Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Side 10
10 FÓKUS 25. október 2019
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS
Nærmynd af Gísla Pálma:
n Byrjaði í neyslu ellefu ára n Varð fljótt vinsælasti rappari landsins
n „Þegar ég var 15 til 16 ára gamall var ég kominn langt út af brautinni“
R
apparinn Gísli Pálmi Sig
urðsson hefur verið mikið
í kastljósi fjölmiðla þessa
vikuna eftir að Þórdís
Árnadóttir, íbúi í Vallarási, bar
á hann og kærustu hans þungar
sakir. Sakaði hún kærustuparið
um að brjótast inn hjá henni og
stela meðal annars tölvu, lyfjum
og snyrtidóti. Þórdís hefur kært
málið til lögreglu en hefur heitið
veglegum fundarlaunum þeim
sem getur hjálpað henni að finna
þýfið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Gísli Pálmi ratar á síður fjölmiðla.
Hann var um tíma vinsælasti
rappari landsins og hefur talað
opinskátt um baráttu sína við fíkn
alla tíð.
Ólst upp í Bandaríkjunum
Gísli Pálmi er sonur Sigurðar Gísla
Pálmasonar, sem var áður kennd
ur við Hagkaup enda sonur Pálma
Jónssonar í Hagkaupum, og Guð
mundu Helenar Þórisdóttur. Gísli
Pálmi fæddist árið 1991 og ólst að
hluta til upp í Bandaríkjunum. Í
viðtali við Fréttablaðið árið 2015
sagði hann að skólagangan hefði
verið strembin þegar að fjölskyld
an flutti aftur til Íslands.
„Ég ólst að hluta til upp í
Bandaríkjunum og er því eigin
lega tvítyngdur ef svo má segja.
Slangrið kemur mikið þaðan.
Hefðbundin íslenska getur ver
ið svo stíf, svo mörkuð. Ég átti
alltaf erfitt með að vera í íslensku
tímum eftir að ég flutti heim.
Mér fannst ég aldrei kunna neitt.
Mér var sagt að ég kynni ekki ís
lensku,“ sagði hann og bætti
við að hann hefði oft skrópað í
grunnskóla, en Gísli Pálmi hefur
verið duglegur að búa til íslensk
nýyrði í sínu rappi. Á unglingsár
unum hætti hann í skóla og fetaði
vafasama braut, fulla af neyslu og
smáglæpum.
Felur grófustu hlutina
Gísli Pálmi kom síðan eins og
stormsveipur í íslenska tónlistar
senu árið 2011 þegar hann gaf
út lagið Set mig í gang, á sjálfan
þjóðhátíðardaginn. Þegar þetta er
skrifað er búið að horfa á mynd
bandið á YouTube
tvö hundruð þúsund sinnum, en
myndbandið vakti mikla athygli
á sínum tíma. Í því er Gísli Pálmi
ber að ofan og hnyklar vöðvana
fyrir framan glæsilegan, svartan
Range Roverjeppa. Í viðtali við
Fréttablaðið sumarið 2011 sagð
ist Gísli Pálmi vilja miðla sinni
stormasömu ævi í gegnum tón
listina.
„Ég nota mikið af slangri og
það gæti þetta enginn nema að
vera búinn að ganga í gegnum
það sem ég hef gengið í gegn
um — að vera búinn að hanga á
röngum stöðum síðustu tíu árin.
Þaðan fæ ég þennan orðaforða.
Það er mikið af földum skilaboð
um í textunum, sem ég segi ekki
beint út. Ég fel grófustu hlutina,
þeir koma fram í öðru formi,“
sagði hann og bætti við: „Ég var
alveg farinn í hausnum og braust
inn alls staðar, tók allt ófrjálsri
hendi — alveg í bullandi neyslu
auðvitað, rændi bílum bara til að
rúnta. Ef það var eitthvað sem ég
gerði ekki, þá er það líklegast ekki
hægt.“
Í því viðtali sagðist hann vera
búinn að snúa við blaðinu.
„Já, algjörlega. Ég fann innri
„Ég hef ekkert að fela
og hef aldrei falið neitt“
Forsíðustrákur Á forsíðu fylgi-
rits Fréttablaðsins árið 2011.
Ekki í
ástandi
fyrir barna-
skemmtun
Gísli Pálmi
kom ekki fram
á Dýrafjarðar-
dögum fyrr á
árinu.