Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 49
Sérblað27. desmber 2019 KYNNINGARBLAÐ
Framtíðin er mætt í eldhúsið!
Future Kitchen er afar spennandi og viðamikið Evrópuverkefni sem Matís
leiðir í samstarfi við European Food
Information Council, University of
Cambridge, IMDEA Alimentación,
Natural Machines, FlatEv og Döhler.
Þetta er raunveruleiki, ekki
vísindaskáldskapur
Markmið Future Kitchen er að
efla áhuga almennings, einkum
ungs fólks, á næringu, heilsu og
sjálfbærni og auk þess að endurnýja
upprunatenginu fólks við mat. Future
Kitchen er sería myndskeiða sem eru
stútfull af skemmtilegu fræðsluefni.
Þar er kynnt ný matvælatækni
sem í sumum tilfellum virkar eins
og vísindaskáldskapur. Hér lærum
við um þrívíddarmatarprentara,
lóðrétta matjurtarækt í eldhúsinu
og handhæga tortillu-vél sem
bakar heitar tortillur eftir þörfum, í
hæfilegu magni. Myndskeiðin eru svo
sett fram í sýndarveruleika sem gerir
upplifunina ennþá áhrifameiri.
Það geta allir unnið að minnkaðri
matarsóun heima hjá sér og Future
Kitchen myndbandsserían kennir
áhorfendum nýjar og spennandi
leiðir til þess að gera markmiðið að
raunveruleika.
Akurinn heim í eldhús!
https://www.foodunfolded.com/
videos/farm-in-your-kitchen-look-
inside-360-video
Ræktun krefst ekki alltaf
risastórra landbúnaðarsvæða.
Síður en svo. Það er vel hægt að
rækta ýmislegt eins og stökkar
spírur og nýtt grænmeti heima í
eldhúsi. Plant Cube er fyrsta lóðrétta
heimaræktunarkerfið. Með sjálfkrafa
vökvun, led-lýsingu og stýrðu
loftslagi getur þú ræktað þitt eigið
grænmeti á auðveldan og skilvirkan
hátt. Þú þarft ekki einu sinni að vera
með græna fingur.
Þrívíddarprentaður fiskur
https://www.foodunfolded.com/
videos/3d-printed-seafood-look-
inside-360-video
Þrívíd darprentari sem
framleiddur hefur verið af Natural
Machines minnkar matarsóun í
fiskiðnaðinum með því að nýta
afganga og afskurð sem annars
færi til spillis. Eingöngu 20% af
öllum þeim fiski sem er veiddur í dag
nýtist til manneldis. Afgangurinn
nýtist m.a. í dýrafóður en stór hluti
fer einfaldlega í ruslið. Hér er um
gríðarlega matarsóun að ræða.
Tómatar á Íslandi
https://www.foodunfolded.com/
videos/iceland-tomato-farm-look-
inside-360-video
Það er vel hægt að rækta
tómata og annað grænmeti allan
ársins hring á Íslandi. Í frostkulda
vetrarins má jafnvel rækta dýrindis
tómata, þökk sé gróðurhúsunum,
jarðhitanum sem heldur hita
á húsunum og grænu orkunni
sem notuð er til að knýja sterk
rafmagnsljósin.
Borðaðu brauðsnakk og minnkaðu
matarsóun í leiðinni!
https://www.foodunfolded.com/
videos/how-bread-chips-tortillas-
are-reducing-food-waste-look-
inside-360-video
Í meðalheimilishaldi fer um
þriðjungur matarins í ruslið. Brauð
er stór hluti af þessari sóun, þar sem
það hefur hvað stystan geymslutíma
af mat heimilisins. Gríðarlegt magn
af orku, vatni og auðlindum fer til
spillis í framleiðslu á brauði sem er
svo að miklu leyti hent. Ástæðan
fyrir þessari gríðarlegu sóun er að
stórum hluta sú að við viljum helst
nýbakað brauð án rotvarnarefna.
Eitt af myndböndum Future Kitchen
myndbandsseríunnar segir okkur
frá hentugri og endurvinnanlegri
geymsluleið fyrir litla skammta af
brauðdeigi sem má svo baka við
tækifæri. Svissneska fyrirtækið
ZüriChips nýtir enn fremur
afgangsbrauð frá bestu bakaríum í
Zurich til þess að framleiða gómsætt
brauðsnakk.
Verkefnið hefur hlotið styrk frá
EIT FOOD, nýsköpunarsamfélagi
um fæðu innan Evrópustofnunar
nýsköpunar og tækni, undir
Horizon 2020, sem er vettvangur
Evrópusambandsins fyrir rannsóknir
og nýsköpun.
Myndböndin og nánari upplýsingar
um verkefnið má nálgast á
vefsíðunni foodunfolded.com.