. „Fólk er ýmist að kaupa mörg skipti fyrir þá sem hafa komið áður, eða bara eitt skipti fyrir þá sem hafa ekki prófað klifur. Þetta er skemmtileg gjöf sem menn búast ekki endilega við,“ segir Benjamin. Nánari upplýsingar um Klifurhúsið er að finna á vefsíðunni klifurhusid.is og Facebook-síðunni Klifurhúsið. Opið er mán.-fim. 11:30–22, fös. 11:30-21 og um helgar 12–18. Netfang: klifurhusid@klifurhusid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.