Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 28
Hringbraut fullyrti að Þorbergur Aðalsteinsson, fyrr­ verandi landsliðsþjálfari og landsliðsmaður Íslendinga í handbolta, hefði verið handtekinn á flugvelli í Noregi um miðbik ágúst. Var Þorbergur sakaður um dólgslæti og fyrir að hafa reynt að ráðast inn í flugstjórnarklefa meðan á flugi stóð. Þorbergur mætti í viðtal á Bylgj­ unni fyrir stuttu og sagði málið á misskilningi byggt, að norska lögreglan væri búin að biðja hann afsökun­ ar. Kristjón Kormákur Guðjónsson, fyrrverandi ritstjóri Hringbrautar, mætti í kjölfarið í viðtal á Bylgjunni og sagði Þorberg fara með rangfærslur, sagði hann hafa verið í annarlegu ástandi í flugvélinni og sýnt ógnandi tilburði. Orð gegn orði. DV birti einkaviðtal við Ingólf Steinar Ingólfsson sem var handtekinn og settur í varðhald í Kambódíu þar sem vegabréfsáritun hans til Kambódíu rann út. Það hafði þær afleiðingar að hann gat ekki tékkað sig út af hóteli sem hann gisti á né greitt reikninginn þegar að því kom, að hans sögn. „Ég lenti í þessu veseni af því vegabréfið mitt hvarf,“ sagði Ingólfur meðal annars og taldi sig sæta miklu óréttlæti. 28 27. desember 2019ANNÁLL - ÁGÚST Flugdólgur og Freðinn √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjón t Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga www.eignaumsjon.is Suðurlandsbraut 30 • Sími 585 4800 n Uppsagnir hjá Sýn n Hótanir í utanríkisráðuneytinu n Dorrit í svörtu bók Epstein Fjölmiðlar hafa lagt það í vana sinn að birta tekjur landsþekktra einstaklinga í svokölluðum tekjublöð­ um, en vegna breytinga hjá Ríkisskattstjóra dróst sú birting á langinn í ár. Loks í ágúst kom tekjublað DV út og kenndi þar ýmissa grasa. Við komumst til dæm­ is að því að Hafþór Júlíus væri tekjuhæsti íþróttamað­ urinn með milljónir á mánuði og að Sólrún Diego, áhugakona um þrif, væri á lágmarkslaunum. Uppsagnir á fjölmiðlum Þrettán manns var sagt upp hjá fjölmiðla­ fyrirtækinu Sýn, sem er hluti af Vodafone, um miðjan ágúst. Meðal þeirra sem sagt var upp voru íþróttafréttamaðurinn kunni Hjörvar Hafliðason, Kristín Ýr Gunnarsdóttir og Sig­ hvatur Jónsson, fréttamenn á Stöð 2. Upp­ sögnin kom Hjörvari í opna skjöldu en hann stóð keikur í viðtali við DV sama dag og hon­ um var sagt upp. „Það er eins og það er. Nú bæti ég í sókn­ ina á Dr. Football hlaðvarpinu en það er miðill sem ég hef trú á.“ Rekstur einkarekinna fjölmiðla dróst enn saman á árinu og var fjölmiðla­ mönnum á öðrum miðl­ um einnig sagt upp á öðrum tímum, til dæmis á Morgunblaðinu. Guðlaugi hótað Gripið var til öryggisráðstafana í utanríkisráðu­ neytinu í kjölfar líflátshótana sem Guð­ laugur Þór Þórðarson utanríkisráð­ herra fékk í tengslum við þriðja orkupakkann. Maðurinn sem hót­ aði Guðlaugi var þekktur fyrir að dreifa pólitískum áróðri á Face­ book, á sinni eigin síðu og í ýms­ um hópum. „Hins vegar er okk­ ur ráðlagt að líflátshótanir beri að taka alvarlega. Þær hótanir sem mér hafa borist á samfélagsmiðl­ um vegna þessarar fréttar hafa þegar verið settar í farveg hjá Ríkislögreglu­ stjóra,“ sagði Guðlaugur. Vistaður í varðhaldi Súrrealískt níðingssamfélag? Grínistinn Björn Bragi Arnarsson tilkynnti nýja uppistandssýningu og internetið fór á hliðina. Sýn­ ingin hét Björn Bragi Djöf­ ulsson og sá Anna Svava um að hita upp. Mislíkaði netverjum svo mjög að Björn Bragi væri snúinn aftur í uppi­ stand eftir að myndband af honum að káfa á unglingsstúlku fór í dreifingu í október í fyrra. Átti atvikið sér stað eftir skemmtun hjá KPMG á Akureyri, en Björn var veislu­ stjóri þar. „Er bara allt í góðu að fullorðinn maður sem nuddaði klofið á barni og náðist á myndband sé aftur accepted sem ehv ögr­ andi insult comic og virt listafólk sé að peppa hann? hvaða súrrealíska níðingssamfélagi er ég frá?“ skrifaði einn netverji til að mynda. „Síðan nauðgaði hann mér“ Sigurður Gói Ólafsson varð fyrir fólskulegri líkamsárás og var nauðgað í frönsku borginni Marseille í júlí og opnaði sig um árásina í DV í ágúst. „Skyndilega réðst hann á mig, algjörlega upp úr þurru. Hann kýldi mig í síðuna og hrinti mér á magann. Því næst reif hann niður um mig buxurnar. Síðan nauðgaði hann mér,“ sagði Sigurð­ ur og bætti við: „Ég stirðnaði upp af hræðslu. Ég var viss um að hann myndi drepa mig. Ég hélt hrein­ lega að ég væri að fara að deyja.“ Vinkona Epstein Nafn Dorrit Moussaieff, fyrrver­ andi forsetafrúar, var að finna í hinni alræmdu svörtu bók níð­ ingsins Jeffreys Epstein. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhverntímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja,“ sagði Doritt við DV. Epstein átti 45 ára fangelsi yfir höfði sér vegna mansals og barnaníðs sem hann var sakaður um eftir aldamót. Hann svipti sig lífi í fangelsi. Er þetta í lagi? Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunn­ ar, gagnrýndi tónlistarmanninn Auð á Facebook­síðu sinni eftir að hafa séð hann syngja lagið Freðinn á Arnarhóli. Bjarn­ heiður gagnrýndi að lagið hefði verið spilað snemma kvölds á fjölskylduskemmtun sem var að auki sjónvarpað beint á RÚV. „Hvernig á að útskýra fyrir börnum að boðskapurinn sem þessi marglofaði og vinsæli listamaður flytur sé vondur? Hvernig samræmist þetta forvarnarstarfi? Eða finnst fólki þetta almennt bara allt í lagi?“ spurði Bjarnheiður. Tekjublaðið Flugdólgurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.