Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Qupperneq 54
R
itstjóri DV bankar á dyr í reisulegu
húsi í vesturbæ Reykjavíkur í miðj-
um stormi. Viðeigandi að vindar
geisi í þann mund sem ritstjóri fer á
fund völvunnar til að skyggnast inn í nýja
árið.
Völvan er dul á svip og býður ritstjóran-
um varla góðan daginn. Það er þungt yfir
henni, hún er í hálfgerðum trans. Hún vill
engar málalengingar. Kona að detta í miðj-
an aldur, í víðum gallabuxum og prjónaðri
peysu. Ósköp venjuleg, þannig séð, þótt
innra með henni búi yfirnáttúrulegir kraft-
ar. Hún vísar ritstjóra til sætis og eina sem
hún fer fram á er að allt sem hún segi verði
handskrifað á blað. „Engin upptökutæki
hér,“ segir hún lágum rómi. „Ég hef aldrei
vanist slíkum apparötum.“
Ritstjóri sest niður andspænis völvunni
sjálfri. Hann ætlar að brydda upp á sam-
ræðum en völvan sýnir það með líkams-
tjáningu sinni að hún hafi engan tíma fyrir
svoleiðis kurteisi. Hún vill koma sér beint
að efninu.
Náttúran stillt
„Árið sem nú fer í hönd mun fara rólega af
stað veðurfarslega, mun heilsa okkur stillt
og bjart, en á miðjum vetri verður veðrátt-
an óblíð, sérstaklega sé ég febrúar og mars
umhleypingasama og mun snjór verða
óvenju mikill víða um land,“ segir völvan.
Hún ræskir sig, fær sér vatnssopa og bætir
við að Íslendingar eigi ekki eftir að upplifa
annan eins storm eins og þann sem geis-
aði um miðjan desember. Varðandi aðrar
náttúruhamfarir virðist sem náttúran ætli
að vera óvenju stillt á nýja árinu.
„Ég sé ekki stórt eldgos á árinu, en
nokkuð verður um smærri jarðskjálfta og
einn nokkuð stóran norðanlands. Sá jarð-
skjálfti mun valda veraldlegu tjóni en
ekkert líf mun týnast. Hins vegar tekur
uppbyggingin langan tíma og þar munu
Norðlendingar fyrst finna fyrir samtaka-
mætti sínum, og raunar þjóðin öll. Tíðar-
far sumarsins verður gott víðast hvar um
landið, sólríkt og gjöfult.“
MYND: PEXELS.COM
54 27. desember 2019Völvuspá 2020
Umhleypingar
og róstur – aftur
n Hrottaleg og óvenjuleg morð n Veikindi hrjá fræga fólkið n Ekkert eldgos
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári