Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 32
32 27. desember 2019ANNÁLL - OKTÓBER
Misheppnuð endurreisn
og leigustríð Lindu
Gerðu
góð
kaup! 20
til 90%
afsláttur
af völdum vörumwww.byko.is
n Gísli Pálmi borinn þungum sökum n Harmleikur í Kópavogi n Gulldrengirnir í GAMMA
ViðskiptaMogginn greindi frá því í byrj-
un október að þeir aðilar sem hygðust
hefja flugrekstur á Íslandi, WOW 2 og
WAB, sem síðar fékk nafnið Play, ætl-
uðu að opna bókunarkerfi sín þann
15. október. Upphafleg áætlun WOW
gerði ráð fyrir að flug hæfust um miðj-
an október en því var frestað til desem-
ber. Play, þá WAB, áætlaði að hefja flug
í lok nóvember á þessum tímapunkti.
Flugsérfræðingar voru ekki sannfærð-
ir, enda hræðilegur árstími til að hefja
millilandaflug. WOW 2 er ekki enn farið
á flug en búast má við því að flugfélag-
ið verði komið í góðan gír þegar nálg-
ast vorið. Markmið um að endurvekja
starfsemi WOW eru enn í fullu gildi á
þeim bænum. Hvað varðar Play þá er
alls kostar óljóst hvenær flug hefst þar.
Enn hefur ekki verið hægt að bóka einn
einasta flugmiða.
Sorg í Salahverfi
Karlmaður fannst látinn í Salahverfi
í Kópavogi í lok október. Samkvæmt
heimildum DV virtist maðurinn hafa
fallið til jarðar eftir að hafa verið að
klifra utan á fjölbýlishúsi. Lögreglan
varðist frétta af málinu en íbúum var
brugðið.
Má ekkert lengur?
Gísli Pálmi Sigurðsson, þekktur rappari,
og vinkona hans, Ástrós Ósk Skaftadótt-
ir, voru sökuð um innbrot og þjófnað
á verðmætum í íbúðarhúsnæði í Árbæ
í lok október. Kona sem tengist íbúum
er urðu fyrir innbrotinu birti myndir af
parinu á Facebook og staðhæfði að það
hefði verið að verki. Gísli Pálmi tjáði sig
um málið á Facebook: „BÍDDU VÁÁ!
má maður bara ekkert lengur.. hahaha
hva er að frétta.“ Málið fór sína leið hjá
lögreglunni en ekki er ljóst hvort gefin
hafi verið út ákæra.
Reið Jóni Ársæli
Aðalmeðferð fór fram í máli Gyðu
Drafnar Grétarsdóttur gegn Jóni Ár-
sæli Þórðarsyni fjölmiðlamanni og
RÚV. Málið varðaði umdeilt við-
tal Jóns Ársæls við Gyðu í þáttunum
Paradísarheimt. Í umdeilda þættin-
um ræddi Jón Ársæll við Gyðu Dröfn
á meðan hún sat í afplánun inni á
fangelsinu á Sogni. Ræddu þau með-
al annars um erfið uppvaxtarár Gyðu
og glímu hennar við fíkn. Snerist
dómsmálið um það að Gyða hefði
ekki fengið að gefa lokasamþykki fyr-
ir þættinum eins og rætt var um við
Jón Ársæl og RÚV. Svo fór að Gyða bar
sigur úr býtum og fékk milljón króna í
skaðabætur.
Sakaður um gróft ofbeldi
Hlynur Kristinn
Rúnarsson, fíkill í
bata og stofnandi
samtakanna Það er
von, var sakaður um
að beita fyrrverandi
maka sína ofbeldi í
umfjöllun Stundarinnar. Hlynur svaraði
ásökunum á þá leið að hann hefði ver-
ið í neyslu. Viðmælendur Stundarinnar
voru ósammála og sögðu hann einnig
ofbeldisfullan edrú. Þá voru fagaðilar
ekki sáttir við að Hlynur héldi fyrirlestra
í skólum.
Sagt upp á þremur mínútum
Uppsagnir héldu áfram á Sýn
og var íþróttafréttamað-
urinn Hörður Magnús-
son látinn taka pokann
sinn eftir tuttugu ára
starf hjá fyrirtækinu. „Á
3 mínútna fundi var mér
fyrirvaralaust sagt
upp störfum eftir
tæplega 20 ár,“
sagði hann, en
uppsögn hans
reitti marga til
reiði.
Eigið fé úr sjóðum GAMMA þurrkað-
ist út á einu ári. Voru gulldrengirnir í
GAMMA sakaðir um að fegra stöðu fé-
lagsins og rannsóknar á rekstri sjóðs-
ins var krafist úr ýmsum áttum.
Stormur í vatnsglasi
Femínistar brjáluðust yfir pistil Ás-
laugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dóms-
málaráðherra um efl-
ingu á rannsókum
kynferðisbrota og
bætt viðmót við
þolendur. Allt
út af því að hún
notaði orð sem
þóknaðist ekki
femínist-
um.
Eltihrellir á Akranesi
DV sagði einnig frá elti-
hrelli sem gekk laus á
Akranesi. Alma Dögg
Torfadóttir var ein af
þeim sem stigu fram en
maðurinn hefur áreitt
hana í tæpan áratug. Það
tók Ölmu fimm ár að fá lögregluna á
Akranesi til að taka mark á henni en
enn hefur ekki náð að stöðva manninn.
„Ég er svo reið að þetta skuli viðgang-
ast,“ sagði Alma meðal annars.
Vafasöm heimsfrægð
Facebook-síðan 9 to 5 Life deildi
myndbandi frá Íslandi þar sem mað-
ur sést ganga berserksgang í einni
af verslunum Hagkaupa. Búið er að
horfa á myndbandið rúmlega sjö
milljón sinnum.
Leigustríð Lindu
Sagt var frá deilum Lindu Pétursdóttur,
athafnakonu við fyrrverandi leigjanda
sinn. Deilurnar vörðuðu lengd upp-
sagnarfrests, ástand húsnæðis og
tryggingarfé. Við nánari skoðun DV
virtist leigusamningur hafa verið ógild-
ur frá upphafi, því Linda er ekki eigandi
hússins, heldur barnsfaðir hennar.
Flugævintýrið
Gulldrengirnir