Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 26
26 27. desember 2019ANNÁLL - JÚLÍ
Syrg jandi fjölskylda
í mál og sviðin jörð
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra
barnabóka auglýsa eftir handriti að skáldsögu
fyrir unglinga til að keppa um Íslensku
barnabókaverðlaunin 2020.
Skilafrestur er til og með 10. janúar.
Allar upplýsingar á www.forlagid.is
n Umfjöllun um dæmdan morðingja vakti usla n Íslendingur sakaður um svik á Tenerife
Fréttin sem snerti mest við
lesendum DV í júlí var um Al-
bert nokkurn Ísleifsson, sem féll
fyrir fíkn sinni um miðbik júlí.
Ragnar Erling Hermannsson,
sem sat í fangelsi í Brasilíu vegna
fíkniefnasmygls á árum áður,
sagði sögu Alberts í myndbönd-
um á Facebook. Í myndböndun-
um gagnrýndi Ragnar úrræða-
leysi fyrir fólk eins og Albert og
nokkrum dögum eftir birtingu myndbandanna hélt
Ragnar stofnfund nýs stjórnmálaafls. Helsta markmið
aflsins er að breyta kerfinu eins og það leggur sig. „Enn
og aftur berast okkur fregnir af ungum manni sem féll
frá vegna neyslu sinnar. Enn og aftur. Og eitthvað sem
hefði verið hægt að koma í veg fyrir. En það er verið að
spara, spara í þessum málaflokki. Það er verið að reisa
glæsihallir og glæsihýsi úti um allt og ég veit ekki hvað.
En það er verið að loka heilbrigðisstofnunum og það
eru biðlistar inn á meðferðarstofnanir,“ sagði Ragnar
og bætti við: „Hver verður næstur, verður það sonur
þinn? Frændi þinn? Þetta mun bara versna.“
Fjölskylda Arthurs Grants Wagstaff, sem lést í flug-
slysi á Íslandi árið 2015, steig fram í DV í júlí og sagði
frá því að hún ætlaði í mál við Sjóvá vegna dauða
Arthurs. Flugmaður vélarinnar þegar slysið átti sér
stað, Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri
flugfélagsins Atlanta, komst lífs af úr slysinu. Fjöl-
skyldan rekur líka mál gegn Arngrími, sem hefur
heimtað tryggingu frá ekkju Arthurs, Roslyn Wagstaff.
Hvorki hefur gengið né rekið í þessum málaferlum.
Íslensk kona
að nafni Auður
Ólafsdóttir
komst í fréttirnar
á vafasaman hátt
um mitt sumar.
Sökuðu nokkrir
Íslendingar hana
um að svíkja ís-
lenska ferða-
langa á eyjunni Tenerife. Auður rak Facebook-síðuna
Tenerife Leigumiðlun þar sem hún bauð húsnæði
til leigu. Þeir Íslendingar sem áttu viðskipti við Auði
sökuðu hana um að hirða peninginn og svíkja þá um
húsnæði eða hýsa þá í allt öðru húsnæði en um var
samið. Auður vildi ekki tjá sig við DV um málið en
hún á langan sakaferil að baki. Í kjölfar fréttaflutnings
hvarf hún af Facebook, og þær Facebook-síður sem
tengdust henni hurfu einnig.
DV birti umfjöllun um dæmda morðingj-
ann Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem
varð Hannesi Þór Helgasyni að bana
árið 2010. Afstaða kærði umfjöllunina
til siðanefndar Blaðamannafélagsins og
komst nefndin að þeirri niðurstöðu að
ritstjóri DV hefði gerst brotlegur við siðareglur.
Íslending-
ur fannst lát-
inn á gistiheim-
ili í Kullu-héraði í
Hmachal Pradesh
í Indlandi í byrjun
júlí. Hann fannst
látinn á baðher-
bergi í gistiheimil-
inu Acharya Villa
á Vashisht-svæð-
inu í borginni
Manali en andlát
hans bar ekki að
með saknæmum
hættu.
Hótelstjóri í Neskaupstað réð ungt erlent par sem um-
sjónarfólk á Cliff hótel í bænum í vor. Í maí tók parið
sig til og birti kynlífsmyndband af sér á einni stærstu
klámsíðu heims, Pornhub, og fór ekki á milli mála að
myndbandið var tekið inni á hótelinu. Þetta rataði í
fréttir í júlí en hótelið sem um ræddi var áður Eddu
hótel, en heitir í dag Cliff hótel og á veturna er þar
heimavist fyrir nemendur Verkmenntaskóla Austur-
lands. Parið var rekið úr starfi um leið og málið komst
upp og er farið af landi brott.
Birgitta Jónsdóttir, einn
stofnenda Pírata, ætlaði
að vera með endurkomu í
flokknum og sóttist eftir sæti
í trúnaðarráði. Myndband
fór í umferð af átakafundi
hjá Pírötum þar sem al-
þingismaðurinn Helgi Hrafn
Gunnarsson hellti sér yfir
Birgittu, sakaði hana um að
grafa undan fólki og hótanir.
Svo fór að Birgitta fékk ekki
sæti í trúnaðarráði og yfirgaf
átakafundinn grátandi. Helgi
Hrafn sagðist standa við orð
sín, en Birgitta upplifði fund-
inn sem mannorðsmorð.
Til stóð að rapparinn Gísli Pálmi skemmti á bæjarhá-
tíðinni Dýrafjarðardögum í sumar, en svo fór ekki.
Pétur Albert Sigurðsson, einn skipuleggjenda
hátíðarinnar, sagði að rapparinn hefði ekki
verið í ástandi til að spila, því hefði honum
verið meinaður aðgangur að sviðinu. „Við
sendum hann því bara heim aftur að hvíla
sig, það var ekkert flóknara en það. Það
urðu engin eftirmálar af því eða vesen,
hann bara var ekki í standi og gat
því ekki spilað þarna.“ Gísli Pálmi
átti eftir að komast aftur í frétt-
irnar á þessu ári, meira um það í
októberannálnum.
Hver verður næstur?
Fjölskylda í sárum
Sviðin jörð á Tenerife
Sendur heim
Lést á
Indlandi
Klám í Neskaupstað
Átakafundur
Dæmdur morðingi