Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Qupperneq 37
Gæði08. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
Íslendingar velja endurnýttar
jólagjafir fyrir umhverfið!
Barnaloppan er heldur betur kærkomin bylting á íslenskum markaði en hjónin Guðríði
Gunnlaugsdóttur og Andra Jónsson
dreymdi um að fara í rekstur
sem hjálpaði umhverfinu. „Það er
ótrúlegt hvað fólk hefur tekið vel á
móti okkur. Að opna Barnaloppuna
er örugglega ein besta og
skemmtilegasta ákvörðun sem við
höfum tekið,“ segir Andri.
Endurnýtt jól fyrir móður jörð!
Íslendingar verða sífellt meðvitaðri um
umhverfið og sýna það í verki með því
að flokka flöskur, plast, málm og pappa,
vera með moltu og jafnvel kjúklinga í
garðinum. „Við verðum líka sífellt betri í
því að endurnýta. Desember í fyrra kom
okkur til dæmis skemmtilega á óvart
en þá kom fólk hingað inn í stórum stíl
til að kaupa jólafatnað á börnin sín og
jólagjafir handa börnunum í kringum
sig. Í ár vonumst við til þess að það verði
enn meira um að fólk gefi hvert öðru
endurnýttar jólagjafir og ætlum við að
bjóða upp á innpökkunarborð í verslun
Barnaloppunnar þar sem má pakka
gjöfum í umhverfisvænar gjafaumbúðir.
Til þess að gera lífið einfaldara
munum við einnig bjóða fólki að
kaupa gjafir hjá okkur til þess að
setja undir jólatréð í Smáralind. Þá
kaupir fólk gjafir hjá okkur og við
förum með þær upp í Smáralind
og setjum þær undir tréð. Það er
svo falleg hugmynd að gefa þeim
börnum, sem minna mega sín,
jólagjafir og enn fallegra er að
gjafirnar séu umhverfisvænar.
Börnin elska Barnaloppuna.
Með þessu vonumst við til þess að
ýta enn frekar undir að fólk kaupi
notaðar jólagjafir. Ef við, foreldrarnir,
gefum notaðar gjafir þá munu
börnin okkar alast upp við að þetta
sé hinn eðlilegasti hlutur. Það eitt
og sér er þróun í rétta átt. Gott
fyrir budduna og enn betra fyrir
umhverfið og móður jörð.“
Hugmyndin kviknaði í DK
Fjölskyldan bjó um tíma í Danmörku
og nýtti sér mjög mikið flóamarkaði
þar. Það var síðan mánuði áður en
þau fluttu aftur heim til Íslands að
hugmyndin að Barnaloppunni kviknaði.
„Við prófuðum sjálf að selja fatnað
og fleira af stelpunum okkar á sams
konar loppumarkaði í Danmörku.
Þessi tegund af markaði er að finnskri
fyrirmynd og því ekki á hverju strái
á Norðurlöndunum og okkur fannst
þetta algerlega vanta
á Íslandi.
En snilldin við Loppuna er
að við sjáum alfarið
um söluna
og sinnum
viðskiptavinum
verslunarinnar
eftir að
leigjendur hafa sett
básana sína upp.
Svo má fylgjast
með sölunni
í rauntíma í
gegnum símann
eða tölvuna.
Okkur varð strax
ljóst að það var
mikil þörf á svona
verslun og við erum
afar þakklát fyrir
frábærar móttökur. Það
er líka virkilega gaman að
sjá hvað Íslendingar
eru orðnir
meðvitaðir um
umhverfisþáttinn
og finnst gaman
að taka þátt
með því að
hugsa vel um
litlu „búðina
sína“ hjá okkur.
Við viljum líka
trúa því að við
höfum átt smá þátt
í að breyta kúltúr og
kauphegðun Íslendinga,
bæði með því að bjóða upp
á auðveldari leið til að endurnýta og
losa sig við varning, sem og kaupa
„second hand“ vörur á frábæru verði.“
Spöruðu 140.000 kr.
Það er ótrúlegt hversu
miklar fjárhæðir má spara
með því að kaupa notað
í stað þess að fjárfesta
í öllu nýju. Þegar um
nýbakaða foreldra er
að ræða þá
getur listinn
yfir allt sem
þarf farið
upp úr öllu
valdi. Það vantar
samfellur, barnavagn,
bílstól, föt, leikföng,
vöggu og svo margt
fleira. „Það er gaman að
að segja frá því að það
kom til okkar par fyrir stuttu
sem átti von á sínu fyrsta
barni. Þau höfðu útbúið
langan lista af hlutum
sem átti að kaupa fyrir
barnið á meðan
faðirinn, sem var
flugmaður væri
í í 200.000
krónur miðað
við verðlagið
úti. Þau kíktu í
Barnaloppuna
af rælni til
að athuga
hvort þau
fyndu eitthvað
af listanum. Eftir
að hafa verið hér í tvo
tíma komu þau að
kassanum og sögðu
okkur að þau hefðu
náð að strika allt
út af listanum
fyrir 60.000
krónur! Þau
spöruðu
sér þarna
140.000
krónur, og
það miðað
við verðið í
Bandaríkjunum.
Algjörlega
frábært.“
Nánari upplýsingar á
www.barnaloppan.is
Fylgstu með okkur á Facebook
og Instagram: Barnaloppan –
Barnaloppan
Barnaloppan, Skeifan 11d,
108 Reykjavík
Sími: 620-2080
Vefpóstur: info@barnaloppan.is