Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 44
44 27. desember 2019FRÉTTIR
Atli Eðvaldsson
03.03.1957–02.09.2019
Atli féll frá
eftir hetju-
lega baráttu við
krabbamein, en
hann hafði tjáð
sig ítarlega um
baráttuna við
meinið. „Ég sagði við krabba-
meinið, við erum hérna tvö.
Ef þú ætlar að vinna deyjum
við bæði. Við þurfum að reyna
að komast að samkomulagi
um að finna milliveg, þannig
að við höldum okkur báðum
á lífi. Það sem líkaminn get-
ur búið til getur líkaminn líka
tekið til baka,“ sagði hann í
viðtali við Bylgjuna í apríl, en
Atli fór óhefðbundnar leiðir í
leit að lækningu. Atli lék með-
al annars með Borussia Dort-
mund, Fortuna Düsseldorf og
fleiri liðum. Atli var landsliðs-
þjálfari frá 1999 til 2003 en
hann þjálfaði fjölda liða.
Ingveldur Geirsdóttir
19.11.1977–26.04.2019
Ingveldur
hóf störf hjá
Morgunblaðinu
árið 2005 og var
blaðamaður fyr-
ir Daglegt líf og
menningardeild
blaðsins áður en
hún hóf störf á
fréttadeild. Ingveldur fór yfir
til Stöðvar 2 áramótin 2013 en
flutti sig aftur á Morgunblað-
ið undir lok þess árs. Ingveld-
ur sat í stjórn Blaðamannafé-
lags Íslands, fyrst í varastjórn
árin 2014–2015 og síðan í að-
alstjórn árin 2015–2019. Eftir
að Ingveldur greindist með
krabbamein árið 2014 starfaði
hún um tíma með samtökun-
um Krafti, stuðningsfélagi fyrir
ungt fólk með krabbamein og
aðstandendur.
Fanney Eiríksdóttir
10.03.1987–07.07.2019
Fanney lést á líknardeild
Landspítal-
ans eftir harða
baráttu við leg-
hálskrabba-
mein. Hún
og eftirlifandi
eiginmað-
ur hennar,
Ragnar Snær
Njálsson, töluðu opinskátt um
sjúkdóminn. Fanney greindist
með krabbameinið þegar hún
var hálfnuð með meðgöngu
annars barns þeirra, Eriks
Fjólars. Erik var tekinn með
keisaraskurði eftir 29 vikna
meðgöngu og þurfti Fanney
að undirgangast fjölmargar
geisla- og lyfjameðferðir.
Birna Sif Bjarnadóttir
02.09.1981–27.06.2019
Birna Sif
var skólastjóri
Ölduselsskóla
og varð bráð-
kvödd að heimili
sínu, 37 ára að
aldri. Hún lét eft-
ir sig eigin mann og þrjár dæt-
ur. Birna starfaði í áratug sem
kennari við Ölduselsskóla.
Síðan tók hún við sem deildar-
stjóri einn vetur í Flataskóla í
Garðabæ, var aðstoðarskóla-
stjóri einn vetur í Breiðholts-
skóla og loks sneri hún aftur
í Ölduselsskóla á síðasta ári
sem skólastjóri.
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir
08.11.1955–02.04.2019
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir,
eða Pála eins
og hún var
alltaf kölluð,
var þroska-
þjálfi og brau-
tryðjandi í
baráttunni
gegn kynferð-
isofbeldi á Íslandi. Hún lést á
sjúkrahúsi í Danmörku eftir
erfið veikindi. Pála lauk námi
frá Þroskaþjálfaskóla Íslands
árið 1977 og starfaði við sitt
fag fram til 1996 er hún flutti
búferlum til Danmerkur þar
sem hún starfaði lengst af sem
þroska- og markþjálfi og með-
ferðarráðgjafi. Sigrún Pálína
varð á vörum þjóðarinnar er
hún steig fram og sakaði Ólaf
Skúlason biskup Íslands um
kynferðisofbeldi.
Ingibjörg Þorbergs
25.10.1927–06.05.2019
Ingibjörg var
ástsæl útvarps-
kona, lagahöfund-
ur og söngkona.
Ingibjörg varð
fyrst íslenskra
kvenna til að
syngja eigið lag inn á hljóm-
plötu og hún samdi mörg vin-
sæl lög og söng fjölda laga inn
á hljómplötur. Meðal laga eftir
Ingibjörgu eru hinar þekktu
Aravísur. Ingibjörg starfaði á
Ríkisútvarpinu frá árinu 1952
og stýrði meðal annars hinum
vinsæla þætti Óskalög sjúk-
linga.
Ragnar S. Halldórsson
01.09.1929–07.08.2019
Ragnar lauk
M.Sc.-prófi í
byggingaverk-
fræði frá DTH
í Kaupmanna-
höfn 1956. Sama
ár hóf hann störf
hjá Bandaríkjaher
á Keflavíkurflugvelli og var yf-
irverkfræðingur og síðar fram-
kvæmdastjóri verkfræðideildar
sjóhersins. Hann varð forstjóri
ÍSAL 1969 og gegndi því til
1988. Eftir það gegndi hann
stöðu formanns stjórnar ÍSAL.
Salvatore Torrini
09.06.1946–18.11.2019
Salvatore,
faðir söngkon-
unnar Emilíönu
Torrini, var frá
Napólí í Ítal-
íu. Hann kom
til landsins fyr-
ir tæplega 50
árum. Salvatore
rak vinsæla veitingastaðinn
Ítalíu í Reykjavík.
Birgir Sigurðsson
28.08.1937–09.08.2019
Birgir var afkastamikið
skáld og eftir hann liggur fjöldi
verka. Þekktasta
leikverk Birgis
er án vafa Dag-
ur vonar sem
frumsýnt var
árið 1987. Hans
fyrsta verk,
Pétur og Rúna,
vakti einnig mikla athygli og
vann 1. verðlaun í samkeppni
Leikfélags Reykjavíkur árið
1982. Birgir var gerður að
heiðursfélaga Rithöfunda-
sambands Íslands í maí 2019.
Eftirlifandi eiginkona Birgis er
Elsa Vestmann Stefánsdóttir.
Hann átti fjögur stjúpbörn og
þrjú börn með fyrrverandi eig-
inkonu sinni, Jóhönnu Stein-
þórsdóttur.
Jón Helgason
04.10.1931–02.04.2019
Jón var al-
þingismaður
Suðurlands
á árunum
1974 til 1995
fyrir Fram-
sóknarflokk-
inn. Hann
var landbúnaðar-, dóms- og
kirkjumálaráðherra 1983–
1987 og landbúnaðarráð-
herra 1987–1988. Eiginkona
hans var Guðrún Þorkelsdótt-
ir og börn þeirra Björn Sævar
Einarsson, fóstursonur, Helga
og Bjarni Þorkell.
Atli Heimir Sveinsson
21.09.1938–21.04.2019
Atli Heimir
var einn af upp-
hafsmönnum nú-
tímatónlistar á
Íslandi. Atli var
kjörinn meðlim-
ur í Konunglegu sænsku tón-
listarakademíunni1993 og var
staðartónskáld Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands 2004–2007.
Margeir Dire Sigurðarson
12.04.1985–30.03.2019
Margeir lést í Berlín þar
sem hann
var búsettur.
Óhætt er að
segja að Mar-
geir hafi verið
meðal efni-
legustu lista-
manna Ís-
lands. Hann
stundaði nám á myndlist-
arbraut við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri, Myndlistar-
skólanum á Akureyri, Lahti
Institude of Fine arts og Art
direction í IED Barcelona.
Hann var þekktur fyrir mynd-
sköpun í mismunandi miðla
svo sem vegglistaverk, striga-
málverk, teikningar, vídeó,
tónlist, hönnun og listræna
stjórnun. Margeir hélt fjölda
einkasýninga bæði hér á landi
og erlendis.
Gabríel Jaelon Skarpaas
Culver
17.07.1998–09.11.2019
Gabríel varð
nokkuð þekktur
sem fyrirsæta en
framtíðaráform
hans fólust í raf-
virkjun. Hann var
vinmargur og vinsæll meðal
unga fólksins í hinum ýmsu
listgreinum á Íslandi.
Herdís Tryggvadóttir
29.01.1928–15.08.2019
Herdís átti
þátt í stofn-
un safnaðar
Grænáss á
Keflavíkurflug-
velli og var þar
sóknarnefndar-
formaður. Herdís
studdi heilsugæsluverkefni á
vegum Kristniboðssambands-
ins í Afríku, beitti sér inn-
an samtakanna Herferð gegn
hungri og átti þátt í stofn-
un samtaka gegn limlestingu
á kynfærum kvenna. Herdís
var stofnaðili að friðarsveit-
um Sameinuðu þjóðanna
á Íslandi og tók þátt í starfi
bænahóps fyrir sjúka í Hall-
grímskirkju um langt árabil.
Herdís tók virkan þátt í nátt-
úruverndarbaráttu.
Dagfinnur Stefánsson
22.11.1925–16.06.2019
Dagfinnur var frumkvöð-
ull í íslenskri
flugsögu og
flaug vel yfir
30.000 flug-
tíma á ævi
sinni. Hann
starfaði sem
flugstjóri fyrir
meðal annars
Loftleiðir,
síðar Flug-
leiðir og Air
Bahama
og Cargolux, dótturfélag
Loftleiða, en Dagfinnur var
flugstjóri í fyrstu ferð þess fé-
lags. Dagfinnur flaug víða
um heim og sinnti sjálfboða-
starfi. Dagfinnur sat til dæmis
í stjórnum Loftleiða, Flugleiða
og Lífeyrissjóðs flugmanna.
Dagfinnur var sæmdur
heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu þann 17. júní 2014
fyrir brautryðjandastörf á vett-
vangi flug- og samgöngumála.
Atli Magnússon
26.07.1944–14.06.2019
Atli var mikilvirtur þýðandi.
Hann þýddi margar bæk-
ur sem teljast til heimsbók-
mennta, svo sem bækur eftir
Scott Fitzgerald,
Josep Conrad,
Thomas Hardy,
Truman Capote
og Johannes V.
Jensen. Atli starf-
aði lengi við
blaðamennsku,
fyrst sem prófarkalesari á
Þjóðviljanum, síðan á Alþýðu-
blaðinu og Tímanum þar sem
hann starfaði sem blaðamað-
ur. Eftir að Tíminn var lagður
niður starfaði hann alfarið við
þýðingar.
Kristín Sveinbjörnsdóttir
13.10.1933–
09.06.2019
Á árun-
um 1963–1982
vann Kristín við
þáttagerð hjá
Ríkisútvarp-
inu og hafði þá
meðal annars
umsjón með þættinum Óska-
lögum sjúklinga í 15 ár. Sá
þáttur var lengi við lýði hjá
Ríkisútvarpinu og var einn sá
vinsælasti. Kristín varð fyrsta
konan til að sitja í stjórn Golf-
sambands Íslands og gerði
það á árunum 1982–1985.
Þóra Friðriksdóttir
26.04.1933–12.05.2019
Þóra var ein
ástsælasta leik-
kona landsins.
Hún lærði leik-
list í London
School of
Speech and
Drama og
lærði einnig
í Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins, það-
an sem hún útskrifaðist 1955.
Hún starfaði við Þjóðleikhús-
ið í um hálfa öld og lék yfir 80
hlutverk. Ásamt því að leika
í leikhúsinu lék Þóra í ýms-
um kvikmyndum, þar á meðal
Atómstöðinni og Foxtrot. Eftir-
minnilegasta hlutverk hennar
hlýtur þó að vera mamman í
Sódóma Reykjavík.
Jensína Andrésdóttir
10.11.1909–18.04.2019
Jens-
ína var elst
allra þeirra
sem hafa átt
heima hér á
landi. Hún
var í fimmta
eða sjötta
sæti yfir elstu
íbúa á Norð-
urlöndum. Nú er því Dóra
Ólafsdóttir, búsett í Kópavogi,
elsti núlifandi Íslendingurinn
en hún varð 107 ára í júlí.
Karólína Lárusdóttir
12.03.1944–07.02.2019
Karólína nam myndlist í
Englandi, í Sir
John Cass Col-
lege á árunum
1964 til 1965. Að
því loknu stund-
aði hún nám við
Ruskin School of Fine Art í
Oxford. Þaðan útskrifaðist
hún árið 1967. Karólína bjó og
starfaði í Bretlandi um árabil
og var myndlist hennar mótuð
af meginstraumum breskrar
myndlistarhefðar, en mynd-
heimur hennar var íslenskur.
Myndefni sitt sótti hún ekki
síst í æskuminningar sínar,
meðal annars af mannlífinu
á Hótel Borg á árum áður
og sömuleiðis af farþegum
og starfsfólki um borð í MS
Gullfossi. Karólína hélt fjölda
einkasýninga um heim allan; í
Bretlandi, Danmörku, Frakk-
landi og Suður-Afríku.
Tryggvi Ólafsson
01.06.1940–03.01.2019
Tryggvi
var einn af
þekktustu
listamönn-
um þjóðar-
innar og
vann lengst
af að list
sinni í Dan-
mörku þar
sem hann bjó í rúm fjörutíu ár.
Hann sýndi víða um heim en
þurfti að hætta að mála eftir
að hann lenti í alvarlegu slysi
árið 2007. Tryggvi var riddari
af Dannebrog, handhafi fálka-
orðunnar og hlaut verðlaun
Jóns Sigurðssonar forseta árið
2018.