Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 16
16 27. desember 2019ANNÁLL - FEBRÚAR
Íslendingur hvarf í Dublin
og kílómetraskandall
n Friðrik Ómar sakaður um lagastuld n Kloflyktin ógurlega n Árás á Kaffibarnum
Fréttin um grátandi Rúmenann Romeo
Sarga vakti mikla athygli en hún kom í kjöl-
far alvarlegra ásakana Eflingar í garð starfs-
mannaleigunnar Menn í vinnu. Voru Menn
í vinnu til að mynda sakaðir um þrælahald
og umfangsmikla brotastarfsemi af Vinnu-
málastofnun, Eflingu og ASÍ. Í frétt DV leið-
rétti Halla Rut Bjarnadóttir, forsvarsmaður
starfsmannaleigunnar, ýmsar rangfærslur
og fullyrti að Rúmenar, sem báru sig illa í
fréttum Stöðvar 2, hefðu það fínt og ættu
nóg af seðlum. Menn í vinnu ehf. fór í þrot
en nýtt félag var stofnað um reksturinn,
Seigla ehf. Enn er fjallað um mál starfs-
mannaleigunnar innan veggja dómstóla og
rúmensk yfirvöld hafa blandað sér í málið.
Önnur vinsæl frétt á DV leit dagsins ljós í lok
febrúar og fjallaði um „hræðilegar“ augabrúnir
íslenskra kvenna. Umfjöllunin var myndskreytt
með því sem greinarhöfundur kallaði „slæm
augabrúna tímabil.“ Greinin vakti umtal og fékk
á sig gagnrýni, en náði einnig að skemmta ýms-
um, enda eigum við öll okkar tískuslys.
Þjóðin varð harmi slegin þann
11. febrúar þegar að fréttir
bárust af því að íslenskur
maður, Jón Þröstur Jónsson,
hefði horfið nánast sporlaust
í Dublin, höfuðborg Írlands.
Jón Þröstur er enn ófundinn
og er málið hið dularfyllsta. Að
sögn unnustu hans gekk hann
símalaus út af hóteli þeirra að
morgni og sneri aldrei til baka.
Hvarf Jóns Þrastar hefur valdið
deilum innan fjölskyldu hans
og lögreglan hefur litlar sem
engar vísbendingar fengið um
hvarfið.
Undankeppni
Söngvakeppn-
innar hófst í
febrúar. Hljóm-
sveitin Hat-
ari þótti sig-
urstranglegust
þótt margir
viðruðu óá-
nægju sína
með sveitina og
lagið. Þá voru
einhverjir, þar
á meðal Páll
Óskar, ósáttir við
að Ísland sendi
fulltrúa til Ísrael,
í skugga stríðs
við Palestínu. Sá flytjandi sem þótti
veita Hatara hvað mesta samkeppni
var Friðrik Ómar Hjörleifsson með
lagið Hvað ef ég get ekki elskað? Því
varð uppi fótur og fit þegar erlend-
ir Eurovision-spekingar sökuðu
Friðrik Ómar um að hafa stolið lagi
Rihönnu, Love on the Brain. Friðrik
Ómar gaf lítið fyrir þessar ásakan-
ir en svo fór að hann háði einvígi við
Hatara í úrslitum Söngvakeppninnar
og laut í lægra haldi.
Það má með sanni segja
að ketó-mataræðið hafi
tröllriðið landanum á ár-
inu 2019. Margar fréttir um
ketó hafa verið skrifaðar á
DV en sú mest lesna er sú
sem fjallaði um ketó-klofið
– hræðilega lykt er leggur úr
leggöngum og frá nærliggj-
andi svæði. Engar vísinda-
legar rannsóknir hafa sýnt
fram á þetta, en ketó-matar-
æðið svo sem ekki gamalt.
Mál málanna í febrúar
var án efa umfangsmikið
og þaulskipulagt svindl
bílaleigunnar Procar, en
forsvarsmenn hennar áttu
við kílómetrastöðu fjöl-
margra bíla. Dæmi voru
um að kílómetrastaða
hefði verið lækkuð um allt
að 105 þúsund kílómetra.
Þeir sem urðu fyrir barðinu
á þessu svindli leituðu rétt-
ar síns en Procar hélt leyf-
inu. Nýlega sagði DV svo
frá því að eigendur Procar
hefðu stofnað nýja bíla-
leigu í Kópavogi, Carson.
Svo fékk umheimurinn í fyrsta sinn að kynn-
ast blaðakonunni Ernu Ýri Öldudóttur í febr-
úar, en hún átti eftir að koma meira við sögu
seinna á árinu. Erna opnaði sig um að Snæ-
björn Brynjarsson, þá varaþingmaður Pírata,
hefði hellt sér yfir hana og hótað henni ofbeldi
á Kaffibarnum. Snæbjörn baðst afsökunar og
sagði af sér þingmennsku, en sumir töldu að
árásin hefði verið sviðsett, þar á meðal Kolbrún
Halldórsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra.
Eitt af pörum ársins, þótt það hefði byrjað
saman árið 2018, er knattspyrnukappinn Rú-
rik Gíslason og fyrirsætan Nathalia Soliani.
Ástin drýpur af parinu en þau lentu hins
vegar í hremmingum þegar þau opinberuðu
samband sitt á samfélagsmiðlum. Afbrýði-
samur aðdáandi Rúriks hótaði Nathaliu og
Rúrik tapaði fylgjendum. Það er ekki bæði
sleppt og haldið.
Málið sem skók kvikmynda-
bransann var þegar að hand-
ritshöfundurinn Max Landis
var sakaður um nauðgunar-
tilraun. Max átti handrit að
því sem átti að verða næsta
stórmynd Baltasars Kormáks,
Deeper. Baltasar þurfti hins
vegar að segja sig frá verk-
efninu þegar þessar ásakanir
í garð Max komu upp á yfir-
borðið.
Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í febrúar, venju samkvæmt, en það voru tvær heims-
frægar manneskjur sem stálu þar senunni; leikarinn Bradley Cooper og söngkonan
Lady Gaga, stjörnur kvikmyndarinnar A Star is Born. Þótti neista á milli þeirra og
háværar sögusagnir voru uppi þess efnis að þau væru par í raunveruleikanum. Það
reyndist ekki raunin og hafa Lafðin og Bradley lýst vinasambandi sínu sem traustu og
einlægu – platónsk ást í sinni hreinustu mynd.
Stálu senunni
Hræðilegar augabrúnir
Ketó-klofið
Lagastuldur?
Svindl og svínarí
Ógnandi aðdáandi
Ráðist á blaðakonu
Dularfullt mál
Bransinn í molum
Grátandi Rúmeninn