Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Side 2
2 25. október 2019FRÉTTIR
þekktir sem eru ekki með bílpróf
Hildur Knútsdóttir
tískubloggari hefur sagt að fólk
mikli bíllausan lífsstíl fullmikið
fyrir sér en hún hefur aldrei tekið
prófið. Hún hefur opinberlega
sagt að það sé minna mál en
ætla mætti, sérstaklega með
tvö börn. Hún kann
ákaflega vel við
að sitja í strætó
og hlusta á
hlaðvörp í stað
þess að hugsa
um að sitja
föst í
umferð.
Vignir Rafn Valþórsson
leikari tilheyrir ágætri stétt
fagfólks á leikarasviði sem sér
litla þörf fyrir ökuskírteini. Mýtan
segir að leiklistarfólkið á höfuð-
borgarsvæðinu haldi sig hvort
sem er í miðbænum þar sem allt
er í góðu göngufæri.
Hlynur Páll Pálsson
framkvæmdastjóri Íslenska
dansflokksins, hefur aldrei tekið
bílpróf og herma sögur að hann
kunni prýðilega við þá ákvörðun.
Inga Sæland
formaður Flokks fólksins
og þingmaður, er mikil
landsbyggðarkona og
dugnaðarforkur. Það fylgir
starfinu að ferðast töluvert
á milli staða en þar notast
hún við aðstoð bílstjóra. Inga
er, að eigin sögn, ekki með
ökuréttindi vegna þess að hún
er sjónskert.
Hugleikur Dagsson
listamaður tilheyrir bíllausa
hópnum. Uppistandarinn
Snjólaug Lúðvíksdóttir
skaut fast á grínarann í
afmælisveislu hans. „Hann
er ekki með bílpróf af því
að það er bannað að keyra
bólufreðinn,“ sagði hún og
uppskar mikinn hlátur.
Á þessum degi,
25. október
1331 – Kogon Japanskeisari tók við
völdum.
1859 – Spánn lýsti yfir stríði við
Marokkó.
1952 – Bandaríski leikarinn Jeff
Goldblum fæddist.
2001 – Tölvuleikurinn Grand Theft
Auto III var gefinn út og olli miklum usla
víða um heim.
2012 – Fjórða plata Taylor Swift, Red,
kom út.
Fleyg orð
„Allt það besta í heimin-
um kostar engan pening.
Dýrmætasta auðlind okkar
er tíminn.“
– Steve Jobs
„Nágrannarnir ætluðu
ekki að trúa mér“
n Óboðinn gestur á Selfossi n Bergfléttan sem braust inn
K
ristínu Annýju Jónsdóttur
brá í brún þegar hún komst
að hinu undarlega í tengsl-
um við garðplöntu á heimili
hennar, en hún hefur fundið sér leið
í gegnum steypuvegg og að eldhús-
inu – og ekki í fyrsta sinn. Tegundin
sem um ræðir er bergflétta, sígræn
planta með klifurrætur sem get-
ur vaxið allt upp í tuttugu til þrjátíu
metra upp tré, kletta eða húsveggi.
Að sögn Kristínar var henni upphaf-
lega brugðið þegar hún sá að plant-
an hefði laumast inn um eldhúsið án
bersýnilegra skýringa.
Kristín, sem er sölustjóri hjá
Víkurverki og búsett á Selfossi, segir í
samtali við DV að málið sé hið furðu-
legasta og hafi hún aldrei séð neitt
þessu líkt, að nágrannar hafi verið
duglegir að kíkja til hennar til að sjá
óboðna gestinn, eins og hún segir.
„Hún er alveg ótrúleg, þessi
planta og það er ómögulegt að sjá
hvaðan hún er að koma. Hún vex al-
veg af sjálfri sér og hefur greinilega
smeygt sér í gegnum agnarsmáa rifu,
hvernig sem hún fór að því. Þetta
heldur samt áfram,“ segir hún.
„Ég var alveg gáttuð þegar ég tók
fyrst eftir þessu og hún vex nokkuð
hratt,“ segir Kristín. „Maðurinn minn
tók vegginn frá og sleit plöntuna, en
viku síðar var plantan búin að koma
sér í gegn aftur.“
Kristín bætir við að til standi að
fjarlægja aftur vegginn utan frá en
plantan hefur verið undirstaða mik-
ils glens í nágrenninu og því verið
beðið með ferlið.
„Nágrannarnir ætluðu ekki að
trúa mér fyrst. Einn smiðurinn sem
býr hér í hverfinu hélt að ég væri að
grínast þangað til hann sá þetta. Það
er mikið hlegið að þessu hér í hverf-
inu og dáðst að þessari þrautseigu
plöntu sem virðist ekkert ætla að láta
stoppa sig. Þess vegna hef ég leyft
þessu að halda sér í bili, þetta er svo
mikið grín, og það er forvitnilegt að
vita hversu mikið hún mun stækka,“
segir Kristín. n
n Í flokki tvíkímblöðunga
n Kallast einnig viðvindill eða
vafningsviður
n Fræðiheiti: Hedera Helix
n Sígræn planta með klifur-
rætur
n Getur vaxið upp í 20 til 30
metra upp tré, kletta eða hús-
veggi
n Harðgerð og þolir vel hita-
sveiflur
n Kom fyrst til Íslands frá
Skotlandi í kringum árið 1950
og var gróðursett við Hring-
braut 10, þar sem hún óx utan
á húsinu og varð frægasta
bergflétta landsins
Bergflétta
í hnotskurn