Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Blaðsíða 60
Árið hennar Ernu Ýrar
Völvan vill vinda sér í umhverfismál-
in. Hún hreytir því í ritstjórann
að sjálf sé hún „það sem unga
fólkið vill kalla afneitun-
arsinna.“ Hún trúir því
samt sem áður að hlýn-
unin sé af mannavöld-
um, þótt hún sé ekki
viss um að jörðin glat-
ist.
„Þú verður að
muna að ég er eldri
en þú. Allt mitt líf hef-
ur einkennst af ógn;
ósonlagið, kjarnorkuvá,
stríð og fjármálahrun. Ég
er alveg hætt að trúa þess-
um dómsdagsspám,“ segir hún og
heldur áfram.
„Áróðurinn um hlýnun jarðar heldur áfram, en þó
meira ígrundaður framburður en á síðustu árum. Jarðar-
búar verða margir enn duglegri að flokka og vera um-
hverfisvænir, gott mál, en menn átta sig betur á að hlýn-
unin er sveiflukennd eins og dæmin sanna úr fortíð
jarðarinnar. Við skulum því vera umhverfisvæn, en ekki
öfgakennd, í þessu máli
sem mörgum öðrum.“
Hún opnar aðra
gosdós, sem er
nú ekki beint
umhverfis vænt, og
heldur áfram.
„Fólk eins og
Stjörnu-Sævar,
Andri Snær og ungir
aktífistar þurfa að
endurskoða sinn
málflutning ef þeir
ætla að ná til fólksins. Eins og stend-
ur er almenningur hættur að nenna
að hlusta á þessar predikanir, þótt ef-
laust sé mikið til í þeim. Þetta fólk þarf
að breyta um taktík í staðinn fyrir að hrauna
yfir Ernu Ýri Öldudóttur blaðamann. Sitt sýn-
ist hverjum um Ernu Ýri en hún býr yfir
sannfæringarkrafti. Þótt ég sé ekki
sammála henni þá nær hún að rök-
styðja mál sitt ágætlega og er mikil
ógn í augum umhverfissinna. Tak-
ið eftir Ernu Ýri á nýju ári – hún á
eftir að ná langt.“
Undarlegt Alþingi
Við sitjum við stofuborðið og völvan verð-
ur einstaklega myrk í máli þegar stjórn-
málin ber á góma.
„Á Alþingi ríkir undarlegt ástand þar
sem heilindi hafa sennilega aldrei verið
minni, menn níða skóinn hver af öðrum
ef færi gefst. Fá þörf mál verða á dagskrá
og enn færri ná afgreiðslu þannig að segja
má að vorþingið verði sami grautur í sömu
skál flesta daga,“ segir hún.
„Bjarni Benediktsson á erfitt ár fram
undan á nánast öllum vígstöðvum. Hann
ræður illa við formannshlutverkið í Sjálf-
stæðisflokknum og fjármál eru að valda
honum vandræðum. Ég held þó að hjóna-
bandið haldi á þeim bæ. Bjarni hættir sem
formaður Sjálfstæðisflokksins þegar hann
missir Svanhildi Hólm í klær RÚV. Það
fyrsta sem hann gerir þegar hann tilkynn-
ir afsögn sína er að mæta í drottningar-
viðtal í Mannlífi til að reyta Davíð Odds-
son til reiði í Hádegismóum. Það á eftir
að draga dilk á eftir sér. Formannskjörið í
Sjálfstæðisflokknum verður spennandi og
margir bjóða sig fram. Enn og aftur verð-
ur Páll Magnússon fúll yfir að hreppa ekki
hnossið, en það verður ung kona sem kos-
in verður. Valið stendur á milli Þórdísar
Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Ás-
laugar Örnu. Hins vegar á nýr kandídat,
sem fáir þekkja, eftir að stríða þeim að-
eins. Vandræðagangur sem reynt er að
breiða yfir af fremsta megni verður í póli-
tískum flokkum vegna foringjaleysis. Verst
er þar ástandið í Sjálfstæðisflokknum en
litlu skárra á mörgum öðrum stöðum.
Katrín Jakobsdóttir á ekki síður erfitt
og ræður ekki við eitt né neitt. Hún sér
eftir ákvörðunum sínum síðustu tvö árin
en þrjóskan blæs í hana lífi. Hún setur
fram eitt þingmál í kynningarskyni til að
bæta ímynd sína. Það springur í andlitið á
henni.
Lilja Alfreðsdóttir er best sett af ráð-
herrunum okkar. Hún kemur alltaf
„Áróðurinn um
hlýnun jarðar
heldur áfram, en þó
meira ígrundaður
framburður en á
síðustu árum.
„Vandræða-
gangur sem
reynt er að breiða
yfir af fremsta
megni verð-
ur í pólitískum
flokkum vegna
foringjaleysis
60 27. desember 2019Völvuspá 2020
Erna Ýr / skjá-
skot RUV
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra
Andri Snær
Sævar Helgi Bragason
MYND: DV/HANNA ANDRÉSDÓTTIRMYND: DV/EYÞÓR ÁRNASON