Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 46
Sérblað 27. desember 2019KYNNINGARBLAÐ
ISR MATRIX:
Öryggi fram í fingurgóma
Jón Viðar stofnaði upphaflega íþróttafélagið Mjölni en rekur nú ISR Matrix. „ISR
stendur fyrir Inngrip (Intercept),
Stöðva (Stabilize) og Ráða úr
(Resolve). ISR er alhliða sjálfsvörn
sem byggir á einföldum grunni úr
bardagaíþróttum sem auðvelt er að
ná tökum á. ISR má leggja stund á
og æfa eins og íþróttirnar sem ISR
byggir á, en áherslan er lögð á að
verjast ofbeldi eins og það gerist í
raunveruleikanum,“ segir Jón.
„Í ISR er lögð áhersla á að
verjast, koma sér undan og verjast
átökum. Við göngum aldrei lengra
en nauðsynlegt er til að vinna bug á
óréttlætinu sem við, og/eða þriðji aðili,
verðum fyrir. Hjá ISR kennum við ekki
ofbeldi, við kennum vörn gegn því.“
Í janúar byrja ný grunnnámskeið
í sjálfsvörn og öryggistökum
og svo í sjálfsvörn fyrir
konur. Bæði námskeiðin auk
framhaldstíma er hægt að sækja
hjá ISR Matrix í Sporthúsinu. Að
grunnnámskeiðum loknum getur
viðkomandi sótt framhaldstíma
í samsvarandi námskeiði. ATH.
16 ára aldurstakmark er á bæði
grunnnámskeiðin.
„Neyðar- og sjálfsvörn ISR snýr
ekki bara að átökunum sjálfum
heldur einnig tengdri taktík. Hvernig
við forðumst átök og komum í
veg fyrir að eldfimar aðstæður
stigmagnist. Hvernig við staðsetjum
okkur í umhverfinu og nýtum okkur
það. Hvernig við beitum okkur í
samræmi við þá lagalegu ábyrgð
sem hvílir á okkur. Lærðu að
verjast ofbeldi eins og það gerist í
raunveruleikanum, þar sem menn
svífast einskis og enginn leikdómari
stoppar þá af.“
Sjálfsvörn og öryggistök (ISR
CLUTCH) snýst um að verjast
ofbeldi eins og það á sér stað í
raunveruleikanum. Notast er við
glímutök, fellur, hengingar og högg
til að yfirbuga árásaraðila þar
sem rík áhersla er lögð á að beita
alltaf vægasta úrræði sem völ er á.
Námskeiðið er haldið sunnudaginn
12. janúar og er kennt kl. 12.00–18.00
auk tveggja kennslustunda með
framhaldshóp í vikunni sem fylgir.
Sjálfsvörn fyrir konur (ISR CAT)
var í fyrstu hannað fyrir konur
sem starfa fyrir leyniþjónustu og
sérsveitir í Bandaríkjunum. Það var
hannað með það fyrir augum að
konurnar gætu varið sig sjálfar og
komið sér undan árásaraðilum, eða
í versta falli varist þar til aðstoð
bærist. Í ISR CAT er lögð áhersla á
að forðast og koma sér undan stærri
og sterkari árásaraðila. Notast er
við leysitök, fellur, hengingar, högg
og ýmis bolabrögð til að koma
sér undan. Hefðbundin íþróttaföt
duga, en einnig er gott að hafa
með gamla peysu sem má rifna,
tannhlíf og MMA-hanska. Næsta
grunnnámskeið í ISR CAT verður
haldið sunnudaginn 26. janúar og
er kennt kl. 12.00–18.00 auk tveggja
kennslustunda með framhaldshóp í
vikunni sem fylgir.
Flutt í glæsilegt húsnæði
Sporthússins
ISR Matrix flutti þann 1. september
í Sporthúsið, Dalsmára 9–11, 200
Kópavogi, þar sem er sérstakur
æfingasalur fyrir starfsemina. Því
fylgir frábær aðstaða og þjónusta
við iðkendur og fyrirtæki í þjálfun
hjá stöðinni. Fullur aðgangur að
lyftinga- og tækjasal fylgir nú áskrift
að ISR og að sjálfsögðu afnot
af búninga- og sturtuaðstöðu,
heitapotti og gufu.
Skoðaðu möguleikana á isrmatrix.is
Sími: 862-0808
Netpóstur: isrmatrix@isrmatrix.is
Facebook: ISR Matrix Iceland
Ljósmynd: Sigurjón Magnússon.