Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Síða 84
84 27. desember 2019STJÖRNUSPÁ
Happatölur: 10, 80, 93
Happadagur: Föstudagur
Ástin Þær vogir sem hafa verið að glíma við erfið-
leika í ástarsamböndum þurfa ekki að hafa áhyggj-
ur af þeim árið 2020. Þetta leysist allt og við blasa
bjartari tímar – með eða án maka. Ekki gleyma þeim
lexíum sem þú hefur lært síðasta árið – það á við öll
samböndin í lífi þínu. Einhleypar vogir kæra sig ekk-
ert um ástina en hún gæti bankað upp á. Þá þarft þú
að vera viðbúin/n því að velja vel og láta ekki aðra
ráðskast með þig.
Framinn Þú hefur meiri löngun til að vinna mikið, en
ekki aðeins í þínu aðalstarfi heldur einnig í áhuga-
máli þínu. Það er eitthvert áhugamál sem togar ræki-
lega í þig og þú skalt láta undan og láta slag standa.
Þetta áhugamál tengist vinnu með höndunum og
er það líkt og hugleiðsla fyrir þig. Í byrjun árs kemur
nýtt og spennandi atvinnutækifæri upp í hendurn-
ar á þér sem þú ættir að skoða gaumgæfilega áður en
þú stekkur á vagninn.
Fjármálin Engin stórútgjöld eru fyrirsjáanleg, allavega
ekki fyrstu mánuði ársins. Því hefur þú nóg á milli
handanna og hefur þróað með þér betra vit fyrir pen-
ingum. Þú eyðir peningum í þá sem þú elskar, og hef-
ur alltaf gert það. Það er ekkert að fara að breytast.
Heilsan Ekki láta græðgina verða þér að falli. Láttu
sykraðan og feitan mat vera og finndu hreyfingu sem
þú hefur gaman af.
Happatölur: 19, 23, 63
Happadagur: Laugardagur
Ástin Það er líkt og þú hafir losnað úr fjötrum fortíðar,
sem er dásamleg tilfinning. Nú tekur við ár ástríðunn-
ar þar sem þú hefur nóg af orku og ást til að gefa. Þú
kynnir þér nýjar og spennandi leiðir til að upplifa
unað og heill heimur opnast. Hvort sem þú ert í sam-
bandi eður ei þá á eitthvað stórt eftir að gerast á árinu,
til dæmis nýtt barn eða brúðkaup. Þetta ár mun líða
hjá hraðar en þú getur ímyndað þér og því skaltu nýta
hvert augnablik og njóta.
Framinn Þér leiðist í vinnunni og kemur litlu í verk.
Þetta þýðir bara eitt: Þú verður að skipta um vinnu.
En landslagið á atvinnumarkaði er ekkert til að hrópa
húrra yfir og því dregur þú lappirnar með þessa stóru
ákvörðun. Það er leti að hrjá þig og þú verður að finna
leiðir til að sporna gegn henni – annars dregur hún þig
niður í svaðið.
Fjármálin Þú ert frekar nægjusöm/samur og því hafa
fjármál aldrei vafist fyrir þér. Í þeim efnum er lítið að
frétta árið 2020 og lífið gengur sinn vanagang.
Heilsan Þú skalt nýta fyrstu mánuði ársins í að taka
mataræðið í gegn. Þú munt finna stóran mun á þér
ef þú gerir það. Þú leitar til sérfræðings sem segir þér
hvernig þú átt að borða miðað við blóðflokk. Það mun
skipta sköpum fyrir orkustigið í líkamanum.
Happatölur: 27, 49, 94
Happadagur: Sunnudagur
Ástin Hvort sem þú ert einhleypur elsku bogmað-
ur eða lofaður þá er árið 2020 mikið breytingaár. Ef
þú ert einhleypur þá er þetta tilvalið ár til að leita
að nýjum maka því það er svo mikil ást í loftinu. Ef
þú ert lofaður þá þýðir það ekki að þú skiljir held-
ur fremur að þú leitir hjálpar eða ráðgjafar til að laga
það sem er aðeins bogið, áður en það brotnar. Það er
engin skömm í því!
Framinn Þér vegnar vel í vinnunni – betur en þér
hefur gengið undanfarin ár. Það er einhver skýrleiki
og æðruleysi sem umlykur þig og þú tekur á öllum
vandamálum strax í staðinn fyrir að fresta þeim. Þú
vinnur mikið og ert oft þreytt/ur eftir vinnu. Það ger-
ir þig leiða/n en þú verður að sama skapi að finna
einhverja dægradvöl til að hafa gaman eftir að þú
stimplar þig út á daginn.
Fjármálin Vegna þess að þú vinnur svo mikið þá
uppskerðu vel. Þú kannski syndir ekki í seðlum, en
í fyrsta sinn á ævinni áttu meira en nóg til að lifa af.
Það er stórkostleg tilfinning.
Heilsan Fylgstu vel með meltingunni því þú gæt-
ir verið með einhvers konar kvilla eða sjúkdóm sem
gerir það að verkum að þú getur ekki borðað hvað
sem er. Reyndu að borða meira af trefjum og leitaðu
til læknis.
Happatölur: 44, 46, 69
Happadagur: Fimmtudagur
Ástin Þær steingeitur sem hafa verið stutt saman geta
hlakkað til ársins 2020. Það er ár breytinga og stórra
ákvarðana; flytja inn saman, búa til börn, trúlofa sig.
Það er svo mikil ást í loftinu og þú ert tilbúin/n til að
binda þig. Í langtímasamböndum steingeitarinnar
verður hins vegar eitthvað að breytast svo hún nenni
að gefa meiri ást. Leitaðu til vina þinna og fáðu ástar-
ráð, því nánast öllu er hægt að bjarga ef gripið er inn í
nógu snemma.
Framinn Þú ert einbeittari og orkumeiri í vinnunni.
Þú færð meira krefjandi verkefni og færð að kynn-
ast nokkrum viðskiptavinum betur, jafnvel mynda
vinasambönd. Þú gleymir samt ekki að sambönd við
vinnufélaga eru einnig mikilvæg og þú gerir í því að
reyna að bæta þau, sem á eftir að skila sér í góðum ár-
angri almennt í vinnunni.
Fjármálin Þú gengur í gegnum erfitt tímabil fjárhags-
lega og þér reynist erfitt að koma þér upp úr lægðinni.
Þú ert samt svo klók/ur að þú getur nánast hvað sem
er, þannig að ekki örvænta.
Heilsan Haltu áfram að gera það sem þú hefur verið að
gera – það er að virka!
Happatölur: 17, 28, 42
Happadagur: Miðvikudagur
Ástin Lofaðir vatnsberar eru einstaklega ástríðufullir
þetta árið og finna upp á nýjum og spennandi leið-
um til að láta logann brenna sem skærast. Einhleyp-
ir vatnsberar leita að hinni einu, sönnu ást þetta árið
eftir marga froska í fortíðinni. Sú leit gengur með af-
burðum vel og gefur af sér samband seinnipart árs
sem er til langtíma, jafnvel að eilífu.
Framinn Þú þarft að varast að vera of hvatvís í
vinnunni eða skóla. Þar safnast saman alls kyns ólíkt
fólk og þú verður að virða að það er ekki allir eins og
þú. Í vinnunni gengur allt á afturfótunum í kringum
þig og þú kemur litlu í verk fyrri part árs. Um miðbik
ársins verður áfall á vinnustaðnum sem breytir öllu
og fær þig til að hugsa þér til hreyfings.
Fjármálin Það er ekki langt síðan þú glímdir við
skuldahala. Nú geturðu hins vegar borgað allar
skuldir og fyrir það sem þú þarft. Passaðu þig vel að
lenda ekki í skuldafeni aftur.
Heilsan Þú hefur verið að glíma við einhverja kvilla
sem hafa færst í aukana. Nú er kominn tími til að þú
leitir til sérfræðings og fáir bót þinna mála – áður en
það er of seint.
Happatölur: 36, 70, 100
Happadagur: Mánudagur
Ástin Þig þyrstir í ævintýri og stuð en maki þinn gæti
haft allt aðrar þarfir en þú. Ætlar þú að setja þínar þarf-
ir í fyrsta sæti eða sætta þig við það sem þú hefur? Það
er stóra spurningin sem þú þarft að svara og það sem
fyrst. Þú skalt síðan passa þig á afar heillandi mann-
eskju sem getur hvatt þig til að fremja hjúskaparbrot.
Ekki gera það elsku fiskur – ljúktu hinu sambandinu
áður en þú hoppar upp í rúm með einhverjum öðrum.
Framinn Þú ert í frábærri vinnu þar sem hæfileikar
þínir blómstra. Seinni part árs kemur hins vegar nýr
aðili inn á vinnustaðinn sem ógnar þér að einhverju
leyti. Það væri dæmigerður þú að leggja árar í bát en
þú finnur fyrir nýjum krafti og berst fyrir þínu.
Fjármálin Þú spáir lítið í fjármálin sem gæti orðið til
þess að þú lentir í kröggum. Ekkert alvarlegt, en væri
betra að sleppa við það. Passaðu þig!
Heilsan Þú tekur eftir að slæmir ávanar þínir hafa
slæm áhrif á líf þitt. Á vormánuðum einsetur þú þér að
sleppa þessum ávönum og tileinka þér nýja og betri.
Þú sérð ekki eftir því! Ég sé þig breyta út af vananum og
keppa í keppnisíþrótt með góðum árangri.
Vog
23. sept–22. okt
Bogmaður
22. nóv–21. des
Steingeit
22. des–19. janúar
Fiskar
19. febrúar–20. mars
Sporðdreki
23. okt–21. nóv
Vatnsberi
20. janúar–18. febrúar