Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 40
40 27. desember 2019FRÉTTIR Við óskum landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin VÉLSMIÐJA ÍSAFJARÐAR ÍSLENSKI NÝLENDUHERRANN n Þorsteinn Már valinn Skúrkur ársins n Sagður Al Capone norðursins DV ákvað í ár að leyfa lesendum að senda inn tilnefningar til Skúrks ársins samfara því að tilnefna Mann ársins. Tilnefningarnar voru fjölmargar en þegar opið hafði verið á innsendingar í viku á vef DV var ljóst að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, en nú í leyfi, fengi lang- flestar tilnefningar. DV tók þessar tilnefningar og setti þær í nafnlausa dómnefnd og þar var einróma samþykkt að veita Þorsteini Má þennan vafasama titil. Því eru Maður og Skúrkur ársins í DV bundnir böndum, þar sem það var meðal annars Helgi Seljan sem ljóstraði upp um vafasama og jafnvel glæpsamlega starfshætti Sam- herja í Namibíu. Hann er kallaður Mái Þorsteinn, eða Mái eins og hann er kallaður af sveitung- um sínum fyrir norðan, nældi sér í skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1974 og útskrifaðist sem skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole árið 1980. Þorsteinn eignaðist Samherja árið 1983 ásamt frændum sínum, Þorsteini og Kristjáni Vilhelmssonum. Upphafið að þessu útgerðarveldi má rekja til þess að Mái sá ryðkláf liggja í höfninni í Hafnarfirði, togarann Guð- stein GK sem gerður hafði verið út frá Grindavík með lé- legum árangri. Mái hugsaði sér gott til glóðarinnar og taldi tilvalið að breyta Guðsteini í frystitogara, enda hafði hann sérhæft sig í að frystivæða togara. Mái sannfærði Þorstein, sem þá var skipstjóri, og Kristján, sem þá var vélstjóri, um að taka þátt í ævintýrinu og svo fór að þremenningarnir náðu samkomulagi við Landsbankann um að kaupa út- gerðina og Samherji hf. varð til. Þorsteinn varð skipstjóri á togaranum, Kristján varð yfirvélstjóri og Mái sá um út- gerðina í landi. Allt gekk þetta eins og í sögu og árið 1985 keypti Samherji helming Hvaleyrar í Hafnarfirði, fyrirtæki sem stundaði alhliða fiskvinnslu og útgerð togarans Víð- is. Þá var útgerðarævintýrið hafið. Þremenningarnir voru kallaðir sægreifar, Samherji „norðlenska spútnikfyrirtæk- ið“ og Mái talinn „efnilegasti frumkvöðull Íslands.“ Stríðið í Seðlabankanum Áður en Samherjaskjölin litu dagsins ljós stóð Þorsteinn Már í stappi við Má Guðmundsson, þáverandi seðla- bankastjóra, og hafði gert allar götur síðan húsleit var framkvæmd í Samherja árið 2012 vegna meintra brota fyr- irtækisins á gjaldeyrislögum. Fyrirtækið var aldrei ákært. Samherji hefur höfðað skaðabótamál á hendur Seðlabank- anum en stuttu fyrir umfjöllun Kveiks um meintar mútu- greiðslur og spillingu beindi Þorsteinn Már spjótum sínum einnig að RÚV og Helga Seljan og telur ljóst að gagnaleki úr Seðlabanka til RÚV hafi átt sér stað. Fullyrti hann að Helgi Seljan og RÚV væru einnig gerendur í málinu. Stuttu eftir að Samherjaskjölin opinberuðust steig Þor- steinn Már tímabundið úr stóli forstjóra Samherja á með- an á rannsókn á meintum brotum stæði yfir. Óljóst er hvað það getur tekið langan tíma og alls kostar óvíst hvort hann snúi einhvern tímann aftur. n Meðal ummæla sem lesendur létu falla um Þorstein Má, til að rökstyðja tilnefningu til Skúrks ársins „Fyrir að arðræna eina fátækustu þjóð veraldar eftir að hafa rænt Ís- lendinga og sölsað undir sig 1/7 fiskveiði- kvóta með svikum og prettum. Það var ekki nóg að Samherji fengi u.þ.b. 2.000 tonna þorskígildiskvóta frítt, svokallaðan skipstjóra- kvóta, heldur þá fyrst byrjaði ballið með Sjálfstæðisflokkinn sem tryggingu á bak við sig, ráðherra og þingmenn.“ „Fyrir að taka þátt í mútugreiðslu og spillingu og misnota fátæka þjóð sjálfum sér til framdráttar „Al Capone er eins og kórdrengur hliðina á honum „Arðræn- ingi af verstu gerð og skammast sín ekkert fyrir það „Samherja- skipstjóri sem flúði fyrstur sökkvandi skip „Hagar sér eins og nýlenduherra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.