Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Qupperneq 38
38 8. nóvember
SAKAMÁL
FRANSKT ELDHÚS MEÐ SNÚNINGI
n Rosso og félagar hans voru iðnir við bankarán n Koddahjal kærustunnar hafði morð í för með sér n Sektarkenndin náði yfirhöndinni að lokum„Ég
hefði
þó kosið að
hann hefði
verið drep-
inn með kúlu í
höfuðið
F
rakkarnir Michel Renard og
Philippe Rosso voru góð-
ir vinir. Svo góðir að haft
var á orði að ekki kæmist
hnífurinn á milli þeirra. Þeir voru
krúnurakaðir, hávaxnir og hvor-
ugur þeirra var maður margra
orða. Þónokkur ár skildu þessa
nánu vini; Renard var 42 ára en
Rosso 29 þegar þessi saga átti sér
stað árið 1998.
Pólitík og bankarán
Þannig var mál með vexti að
kumpánarnir voru meðlimir í
Front Nationale-stjórnmála-
flokknum franska og báðir af heil-
um hug og gott betur.
Renard var heimavanari í
flokknum, vann í höfuðstöðvum
hans, það er þegar hann var ekki
önnum kafinn við bankarán eða
viðlíka iðju. Rosso var nýliði, ný-
lega laus úr hernum, og hafði
gengið í flokkinn í einhverju
bríaríi eftir að kærastan hafði sagt
skilið við hann.
Þriðji félaginn
Leiðir þeirra félaga höfðu legið
saman og svo vel vildi til að
Renard var þá á höttunum eft-
ir félaga í glæpina. Skömmu síð-
ar kynnti Rosso gamlan vin sinn,
Luc Onfray, fyrir Renard.
Onfray var af öðru sauðahúsi
en hinir tveir. Hann var vel gef-
inn, kunni að meta klassíska tón-
list og var lögfræðimenntaður.
Onfray var reyndar einnig álíka
vel að sér í meðferð skotvopna og
innviða lögfræðinnar og því gekk
þremenningunum ákaflega vel í
þeirri iðju að ræna banka í suður-
hluta Frakklands, að stærstum
hluta í grennd við Marseille.
Rosso og Alexandra
Hvað sem vinskap Renard og
Rosso leið, þá var ljóst að stund-
um var grunnt á því góða hjá
þeim.
Nú verður kynnt til sögunnar
Alexandra Martyn, ung, falleg
kona með ljósa hárið bundið í
tagl. Rosso hitti Martyn í fyrsta
skipti í höfuðstöðvum Front
Nationale. Með þeim tókust ást-
ir, en það flækti málin þónokkuð
að Alexandra Martyn var stjúp-
dóttir Renard, því í stað þess að
verja kvöldum í höfuðstöðvum
flokksins voru Rosso og Martyn í
rekkjubrögðum á heimili Rosso í
Nice.
Koddahjal veldur vinslitum
Kvöld eitt þegar Rosso og Martyn
köstuðu mæðinni eftir ástaleik
breyttist koddahjalið hjá Mar-
tyn. Hún hafði ýmislegt að segja
Rosso um stjúpföður sinn og af
orðum hennar mátti skilja að ekki
væri allt með felldu í þeirra sam-
skiptum.
„Hann hefur beitt mig kyn-
ferðislegu ofbeldi svo árum skipt-
ir. Ég get ekki sagt þér allt sem
hann hefur gert mér,“ sagði Mar-
tyn við Rosso.
Eftir smá koddahjal í viðbót
upplýsti Martyn þó Rosso um
ýmislegt og þegar upp var staðið
sauð á Rosso í garð þessa félaga
síns.
Daginn eftir spurði Rosso Mar-
tyn hreint út: „Viltu að ég sjái um
hann?“ og svar Martyn var skýrt
og skorinort: „Já.“
Rosso leitar til Onfray
Rosso beið ekki boðanna og
setti saman áætlun. Hann sá þó
í hendi sér að hann þyrfti aðstoð
og hafði því samband við gamla
vin sinn, Onfray.
Onfray var meira en til í tusk-
ið þegar Rosso sagðist vilja kenna
Renard, stjúpföður kærustu sinn-
ar, lexíu.
Eftir á að hyggja var þetta
kannski misráðið af Rosso því
Onfray var ekki þekktur fyrir neitt
hálfkák og hafði nýlega gumað
sig af því að hafa myrt sinn eigin
föður, vott Jehova sem hafði neytt
hann til að lesa Biblíuna og bann-
að honum að eignast vini.
Dularfullt hvarf föður
Onfray sagðist hafa skorið höf-
uðið af föður sínum: „Síðan los-
aði ég mig við líkið með því að
skera það í bita og hakka allt
saman í matvinnsluvélinni.“
Hvort þetta var satt og rétt gat
Rosso ekki giskað á en fyrir lá að
faðir Onfray hafði horfið á dular-
fullan hátt árið 1995.
Rosso ákvað sem sagt að
leita liðsinnis Onfray til að tukta
Renard örlítið til – eða þannig.
Hamar í höfuðið
Þann 14. nóvember, 1998, var
Renard boðaður á fund heim til
Rosso, undir því yfirskini að ræða
þyrfti næsta rán þeirra félaga.
Þar laumaði Onfray svefn-
lyfjum í drykk Renard og þegar
það fór að hafa áhrif barði hann
Renard í höfuðið með hamri. Þar
sem Renard lá meðvitundarlaus á
gólfinu sagði Rosso að hann ætl-
aði út í búð að kaupa bakkelsi.
Þegar Rosso kom til baka að
vörmu spori var Renard liðið lík
í stofunni heima hjá honum. „Þú
áttir bara að kenna honum lexíu,
ekki drepa hann,“ sagði Rosso við
Onfray. „Hvað eigum við nú að
taka til bragðs?“
Blóðbað í baðkari
Onfray sagði Rosso að slaka á;
hann myndi sjá um þetta allt
saman. Síðan bar Onfray lík
Renard inn á baðherbergi, af-
klæddi það og setti í baðkarið. Að
því loknu hófst hann handa við
að búta líkið niður á afar kerfis-
bundinn hátt og setti bitana í
matvinnsluvélina í eldhúsinu sem
breytti öllu saman í bleika kássu.
Það reyndist Rosso ofviða að
fylgjast með handbragði vinar
síns og því sagði hann: „Ég læt
þig um þetta. Ég ætla út að kaupa
jónur.“
Á heimleið úr þeirri för kom
hann við heima hjá Alexöndru og
sagði henni að hún þyrfti ekki að
hafa áhyggjur af stjúpföður sín-
um þaðan í frá. Alexandra dreif
sig á næstu lögreglustöð og sagði
að stjúpfaðir hennar væri týndur.
Í framhjáhlaupi hafði hún á orði
að hann hefði níðst á henni kyn-
ferðislega – lengi og mikið.
Kærastan Alexandra
bar stjúpföður sínum
ekki góða söguna.