Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 92

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Page 92
92 FÓKUS 27. desember 2019 Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða Brúðkaup ársins Þekktir Íslendingar duglegir að gifta sig – Gylfi og Alexandra giftust á Ítalíu Loksins Álfrún Pálsdóttir, kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands, gekk að eiga knattspyrnukappann Viktor Bjarka Arnarsson í lok janúar. Fögnuðu gestir með hjónunum í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi en Álfrún og Viktor hafa verið saman um margra ára skeið. Samband þeirra hefur getið af sér tvö börn, dreng og stúlku. Kúnstir á kirkjutröppum Hagfræðingurinn Dýri Kristjánsson, sem hefur gert garðinn frægan síðustu ár í hlutverki Íþróttaálfsins úr Lata- bæ, kvæntist unnustu sinni, Ingibjörgu Sveinsdóttur, í Frí- kirkjunni í Reykjavík. Dýri byrjaði tíu ára að æfa fimleika hjá Gerplu og hefur unnið til fjölda verðlauna á ferlinum. Það var svo árið 2006 sem Latibær fékk Dýra til liðs við sig og kom það því kannski ekki á óvart að Dýri hafi staðið á annarri hendi á kirkjutröppunum áður en hann játaðist Ingibjörgu sinni. Brúðkaup ársins Óumdeilanlegt brúðkaup ársins var þegar að knattspyrnukappinn Gylfi Þór Sigurðsson kvænt- ist Alexöndru Helgu Ívarsdóttur á Ítalíu. Ekkert var til sparað og skemmtu margir þjóðþekktir einstak- lingar langt fram á nótt, þar á meðal Sólmund- ur Hólm, Bríet, Friðrik Dór, Jökull Júlíusson úr Kaleo, Aron Can og Herra Hnetusmjör. Stjörnurnar streymdu í brúðkaupið sem stóð yfir í nokkra daga. Þriggja daga veisla Leikkonan María Ellingsen og ljósmyndarinn Christopher Lund létu pússa sig saman í Færeyj- um. Stóðu herlegheitin yfir í þrjá daga að færeysk- um sið. María klæddist hvítri útgáfu af færeyska þjóðbúningnum en slörið var saumað hjá Eðal- klæðum. Christopher klæddist skoskum Walker Slater-ullarjakkafötum frá Kormáki og Skildi. Sami dagur Það var mikið um dýrðir daginn sem tvö tónelsk pör gengu í það heilaga; Salka Sól Eyfeld og Arn- ar Freyr Frostason annars vegar og Sig- ríður Eyrún Frið- riksdóttir og Karl Ol- geirsson hins vegar. Salka Sól og Arnar giftu sig í Hvalfirði en Sigga og Kalli í Há- teigskirkju. Skál! Áhrifavaldurinn Sólrún Diego gekk að eiga sinn heittelskaða, Frans Veigar Garðarsson, við hátíð- lega athöfn í ágúst. Eftir athöfnina var blásið til veislu á Grand Hótel þar sem hjónin stigu sinn fyrsta dans við Skál fyr- ir þér sem sjálfur Friðrik Dór spilaði fyrir brúð- hjónin og veislugesti. Þau Sólrún og Frans hafa ver- ið saman um langt skeið og eiga tvö börn saman, drenginn Maron og dótturina Maísól. Glóandi Kokkurinn Sólveig Ei- ríksdóttir og Elías Guð- mundsson, oft kennd við veitingastaðinn Gló, gengu einnig í það heilaga í ágúst og fögn- uðu með vinum og ætt- ingjum. Solla og Elli hafa verið saman um árabil og hafa brallað ýmislegt saman í veitingageiran- um. Giftu sig í villu Þorbjörg Alda Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, og Karl Sigurðsson, Baggalútur og fyrrverandi borgarfulltrúi, gengu í það heilaga í villu í ítalska smá- bænum San Severino Marche. Tobba og Kalli voru um- kringd fjölskyldu og vinum er þau játuðust hvort öðru eftir tæplega þriggja ára trúlofun og enn lengra ástar- samband. Kalli og Tobba eiga saman tvær dætur, þær Regínu og Ronju Guðbjörgu, og tóku þær virkan þátt í gleðinni. Hjón í stuði Álfrún og Viktor gengu loksins í það heilaga. Mynd: Skjáskot Instagram Hraustur Dýri á kirkjutröppunum. Mynd: Skjáskot Instagram Á eftir bolta kemur brúðkaup Alexandra og Gylfi. Nóg að gera Tobbu og Kalla fellur ekki verk úr hendi. Mynd: Skjá- skot Instagram Janúar F jölmargir þekktir Íslendingar létu pússa sig saman á ár- inu sem er að líða og voru brúðkaupin jafn misjöfn og þau voru mörg. Hér eru nokkur af þeim helstu. Maí Júní Júlí Ágúst September MYND: SKJÁSKOT/INSTAGRAM @SALKAEYFELD M Y N D : S K JÁ SK O T IN S TA G R A M MYND: SKJÁSKOT AF INSTAGRAM STORY @GURRYJONS MYND: SKJÁSKOT INSTAGRAM @RAWSOLLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.