Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Qupperneq 16
16 FÓKUS - VIÐTAL 25. október 2019
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Í
febrúar 2013 var skotið á hús
Ágústs Valdísarsonar og þá-
verandi unnustu hans á Eyrar-
bakka. Atburðurinn hafði
djúpstæð áhrif á Ágúst en hann
greindist með áfallastreituröskun
í kjölfarið.
Íslenskir fjölmiðlar greindu
frá málinu á sínum tíma. Þannig
hljómaði tilkynning lögreglu:
Fjórir voru handteknir eftir
að skoti var hleypt á íbúðarhús
á Eyrarbakka í nótt. Lögreglan á
Selfossi lagði hönd á haglabyssu
sem fjórmenningarnir, þrír karl-
ar og ein kona, höfðu í fórum
sínum. Sérsveitarlögreglumenn
voru kallaðir til eftir að skotinu
var hleypt af, en högl lentu á vegg
við eldhúsglugga þar sem ung-
ur maður stóð fyrir innan. Mesta
mildi þótti að ekki hefði farið verr.
Fjórmenningarnir dvelja í fanga-
geymslu lögreglunnar á Selfossi
og bíða yfirheyrslu, en það er
tæknideild Lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu sem sér um
tæknirannsókn. Atvikið er litið
alvarlegum augum og rannsókn
verður framhaldið í dag.
Facebook-færsla var kveikjan
að árásinni
Ágúst býr enn í dag í sama húsinu
á Eyrarbakka, ásamt þriggja ára
syni sínum, og vill hvergi annars
staðar vera.
Hann segist ennþá muna at-
burðarásina þessa nótt í febrú-
ar árið 2013. Þáverandi unnusta
hans hafði farið út að skemmta
sér fyrr um kvöldið, en tilviljun réð
því að dóttir hennar, stjúpdóttir
Ágústs, var í pössun.
Rúmlega viku áður hafði
unnusta Ágústs birt færslu á Face-
book þar sem hún nafn- og mynd-
birti fjölskyldumeðlim sem hafði
hlotið dóm fyrir að brjóta á henni
kynferðislega. Ágúst segir að það
hafi þó ekki verið neinn aðdrag-
andi að árásinni dagana á undan.
„Um þrjú leytið um nóttina hr-
ingdi síminn minn. Sá sem hr-
ingdi spurði hvort ég ætti svart-
an og rauðan Nissan-bíl og þegar
ég sagði já þá var mér sagt að það
væri búið að „bömpa“ bílinn.“
Sá sem hringdi reyndist vera
vinur bróður unnustu Ágústs.
Skömmu síðar tók parið eft-
ir grunsamlegum mannaferð-
um við húsið og síðar heyrðist
einhver kalla nafn unnustunnar.
Það reyndist vera bróðir hennar,
sem sagðist vera ósáttur við fær-
sluna fyrrnefndu á Facebook. Þrír
félagar hans, tveir karlar og ein
kona, voru með í för.
„Við fórum aftur inn í húsið
og hún hringdi á Neyðarlínuna.
Þetta var um hálf fimm leytið.
Ég sá síðan út um gluggann að
Volkswagen-bílinn var ennþá
þarna. Það vildi svo til að ég var
með gamla öxi inni hjá ér, ég
greip hana og fór út til þeirra til að
reka þá í burtu. Þá óku þeir í burtu.
Ágúst segir unnustu sína því næst
hafa hringt á lögregluna á Selfossi.
Á meðan stóð hann við gluggann
í upplýstu eldhúsinu til að kanna
hvort fjórmenningarnir væru
komnir aftur.
„Allt í einu sá ég svo bíl-
inn keyra hægt niður götuna og
framhjá húsinu okkar. Ég sá eitt-
hvað sem var eins og rör koma út
um g ugga n á bílnum. Svo kom
blossi og allt fylltist af reyk. Ég
man þetta ennþá, ég gleymi þessu
aldrei. Ég rauk aftur út með exina,
brjálaður. Ég veit að það eru ör-
ugglega margir sem skilja ekkert í
því að ég hafi sýnt þessi viðbrögð,
að rjúka svona út. En eitt af því
sem hefur hjálpað mér að komast
yfir þetta er að ég er sáttur við að
hafa brugðist við á þennan hátt,“
segir Ágúst og tekur undir með að
það sé í raun ómögulegt að segja
til um hvaða viðbrögð fólk sýni í
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
„Svo kom
blossi og
allt fylltist
af reyk“
Skotið á hús Ágústs á Eyrarbakka
Hvatinn að árásinni var færsla á
Facebook – Árásarmennirnir ekki
dæmdir fyrir tilraun til manndráps
Vill ekki fara
Ágúst býr enn í
sama húsinu á
Eyrarbakka.