Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2019, Side 94
94 FÓKUS 27. desember 2019
Hver var fyrsta vinnan þín?
Ég er alin upp í sveit og þar af leiðandi var ég send ansi ung út að gefa hestunum og
smala saman kindum. Eitthvað var lítið um að maður fengi laun fyrir það. Fyrsta
launaða vinnan mín var hins vegar á gistiheimili þar sem ég þreif herbergi og bar fram
morgunmat.
Hvar líður þér best?
Mér líður best í bröns hjá mömmu. Þá kemur öll fjölskyldan saman og það er alltaf
mikið hlegið og mjööög mikið borðað. Mömmu hefur oft verið líkt við nornina í Hans
og Grétu því hún hættir ekki reyna að koma mat í fólk.
Hvað óttastu mest?
Ég hef alltaf verið dauðhrædd við hvali. Þetta eru friðsemdardýr en þegar ég fæ martraðir þá
eru þær yfirleitt um hvali.
Hvert er þitt mesta afrek?
Þegar ég var átta ára og náði að reka, alein, eina bandbrjálaða kvígu inn í fjós þegar mamma og
pabbi voru búin að gefast upp.
Svo líka kannski þegar ég opnaði stúdíóið mitt, Stúdíó Lovísa Tómas, og þegar ég tók
ákvörðun um að verða fósturforeldri.
Hver er frægasti einstaklingurinn í símaskránni þinni?
Ætli það sé ekki hún Sigga Kling og síminn hennar er 899-0889. Endilega sláið á þráðinn.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Besta ráð sem ég hef fengið er frá góðri vinkonu minni og fyrrverandi vinnuveitanda,
Önnu Kristínu, eiganda Kjóla og Konfekts. Það var að hafa trú á eigin getu og segja já við
þeim verkefnum sem mér bjóðast þótt þau vaxi mér í augum.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Að ryksuga. Það er alveg glatað. Þyrfti að fá mér svona ryksuguróbot.
Hver er fyrirmynd þín í lífinu?
Mamma. Magnaðri einstakling er ekki hægt að finna. Hún er algjör klettur, góðhjörtuð
og gefur manni alltaf eitthvað gott að borða.
Besta lag allra tíma?
Peanut Butter með RuPaul.
Mest óþolandi jólalagið?
Heims um ból.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Róaðu þig“. Hann róar mig svo sannarlega ekki.
Hverjir eru mannkostir þínir?
Það er stutt í gleðina og grínið, ég er þrautseig og traust.
En lestir?
Ég er mikill „introvert“ og getur það virkað fráhrindandi á suma. Verð að minna mig á að brosa því
„resting bitch face“ er á alvarlega háu stigi hjá mér.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Eldamennskunni hennar mömmu og verkvitinu hans pabba. Hef líka alltaf viljað getað dansað. Væri
gaman að geta gert eitthvað annað en smellt fingrum á dansgólfinu.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Að hætta í fastri vinnu og fara að vinna sjálfstætt. Stundum maður þarf að þora að taka áhættu.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Það er að halda áfram að hanna og sauma fyrir frábært listafólk og svo framleiða fyrir stúdíóið. Ég er alltaf
með eitthvað af fötum sem eru til sölu þar. Ég framleiði alltaf í mjög takmörkuðu upplagi. Mér finnst svo
gaman að geta sagt: „þú ert ein af fimm sem eiga svona flík“.
Lovísa Tómasdóttir, oft kölluð DJ
Lolla Tomm, er klæðskeri, förðunar-
fræðingur, hönnuður og „föndurkerl-
ing“ að eigin sögn. Nýlega opnaði
hún förðunarstúdíó við Lauga-
veginn, Stúdíó Lovísu Tómas, en
listakonan er mætt í yfirheyrslu og
undirstrikar meðal annars skaðsemi
orðanna „Róaðu þig.“
YFIRHEYRSLAN
Lovísa
Tómasdóttir
„Resting bitch
face“ á alvar-
legu stigi
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is