Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 48
Sérblað 27. desember 2019KYNNINGARBLAÐ GÆLUDÝR.IS - Dýrin um áramót Dýrin um áramót. Nokkur atriði er gott að hafa í huga þegar kemur að gæludýrunum okkar um áramót. Fæstum dýrum er sérlega vel við flugelda og því er gott að vera búin að sjá hvað við getum gert til þess að létta þeim lífið. Best er að tryggja öryggi allra dýra eins og hægt er dagana í kringum áramótin, algengt er að sprengt sé á öllum tímum dags og því mikilvægt að vera viðbúin. Ef hægt er að halda köttum inni þessa daga er það heppilegast. Viðraðu hundinn í taumi til þess að minnka líkurnar á því að hann stökkvi frá þér í hræðslu við flugelda, ef þú vilt veita hundinum aðeins meira frelsi leggjum við til að hann sé hafður í löngum taumi eða t.d. sporalínu. Þegar nálgast gamlárskvöld þurfum við sem eigendur að hugsa út í öryggi dýranna, þau þurfa að vera í öruggu rými þar sem ekki er hætta á að þau sleppi út þegar umgangur er um heimilið. Best er ef dýrið getur verið í herbergi þar sem heyrist lítið inn (og jafnvel án glugga þannig að blossarnir sjáist ekki heldur) og ef hægt er að við séum með dýrinu. Munum að fara snemma út með hundana að pissa fyrir nóttina, en frábær tími til þess er þegar skaupið er í gangi, þá eru afar fáir að skjóta upp. Hvað get ég gert til að leiða athyglina frá látunum? • Bjóddu uppáhaldsnagdótið • Bjóddu hundinum eða kettinum Kong-leikfang sem er fyllt með gómsætri fyllingu. Kong má setja í frystinn til þess að það taki lengri tíma að veiða fyllinguna upp úr • Gefðu gott nagbein (ekki eldað bein) Hvað ef þetta dugir ekki til? Sum dýr eru einfaldlega of hrædd við flugelda til þess að það dugi að reyna beina athygli þeirra annað. Fyrir þau dýr eru til vörur sem hafa slakandi eiginleika án þess að virka sljóvgandi. Við höfum góða reynslu af Sanal Relax-töflum, en þær eru með jurtum sem hafa þekkta slakandi virkni fyrir hunda, ketti og nagdýr. Best er að byrja gefa þær 2–3 dögum fyrir gamlárskvöld til þess að hámarka virknina. Eins er hægt að fá Canosept- og Felisept-lyktarefni sem hefur slakandi áhrif, það kemur þá í spreyformi, í hálsól eða í lyktardreifara í innstungu. Eins og með töflurnar næst besta virknin þegar notkun hefst fyrir mesta stressið. Ef hundurinn eða kötturinn hefur sýnt viðbrögð sem einkennast af ofsahræðslu fyrir áramót geta dýralæknar einnig ávísað róandi lyfjum, en best er að vera tímanlega í sambandi við dýralækni enda opnunartími dýralæknastofa takmarkaður um jól og áramót. Eitthvað er um hunda sem ekki kippa sér upp við lætin og ljósin, en við minnum eigendur þeirra líka á að betra er að setja öryggið á oddinn og að hafa þá líka inni, enda geta flugeldar flogið aðra leið en ætlað er. Nánari upplýsingar á vefsíðu Gæludýr.is • Hafðu dregið fyrir hjá dýrinu • Vertu með útvarp eða sjónvarp í gangi • Vertu með dýrinu ef hægt er • Reyndu að draga athygli gæludýrsins að öðru en flugeldum Sanal Relax-töflur. Canosept- og Felisept-lyktarefni. Gagnlegar upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.