Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 36
36 27. desember 2019ANNÁLL - DESEMBER Ungur drengur týndi lífi í sprengilægðinni EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI n Lögmaður með unglingapartí og eiturlyf n Drama í dansþætti n Costco-kóngurinn í bann Dauðsfall í óveðri Eitt af stóru málunum í desember var veðrið, sprengilægðin svokall­ aða. Mikið óveður geisaði um mið­ bik mánaðarins og þótt höfuðborgar­ búar fyndu lítið fyrir því lék lægðin landsbyggðina grátt. Mikið tjón varð á mannvirkjum, en allt það föln­ aði í samanburði við unga piltinn, Leif Magnús Grétarsson Thisland, sem féll í Núpá í Eyjafirði og lést. Leif fæddist í Nor­ egi, átti norska móður og íslenskan föður. Hann flutti til Íslands eftir að móðir hans var myrt af fyrrver­ andi unnusta sínum. Leif féll í ána þegar hann var að hjálpa bónda að koma rafmagninu aftur á. Lík hans fannst nokkrum dögum síðar. Nágranni frá helvíti Næstmest lesna frétt DV í desember fjallaði um Kristján Gunnar Valdimars­ son, lektor við Háskóla Íslands og lögfræðing. Á heimili hans í vestur­ bæ Reykjavíkur hefur að sögn ríkt ófremdarástand og var hann sak­ aður um að bjóða unglingsstúlkum fíkniefni í skiptum fyrir kynlíf og hýsa vændiskonur. Lög­ reglan hefur margoft verið kölluð að heimili hans, í eitt sinn þegar Kristján var frelsissviptur, rænd­ ur og laminn. Dansdrama Mest lesna frétt desember, og reynd­ ar alls ársins, var hins vegar af öðr­ um toga og fjallaði um dansarann Javi Fernández Valiño sem rekinn var úr þáttunum Allir geta dansað því hann fór í taugarnar á dansfélaga sínum, Pólfaranum Vilborgu Örnu Gissurar­ dóttur. Í samtali við DV sagði Javi þetta óheppilegt og að hann hefði haft gaman af því að dansa við Vilborgu. Sett ofan í við Heiðrúnu Sem fyrr var hart tekist á í Silfrinu þegar að Kári Stef­ ánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrir­ tækja í sjávarútvegi, rökræddu um kvóta og sjávarút­ veg. Heiðrún hafnaði því að íslensk útgerðarfyrirtæki væru með víðtæk fyrirtækjanet erlendis. Þau rök tætti Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, í sig og birti lista um aflandseignir fólks í sjávarútvegi. Ísland í dag Hún var átakanleg frásögnin í DV af ástföngnu foreldrun­ um sem selja sig á íslensk­ um hótelum til að fjármagna eigin neyslu. Þeim hefur oft verið nauðgað og þau frelsis svipt. Þau hafa ekki séð börnin sín í sex mánuði og sjá enga leið út úr lífi sínu aðra en sjálfsvíg. Kóngurinn fallinn Engilbert Arnar Friðþjófsson, oftast kallaður Costco­ kóngurinn, var settur í bann í hópnum COSTCO – Gleði, hópi sem hann stofnaði og telur 36 þúsund Íslendinga. Svo virðist sem Facebook hafi talið Eng­ ilbert hafa farið yfir strikið í einhverri færslu hans en hann vildi bara gleðja meðlimi, sem voru að vonum í áfalli yfir banninu. „Engilbert Arnar er ómissandi fyrir þessa síðu,“ skrifaði ein kona til dæmis. Nú er Engilbert kóngur án Costco­kastala. Lekamálið Myndbandi var lekið á YouTube þar sem samtal Jó­ hannesar Stefánssonar uppljóstrara og fyrrverandi eiginkonu hans var sýnt, líklegast til að koma höggi á Jóhannes. Í myndbandinu mátti heyra Jóhannes hóta fyrrverandi eiginkonu sinni en hann sagðist hafa beðist afsökunar á athæfi sínu: „Á þessu tímabili upplifði ég mig í mikilli lífshættu. Ég var örvinglaður og tókst á við aðstæðurnar með því að drekka áfengi. Ég sagði hluti sem ég hef ætíð séð eftir og hef gengist við því og beðið alla hlutaðeigandi aðila afsökunar.“ Enn deilt um tónlist Fyrir Dag íslenskrar tónlistar voru valin þrjú lög, sem þjóðin gat sungið saman, af samtök­ um listamanna sem standa að deginum. Lögin í ár voru „Ammæli“ með Sykurmolun­ um, „Enginn eins og þú“ með Auði og „Froðan“ með Geira Sæm. Enn á ný blossaði upp tón­ listarreiði og gagnrýndu tón­ menntakennarar lagavalið, fannst það óviðeigandi. Lagavalinu var ekki breytt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.