Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 78
78 FÓKUS 27. desember 2019
n Tuttugu ára samband á enda n Limur í hættu
n Flutti í bílskúrinn hjá mömmu og pabba
Þ
ótt mikil ást og gleði hafi
ríkt á árinu var einnig eitt-
hvað um að það flosnaði
upp úr samböndum. Oft
getur það reynst heillaspor þótt
sárt sé, en lífið heldur víst áfram.
Kvæðið í kross
Jónína Ben og Gunnar Þorsteinsson, oft kenndur við Krossinn,
skildu eftir tæplega tíu ára hjónaband. Þau höfðu búið sér til fal-
legt heimili í Hveragerði, en eftir skilnaðinn flutti Gunnar til
útlanda. Jónína gerði upp skilnaðinn í Facebook-færslu í lok ágúst
og skrifaði meðal annars: „Ég hef getað haldið í trúna á Jesú og
hann reisir okkur bæði vonandi og gerir lífið léttara. Ég þakka þér
daginn Gunnar Þorsteinsson, þetta var æðislegur dagur og veislan
skemmtileg. Hver elskar ekki gott partý. Nú er að þrífa upp eftir
það!“
Stöngin út
Logi Geirsson, fyrrverandi
atvinnumaður í handbolta
og landsliðsmaður, skildi við
Ingibjörgu Elvu Vilbergs-
dóttur, en þau voru saman
í tíu ár. Þau eiga saman tvö
börn, soninn Vilberg og
dótturina Júlíu.
Reynir Traustason, fjölmiðla-
maður, rithöfundur og farar-
stjóri, skildi við eiginkonu
sína, Halldóru Jónsdóttur.
Reynir og Halldóra hittust fyrst
á balli í Hnífsdal árið 1972 en
nú er ballið búið. Reynir flutti
í kjölfarið til Njarðvíkur og hélt
áfram að sinna sínu helsta
áhugamáli – fjallgöngum.
Hjónabandið búið
María Sigrún Hilmarsdóttir,
fréttakona á RÚV, og
Pétur Árni Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Heildar fast-
eignafélags, fóru hvort í sína
áttina á árinu, eftir margra ára
samband og þrjú börn. Þau
giftu sig árið 2011 í Dómkirkj-
unni og gaf Karl Sigurbjörns-
son biskup þau saman, veislan
fór fram á Kjarvalsstöðum.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur bæði tapaði og fann ástina á árinu.
Hann skildi við eiginkonu sína, Lilju Sigurlínu Pálmadóttur, en þau
hafa verið afar áberandi í þjóðlífinu síðan þau rugluðu saman reyt-
um fyrir um tuttugu árum. Meira um nýja ást Baltasars á næstu síðu.
Sagði sjálf
frá slúðrinu
Áhrifavaldurinn Lína Birgitta
og athafnamaðurinn Elmar
Örn Guðmundsson fundu
ástina í örmum hvort annars
en töpuðu henni jafnharðan.
Lína tilkynnti þetta á
Instagram. „Þetta er eitt af því
sem mér þykir erfitt við að
vera „opinber“ manneskja.
Að líða eins og ég „þurfi“ að
segja frá þessu þrátt fyrir að
vilja það alls ekki. Ég veit bara
fyrir víst að ef ég segi þetta
ekki sjálf þá mun koma slúður
og það er eitthvað sem ég vil
virkilega koma í veg fyrir.“
It‘s Oh So Quiet
Söngkonan Björk og rithöf-
undurinn Sindri Freysson slitu
sambandi sínu eftir að hafa
vakið mikla athygli á haust-
mánuðum víða um bæ. Björk
er ein okkar ástælasta söng-
kona og Freyr kunnur fyrir
skáldsögu sínar og ljóð.
Ófært
Stjörnuparið Jón Viðar Arn-
þórsson og Sóllilja Baltasars-
dóttir slitu samvistir eftir
tveggja ára ástarsamband. Jón
Viðar er ekki síst kunnur fyrir
samstarf sitt við bardagakapp-
ann Gunnar Nelson og saman
stóðu þeir að einu vinsælasta
íþróttafélagi landsins, Mjölni.
Sóllilja hefur getið sér gott
orð sem hönnuður og ljós-
myndari. Parið kom saman að
gerð Ófærðar 2 sem faðir Sól-
lilju, Baltasar Kormákur, hafði
veg og vanda að. Sóllilja fór
þar með lítið hlutverk björg-
unarkonu og Jón Viðar kom
við sögu sem sérsveitarmaður
í síðasta þætti sjónvarpsserí-
unnar.
Ein athyglisverðustu sam-
bandsslit ársins voru eflaust
þegar Heiðdís Rós Reynis dóttir
og Farzad Sepahifar slitu trú-
lofun. Farzad fékk tímabund-
ið nálgunarbann gegn henni
og sakaði hana um að ætla að
skera af honum typpið. „Ég ýtti
henni frá mér, hljóp frá og þá
rauk hún inn í eldhús og sótti
hníf. Hún ætlaði að skera af
mér typpið. Hún kallaði það
hátt, aftur og aftur: „Ég ætla að
skera af þér typpið“. Málið er
enn rekið fyrir dómstólum.
Balliðbúið
Hótað limlestingu
Hittust í Hnífsdal
Tapað – fundið