Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 26
26 27. desember 2019ANNÁLL - JÚLÍ Syrg jandi fjölskylda í mál og sviðin jörð Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu fyrir unglinga til að keppa um Íslensku barnabókaverðlaunin 2020. Skilafrestur er til og með 10. janúar. Allar upplýsingar á www.forlagid.is n Umfjöllun um dæmdan morðingja vakti usla n Íslendingur sakaður um svik á Tenerife Fréttin sem snerti mest við lesendum DV í júlí var um Al- bert nokkurn Ísleifsson, sem féll fyrir fíkn sinni um miðbik júlí. Ragnar Erling Hermannsson, sem sat í fangelsi í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls á árum áður, sagði sögu Alberts í myndbönd- um á Facebook. Í myndböndun- um gagnrýndi Ragnar úrræða- leysi fyrir fólk eins og Albert og nokkrum dögum eftir birtingu myndbandanna hélt Ragnar stofnfund nýs stjórnmálaafls. Helsta markmið aflsins er að breyta kerfinu eins og það leggur sig. „Enn og aftur berast okkur fregnir af ungum manni sem féll frá vegna neyslu sinnar. Enn og aftur. Og eitthvað sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir. En það er verið að spara, spara í þessum málaflokki. Það er verið að reisa glæsihallir og glæsihýsi úti um allt og ég veit ekki hvað. En það er verið að loka heilbrigðisstofnunum og það eru biðlistar inn á meðferðarstofnanir,“ sagði Ragnar og bætti við: „Hver verður næstur, verður það sonur þinn? Frændi þinn? Þetta mun bara versna.“ Fjölskylda Arthurs Grants Wagstaff, sem lést í flug- slysi á Íslandi árið 2015, steig fram í DV í júlí og sagði frá því að hún ætlaði í mál við Sjóvá vegna dauða Arthurs. Flugmaður vélarinnar þegar slysið átti sér stað, Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri flugfélagsins Atlanta, komst lífs af úr slysinu. Fjöl- skyldan rekur líka mál gegn Arngrími, sem hefur heimtað tryggingu frá ekkju Arthurs, Roslyn Wagstaff. Hvorki hefur gengið né rekið í þessum málaferlum. Íslensk kona að nafni Auður Ólafsdóttir komst í fréttirnar á vafasaman hátt um mitt sumar. Sökuðu nokkrir Íslendingar hana um að svíkja ís- lenska ferða- langa á eyjunni Tenerife. Auður rak Facebook-síðuna Tenerife Leigumiðlun þar sem hún bauð húsnæði til leigu. Þeir Íslendingar sem áttu viðskipti við Auði sökuðu hana um að hirða peninginn og svíkja þá um húsnæði eða hýsa þá í allt öðru húsnæði en um var samið. Auður vildi ekki tjá sig við DV um málið en hún á langan sakaferil að baki. Í kjölfar fréttaflutnings hvarf hún af Facebook, og þær Facebook-síður sem tengdust henni hurfu einnig. DV birti umfjöllun um dæmda morðingj- ann Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem varð Hannesi Þór Helgasyni að bana árið 2010. Afstaða kærði umfjöllunina til siðanefndar Blaðamannafélagsins og komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ritstjóri DV hefði gerst brotlegur við siðareglur. Íslending- ur fannst lát- inn á gistiheim- ili í Kullu-héraði í Hmachal Pradesh í Indlandi í byrjun júlí. Hann fannst látinn á baðher- bergi í gistiheimil- inu Acharya Villa á Vashisht-svæð- inu í borginni Manali en andlát hans bar ekki að með saknæmum hættu. Hótelstjóri í Neskaupstað réð ungt erlent par sem um- sjónarfólk á Cliff hótel í bænum í vor. Í maí tók parið sig til og birti kynlífsmyndband af sér á einni stærstu klámsíðu heims, Pornhub, og fór ekki á milli mála að myndbandið var tekið inni á hótelinu. Þetta rataði í fréttir í júlí en hótelið sem um ræddi var áður Eddu hótel, en heitir í dag Cliff hótel og á veturna er þar heimavist fyrir nemendur Verkmenntaskóla Austur- lands. Parið var rekið úr starfi um leið og málið komst upp og er farið af landi brott. Birgitta Jónsdóttir, einn stofnenda Pírata, ætlaði að vera með endurkomu í flokknum og sóttist eftir sæti í trúnaðarráði. Myndband fór í umferð af átakafundi hjá Pírötum þar sem al- þingismaðurinn Helgi Hrafn Gunnarsson hellti sér yfir Birgittu, sakaði hana um að grafa undan fólki og hótanir. Svo fór að Birgitta fékk ekki sæti í trúnaðarráði og yfirgaf átakafundinn grátandi. Helgi Hrafn sagðist standa við orð sín, en Birgitta upplifði fund- inn sem mannorðsmorð. Til stóð að rapparinn Gísli Pálmi skemmti á bæjarhá- tíðinni Dýrafjarðardögum í sumar, en svo fór ekki. Pétur Albert Sigurðsson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, sagði að rapparinn hefði ekki verið í ástandi til að spila, því hefði honum verið meinaður aðgangur að sviðinu. „Við sendum hann því bara heim aftur að hvíla sig, það var ekkert flóknara en það. Það urðu engin eftirmálar af því eða vesen, hann bara var ekki í standi og gat því ekki spilað þarna.“ Gísli Pálmi átti eftir að komast aftur í frétt- irnar á þessu ári, meira um það í októberannálnum. Hver verður næstur? Fjölskylda í sárum Sviðin jörð á Tenerife Sendur heim Lést á Indlandi Klám í Neskaupstað Átakafundur Dæmdur morðingi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.