Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 76
76 27. desember 2019
SAKAMÁL
MÆÐGUR OG MORÐ
n Krossviðarkofi var heimili mægnanna n Dóttirin vann, en móðirin eyddi
Þ
að er margt í mörgu og það sannað-
ist í þorpinu Bristol, í Bucks-sýslu í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, 17.
október árið 2010. Þar í kofaskrifli
úti í skógi bjuggu mæðgurnar Rebecca
Anne Olenchock og Kimberly Venose. Líf
þeirra var ekki dans á rósum og Rebeccu
dreymdi um betri tilveru annars staðar, en
Kimberly, móðir hennar, virtist sátt við að
hírast í greninu, sem klastrað var saman
úr krossviðarplötum, og vildi ekki flytja.
Þrátt fyrir að Rebecca byggi ekki við
munað eins og rafmagn og rennandi vatn
var hún í fullu starfi sem gengilbeina og
reyndi af fremsta megni að spara og koma
sér upp sjóði.
Draumurinn fjarlægðist
Kornið á það til að fylla mælinn og það
gerðist einmitt áðurnefndan dag, árið
2010.
Þannig var mál með vexti að Kimberly
glímdi við heilsubrest af ýmsum toga og
hafði fengið fengið framfærslueyri um
nokkurt skeið. Að lokum var svo komið að
skilnaðurinn taldist frágenginn og frekari
framfærslu var ekki að vænta úr þeirri átt.
Kimberly varð háðari dóttur sinni, sem
sá draum sinn um flutning úr skóginum
og betra líf fjarlægjast með degi hverjum.
Kornið fyllti mælinn.
Peningar hurfu
Þannig var mál með vexti að Rebecca var
í vandræðum með að geyma það fé sem
hún fékk fyrir vinnu sína. Engan hafði hún
bankareikning og fátt um góða felustaði í
hreysinu.
Þó hafði Rebecca afrekað að safna fyrir
gamalli Kia-bifreið og fyrir tilstilli Söndru
Mullican, talsmanns heimilislausra á
svæðinu, fékk hún að geyma eitthvert fé í
öryggisskáp í kirkju.
Það kom þó tíðum fyrir að Rebecca
uppgötvaði að peningar sem hún faldi í
kofa mæðgnanna „höfðu horfið“.
Hafnaboltakylfa og lampaolía
Sem sagt, Rebecca kom móður sinni fyrir
kattarnef 17. október árið 2010 á „heimili“
þeirra mæðgna. Rebecca barði Kimberly
með hafnaboltakylfu og hellti síðan
lampaolíu yfir hana þar sem hún lá með-
vitundarlaus inni í kofaskriflinu og bar að
lokum eld að. Að þessu loknu skellti hún
hengilás á hurðina og ók á brott.
Kimberly komst til meðvitundar, föt
hennar voru alelda sem og kofinn, en
engu að síður tókst henni að brjótast út
um einn vegginn, staulast að veginum og
öskra á hjálp. Andartaki áður en hjarta
hennar gaf sig tókst henni að segja einum
sjúkraliða að dóttir hennar hefði reynt að
drepa hana.
Þriggja dag réttarhöld
Nokkrum dögum síðar fann lögreglan
Rebeccu í Johnson City í Tennessee þar
sem hún var með karli sem hún hafði
kynnst í gegnum internetið.
Réttarhöldin tóku þrjá daga og úr-
skurðaði dómarinn, Albert Cepparulo,
Rebeccu seka. Hann vísaði til föðurhús-
anna þeirri fullyrðingu verjanda Rebeccu
að ömurlegar heimilisaðstæður hefðu
hrakið hana til örþrifaráða.
Vissulega hafði verjandi ýmislegt til
síns máls, því alkunna var að nag- og
skordýr voru ekki af skornum skammti og
bættu ekki úr skák í því sem fyrir taldist
ekki til mannsæmandi aðbúnaðar.
Veik en sek
Cepparulo sagði að Rebecca ætti við and-
leg vandamál að stríða, en væri engu að
síður sek. Þann 12. október, 2011, fékk
Rebecca lífstíðardóm fyrir morðið á móð-
ur sinni og 12 til 25 ára dóm fyrir íkveikju
og dómana má hún afplána samtímis.
Einnig úrskurðaði Cepparulo að
Rebecca skyldi njóta meðferðar vegna
andlegra veikinda og annars sem þeim
tengdist meðan hún afplánaði dóminn. Ó
já. n
„Föt hennar voru al-
elda sem og kofinn,
en engu að síður tókst
henni að brjótast út um
einn vegginn
Rebecca Olenchock Dreymdi um betra líf.Í járnum Að lokum fyllti kornið mælinn.
Virkar á
1 mínútu
Zonnic pepparmint munnholsúði inniheldur nicotin, 1 mg/úða, og er
lyfið notað til meðferðar við tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og
aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.