Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 24
24 27. desember 2019ANNÁLL - JÚNÍ
Þrjú fórust í flugslysi
n Ólga í MR n Reiðir Tyrkir n Tilfinningar og hiti á Alþingi
Júní hófst á sorglegum nót-
um þegar að lítil flugvél hrap-
aði við Múlakot í Fljótshlíð.
Fimm manns voru innan-
borðs, allir Íslendingar. Hjón-
in Ægir-Ib Wessman og Ellen
Dahl Wessman fórust í slysinu
ásamt syni þeirra, Jóni Emil
Wessman. Ægir-Ib, fæddur
1963, var flugmaður og starf-
aði meðal annars sem flug-
stjóri hjá WOW air, Jón Emil, fæddur 1998, var að feta sömu braut
og var í atvinnuflugnámi við Flugskóla Íslands og Ellen, fædd 1964,
var sjúkraþjálfari. Sonur hjónanna og ung kona voru einnig um
borð en lifðu af. Þau voru flutt mikið slösuð á sjúkrahús í Reykjavík
eftir slysið.
Það dró til tíðinda innan
Sjálfstæðisflokksins þegar að
flokkurinn hélt upp á níutíu
ára afmæli sitt. Davíð Odds-
son mætti ekki, en fór ófögr-
um orðum um flokkinn sinn
í Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins. Þar sagði að fámennt
og tíðindalaust hafi verið á 90
ára afmælis flokksins á dögun-
um og hnýtt í heiðursgestina
úr öðrum flokkum. Þá skrif-
aði Davíð: „En af hverju þurfti
að læðast með veggjum með
þetta afmæli? Það er vissulega
megn óánægja í flokknum og
þá ekki síst meðal kjósenda
hans og hugsanlegra kjósenda
með óskiljanlega framgöngu
flokksins í orkupakkamálinu,
þar sem hiklaust er byggt á
blekkingum, sem raunar eru
fjarri því að vera lofsverðar.“
Davíð hefur ekki enn sagt sig
úr flokknum svo vitað sé en er
orðinn mjög hliðhollur Mið-
flokknum.
Nokkuð var fjallað um starfsanda í Menntaskólanum í Reykja-
vík, MR, og lýstu starfsmenn ástandinu sem óboðlegu. Sigríður
Helga Sverrisdóttir og Linda Rós Michaelsdóttir stigu fram í DV
og sögðust hafa orðið fyrir einelti af hálfu nokkurra kennara og
stjórnenda skólans. Lýstu þær uppsögnum og ógnarstjórn við
skólann sem rektorinn Elísabet Siemsen vísaði á bug. „Það er
merkilegt að þrír kennarar sem sagt hefur verið upp eiga það all-
ir sameiginlegt að hafa gagnrýnt starfshætti og stjórnunarhætti
rektors,“ sagði Sigríður Helga. Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið svaraði kvörtunum kennaranna og gaf það álit að ekki
hefði átt sér stað einelti í skólanum.
Leikmenn landsliðs Tyrkja
í knattspyrnu voru ekki par
sáttir við komuna í Leifsstöð,
en þeir voru til Íslands komn-
ir til að spila landsleik við Ís-
lendinga í undankeppni EM.
Tyrkir þurftu að bíða lengi á
flugvellinum, liðið flaug frá
Konya og þurfti að fara vel yfir öll vegabréf og slíkt. Þá voru Tyrk-
ir reiðir eftir að þvottabursti birtist í Leifsstöð. Reiði Tyrkja hélt
áfram á blaðamannafundi á Laugardalsvelli þar sem mörgum
var heitt í hamsi. Utanríkisráðherra Tyrklands, Mevlüt Çavu-
soglu, blandaði sér í málið og lýsti yfir megnri óánægju í garð Ís-
lendinga.
Fastur punktur í tilverunni í júní er sjálfur þjóðhátíðardagurinn.
Venju samkvæmt flutti fjallkonan ljóð á Austurvelli og að þessu
sinni kom það í hlut Aldísar Amah Hamilton. Þótti Aldís standa
sig með prýði en íslenskir kynþáttahatarar sáu sig knúna til að tala
hana niður. Fundu þeir mikið að því að Aldís væri af blönduðum
uppruna, en faðir hennar bandarískur af afrískum uppruna. Inn-
an Facebook-hópanna Stjórnmálaspjallið og Málfrelsið
var hart deilt um fjallkonuna. „Þannig að hún er ekki
Íslendingur heldur íslenskur ríkisborgari?“ spurði
einn meðlimur og aðrir svöruðu að Aldís væri ís-
lensk. Þá sagði meðlimurinn: „Ég er Íslending-
ur og stoltur af því … Þessi kona er amerísk og á
að vera stolt af því líka.“ Sem betur fer dó þessi
umræða frekar fljótt drottni sínum.
Í júní fengu lesendur DV einnig að kynnast áhrifavaldinum
Bryndísi Líf sem birtir ögrandi myndir á Instagram með veiga-
miklum boðskap. Síðan þá hefur frægðarsól Bryndísar skinið
skært og fylgjendum fjölgað.
Helga Áss Grétarssyni var sagt upp störfum
sem dósent við Lagadeild Háskóla Íslands um
miðbik júní. Ástæða uppsagnarinnar var sögð sú
að Helgi Áss hefði ekki uppfyllt þær skyldur sem
kveðið er á um varðandi rannsóknir og ritrýnt
efni, það er að ekki hafi komið nægilega mikið efni
frá honum. Helgi, sem er einn þekktasti skákmað-
ur landsins, tjáði sig um uppsögnina á Facebook,
sagðist vera með lögmann í málinu og var ósáttur.
Upp úr sauð á Alþingi í byrjun júní, eins
og svo oft áður, þegar frumvarp félagsmála-
ráðherra um að breytingu á lögum um fé-
lagslega aðstoð og almannatryggingar var
rætt. Inga Sæland, þingkona Flokks fólks-
ins, brast í grát og kvað það mikið órétt-
læti að afnema ekki krónu á móti krónu-
skerðinguna alfarið. Hún fordæmdi
jafnaðarríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
fyrir að koma þessari skerðingu á. Þá tók
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, upp varnir fyrir Jóhönnu
og var heitt í hamsi. „Menn þurfa aðeins að kunna hlutina áður en
þeir taka upp í sig stór orð og á meðan ég er hér á þingi og hef mál-
frelsi. ÞÁ SIT ÉG EKKI ÞEGJANDI UNDIR SVONA LÖGUÐU. Jó-
hanna Sigurðardóttir, einn merkasti félagsmálaráðherra þessarar
þjóðar, á annað og betra skilið frá kynsystrum sínum.“
Við kynnum: Bryndísi Líf
Sauð upp úr – aftur
Rekinn!
Klósettbursti í vatnsglasi
Ólga í MR
Flugslys við Múlakot
Ráðist á fjallkonuna
Fúll á móti