Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 30
30 27. desember 2019ANNÁLL - SEPTEMBER
Barnaníðingar og Braggamálið
n Hatara stefnt n Atli hrósaði sigri í héraðsdómi n Margrét Erla safnaði fyrir orlofi
Barnaníðingakortin
Miklar umræður sköpuðust í kringum eintök helgar
blaðs DV í september, en í þeim var birt kort og ítar
leg umfjöllun um íslenska barnaníðinga. DV birti ekki
full heimilisföng barnaníðinga heldur einungis í hvaða
landshluta eða hverfum þeir búa, birti viðtöl við for
eldra barna sem höfðu lent í klóm barnaníðinga og
velti því upp hvort almenningur ætti að fá upplýsingar
um hagi dæmdra barnaníðinga.
Aðalmeðferð í máli Atla Rafns Sigurðssonar gegn
Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur
borgarleikhússtjóra hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur,
en Atli fór í mál við leikfélagið því hann taldi ekki vera
rétt staðið að uppsögn hans. Atla var sagt upp vegna
þess að nokkrar konur kvörtuðu við Kristínu og sögðu
að Atli hefði áreitt þær kynferðislega. Við aðalmeð
ferð sagðist Atli telja að uppsögn hans hefði komið
til vegna lygasögu áhrifamanns innan leikhússins,
leikarans og leikstjórans Bergs Þórs Ingólfssonar.
Atli vann málið en Bergur vildi ekki tjá sig um þessar
ásakanir í hans garð.
Veitingastaðurinn Bragginn Bar og Bistro skellti í lás
en Háskólinn í Reykjavík leigði braggann af Reykja
vík og framleigði húsnæðið til veitingahússins í júní.
Forsvarsmaður Braggans Bistro greindi frá því stuttu
fyrir lokun að óvægin umfjöllun um frammúrkeyrslu
Reykjavíkurborgar í Braggamálinu hefði ekki haft
áhrif á rekstur veitingahússins. Braggamálið svo
nefnda var eitt af stærstu fréttamálunum árið 2018.
Kostnaður við að gera upp bragga í Nauthólsvík hljóp
hundruðum milljóna fram úr áætlunum og hefur
meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur sætt harðri
gagnrýni vegna málsins. Samkvæmt innri endur
skoðun Reykjavíkurborgar var kostnaðareftirliti
ábótavant og bæði reglur, lög og verkferlar virtir að
vettugi. Tímamótasöfnun
Athafnakonan og gleðigjafinn Margrét Erla Maack
hrinti af stað söfnun fyrir eigin fæðingarorlofi, en
hún eignaðist nýlega sitt fyrsta barn. Margrét Erla
hóf söfnunina til að vekja athygli á brotalömum í
fæðingarorlofskerfinu. „Í fyrsta og mikilvægasta
lagi að gera mér kleift að sinna barninu mínu fyrstu
mánuði lífs þess. Í öðru lagi að benda á hversu flókið
fæðingarorlofskerfið er fyrir þau sem kjósa
að vinna sjálfstætt og flæða á milli verk
efna. Eins og staðan er í dag er fæðingar
orlof lúxus sem foreldrar í frumkvöðla
starfi og sjálfstætt starfandi geta
takmarkað nýtt sér. Það álag sem
óskýr svör hafa á barnshafandi
konur ekki líðandi,“ sagði hún.
Hún náði báðum markmiðum
sínum.
Handval lögreglunnar
Stundin greindi frá því að fimm af tíu yfirstjórnendum
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegna stjórnunar
stöðu sem þeir fengu án auglýsingar. GRECO, sam
tök ríkja gegn spillingu, hafa gagnrýnt það ítrekað að
„handvalið“ sé í stöður innan lögreglunnar á Íslandi.
Yfirstjórnendurnir sem voru ráðnir án aug
lýsingar eru Ásgeir Þór Ásgeirsson yfir
lögregluþjónn, Helgi Valberg Jensson
aðallögfræðingur, Karl Steinar Vals
son yfirlögregluþjónn, Sigríður Björk
Guðjónsdóttir lögreglustjóri og Theo
dór Kristjánsson yfirlögregluþjónn. Sá
síðastnefndi er bróðir Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, fyrrverandi innan
ríkisráðherra, en hún skipaði Sigríði
Björk lögreglustjóra.
Ákærðir fyrir smygl
Brynjar Steingrímsson, Dagur Kjartansson og Hall
dór Anton Jóhannesson voru ákærðir fyrir stórfellt
fíkniefnalagabrot. Allir þrír eru fremur ungir, Brynjar
og Dagur eru 23 ára og Halldór er 21 árs. Þeir eru sak
aðir um hafa saman staðið að innflutningi á ríflega
16 kílóum af kókaíni. Í ákæru kemur fram að Brynjar
hafi skipulagt smyglið meðan Dagur og Halldór hafi
verið burðardýrin. Samkvæmt ákæru fóru þeir tveir
til Frankfurt síðastliðinn maí. Þaðan tóku þeir lest til
Amsterdam og hittu óþekkta einstaklinga um borð í
lestarvagni, allt samkvæmt fyrirmælum Brynjars, að
því er segir í ákæru.
Harmsaga móður
Elva Christina missti forræði yfir
yngsta barni sínu þegar barnið var
nokkurra daga gamalt. Elva sagði að
Barnavernd ætlaði að taka barnið og
senda til barnsföður hennar í Noregi.
Elva byrjaði ung að drekka og fór í fyrsta sinn inn á
Vog 14 ára. Hún varð ólétt að elsta barni sínu, dreng
sem er átta ára, og missti forræði yfir honum haustið
2016. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma en móð
ir Elvu, Helena Brynjólfsdóttir, rændi drengnum frá
Noregi sama ár. Síðan fékk barnsfaðir drengsins for
ræði yfir honum. Miðjubarnið, drengur, er tveggja ára
og flutti barnsfaðir hennar með drenginn til Noregs
með samþykki Elvu í apríl 2019.
Fegurst allra
Birta Abiba Þórhalls
dóttir var krýnd Miss
Universe Iceland
eftir val alþjóðlegrar
dómnefndar. Birta
var fulltrúi Íslands
í Miss Universe
keppninni í desem
ber og komst í topp
tíu.
Braggamálið
tók nýja stefnu
Hatari í bobba
Eurovisionstjörnurnar í Hatara komust í hann krapp
an en hljómsveitinni var stefnt fyrir samningsbrot.
Wiktoria Joanna Ginter, skipuleggjandi tónlistarhá
tíðarinnar Iceland to Poland, hélt því fram að samið
hefði verið við Hatara í desember um að koma fram á
hátíðinni. Nokkrum mánuðum seinna höfðu þeir öðl
ast heimsfrægð vegna þátttöku sinnar í Eurovision og
þá sagði hún að þeir hefðu viljað fá meiri peninga fyrir
að koma fram. Skaðabótakrafan hljóp á milljónum og
var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í septem
ber.
Atli vann