Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Qupperneq 52
52 FÓKUS 8. nóvember E yþór Bjarni Sigurðsson er einn þriggja meðlima hljómsveitarinnar Above The Lights, en sveitin sendi nýlega frá sér sína fyrstu plötu. Lögin er afar persónuleg enda er platan persónulegt uppgjör Ey- þórs við fortíðina. Above The Lights samanstendur af Eyþóri, eiginkonu hans, Kolbrúnu Þor- steinsdóttur, og Kristófer Nökkva Sigurðssyni. Eyþór ólst upp á Egilsstöð- um fram að 11 ára aldri en þá flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. „Ég man hvað það voru rosalega mikil viðbrigði. Í mörg ár kom ég ekki nálægt tónlist, það var ekki fyrr en ég var orðinn 18 ára að ég byrjaði að fikta við að spila á gít- arinn og semja lög. Frá því að ég var lítill hef ég alltaf haft löngun til að skapa tónlist, pabbi minn er trommuleikari og hef ég alltaf litið mikið upp til hans. Ég man eftir mér sem krakki á hljóm- sveitaræfingum hjá honum og þar var minn stærsti draumur að geta spilað á hljóðfæri og sungið. Ég hef alltaf haft þessa löngun til að tjá mig í listrænu formi hvort sem það er í gegnum myndlist, texta, ljóð eða lagasmíði.“ Hann var einungis 10 ára gam- all þegar hann stofnaði sína fyrstu hljómsveit. „Það er svolítið fyndið að segja frá því. Ég eiginlega þvingaði nokkra nágrannastráka til að vera með mér í hljómsveit, þeir voru ekkert neitt rosalega spenntir fyrir því. Þar sem við kunnum nákvæmlega ekkert á hljóðfæri ákváðum við að þetta skyldi vera pönkhljómsveit. Þeir voru látnir lemja á tómar Machin- tosh-dollur og potta á meðan ég barði á gítarinn og öskraði gjör- samlega úr mér lungun í kjallar- anum hjá vini mínum, sem svo óheppilega vildi til bjó á móti öldrunarheimilinu á Egilsstöð- um. Mamma vinar míns sem starfaði á öldrunarheimilinu kom hlaupandi yfir til að stöðva þessi óhljóð. Hún skammaði okkur fyr- ir að hræða gamla fólkið á heim- ilinu,“ rifjar hann upp. „Þetta var okkar eina og síðasta æfing.“ Eyþór var snemma greind- ur með mikinn athyglisbrest og ofvirkni. „Ég átti rosalega erfitt með að einbeita mér við nám og átti mjög erfitt með sjálfan mig. Ég var að glíma við mikinn kvíða og vanlíðan á þessum aldri. Það er ekkert grín að vera barn með ADHD og einhver ætlast til þess að maður sitji kyrr í 80 mínútur við að læra, en verður svo reiður ef það mistekst. Þetta er fáránleg nálgun.“ Eyþór telur að í skólakerfinu megi bæta ýmislegt þegar kemur að þjónustu við nemendur með ADHD. „Það er svo margt hægt að gera fyrir börn með ADHD. Í fyrsta lagi þarf að finna hvar þeirra strykleikar liggja og vinna með það.“ Niðurlægjandi reynsla í Folda- skóla Árið 2017 ritaði Eyþór opið bréf til stjórnar Foldaskóla, og birtust þau skrif í Stundinni. Í bréfinu gagn- rýndi hann harðlega sinn gamla grunnskóla og sagðist hafa ver- ið beitur andlegu ofbeldi af hálfu kennara skólans. Nokkrum árum áður hafði Ey- þór beðist afsökunar á slæmri hegðun sinni í skólanum en í bréfinu dró hann þá afsökunar- beiðni til baka þar sem hann taldi að ábyrgðin lægi ekki hjá honum sjálfum. „Í Foldaskóla var ég beittur andlegu ofbeldi af hálfu kennara. Hann ítrekað sendi mig út í sjoppu til að athuga hvað klukkan væri einungis til að losna við mig og hlaut mikinn hlátur nemenda við það, hann lét mig sitja heilu skóla- stundirnar við hliðina á sér við kennaraborðið þar sem ég þurfti að horfa framan í samnemend- ur mína sem glottu, einnig lamdi hann í borðið reglulega með priki og var mjög ógnandi. Hann gerði lítið úr mér ítrekað og fékk bekk- inn til að hlæja að mér,“ ritaði Ey- þór meðal annars. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Samdi lag í yfirgefnu húsi Beittur ofbeldi og niðurlægður í Foldaskóla - Leiddist út í óreglu og svaf í yfirgefnu húsi- Andleg iðkun og hugleiðsla gerðu kraftaverk M Y N D IR : E Y Þ Ó R Á R N A S O N „Ég fékk frið fyrir hausnum á mér og gat einbeitt mér í fyrsta skiptið á ævinni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.