Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Qupperneq 21
25. október 2019KYNNINGARBLAÐÖryggisblaðið
PRONET:
Háþróuð öryggistæki og eftirlitskerfi
fyrir heimili og fyrirtæki
Pronet er sérhæft fyrirtæki á sviði fjarskiptalausna með áratuga reynslu af
uppbyggingu á ljósleiðarakerfum
og öðrum fjarskiptakerfum,
öryggis- og myndavélakerfum,
bæði á Íslandi og erlendis.
Pronet rekur öfluga
framkvæmdadeild með
starfsmönnum sem hafa viðamikla
reynslu úr tæknigeiranum.
Tækjabúnaður fyrirtækisins
samanstendur af nýjustu og
bestu tækjum sem völ er á.
Starfsmennirnir eru þrautþjálfaðir
í að leysa öll verkefni, stór sem
smá, hvort sem um er að ræða
byggingu nýs kerfis, eða mælingu,
úttekt eða viðhald eldri kerfa.
Pronet rekur öfluga heildsölu/
smásölu og flytur m.a. inn efni
fyrir lagna- og netkerfi, verkfæri,
raftæki o.fl. Styrkur fyrirtækisins
felst í að bjóða vörur á mjög
hagstæðu verði, en kannski ekki
síður að vörurnar eru valdar af
fagmönnum með mikla reynslu.
Helstu birgjar Pronet í
öryggiskerfum eru Tiandy
(myndavélar og myndþjónar),
Protec (brunaviðvörunarkerfi),
Digifort (myndavélahugbúnaður) og
SecoLink (öryggiskerfi).
Tiandy – öryggismyndavélar og
vídeóþjónar
Frá Tiandy býður Pronet upp á
myndavélar frá 2Mp upp í 12.
Til eru vélar með föstum linsum,
stillanlegum (varifocal) og
stýranlegum (motorised). Ávallt eru
til a.m.k. tíu gerðir á lager hverju
sinni. Einnig eru í boði PTZ-vélar með
frá 20 og upp í 44 x optical aðdrátt
sem staðalbúnað.
Enn fremur eru í boði vídeóþjónar
frá Tiandy (NVR upptökutæki) frá 4
og upp í 80 rása með 1 og upp í 8
harða diska. Þessi tæki eru bæði til
með PoE og án. Einnig eru til PoE-
beinar til að bæta við kerfum.
Kerfin eru einföld í uppsetningu
og stillingum. Reyndar eru flest kerfi
afhent stillt og tilbúin í uppsetningu ef
viðskiptavinir velja að setja upp sjálfir.
Pronet setur einnig upp tengingu við
síma og spjaldtölvur fyrir viðskiptavini,
þeim að kostnaðarlausu.
Protec – brunaviðvörunartæki
Protec Algo–Tec(tm) 6100 er
hringtengt, stafrænt og tölvustýrt
eldskynjunar- og viðvörunarkerfi
sem hentar fyrir litlar og meðalstórar
byggingar, s.s. verslanir, hótel og
skrifstofur. Stjórnborð kerfisins
er hannað og smíðað af Protec
og uppfyllir EN 54-2 og 4
eldvarnarstaðla ESB. Stjórnborðið
er hægt að festa á vegg, en einnig
hægt að fella það inn, sé þess þörf.
Algo–Tec 6100 stjórnborðið er
hringtengt með getu til að tengjast
og stýra 192 tengipunktum, auk
þess að geta tengst og stjórnað
öllum stjórnborðum, nemum,
viðvörunarbjöllum, viðvörunarljósum
og handvirkum neyðarboðum.
Algo–Tec 6000PLUS línuna
er einnig hægt að tengja inn í
Algo–Tec 6300 upplýsingaskjái
sem sýna viðburði með sjálfvirkum
flettingum á texta.
Með þeim möguleikum sem þetta
kerfi býður upp á er hægt að byggja
upp öflugt og öruggt stafrænt
eldvarnakerfi, með mun einfaldari
lagnavinnu en áður, með þeim
sparnaði sem því fylgir.
Fjöldi aukahluta er fáanlegur
með stöðinni. Optískir reykskynjarar,
skynjarar með viðvörunarbjöllu,
hitanemar, sambyggðir reyk-
og hitanemar, handboðar,
geislanemar, loftstokkanemar,
sírenur og margt annað.
ProPoint PLUS Aspirating er
reyksogskerfi, sérstaklega hannað
fyrir loftstokka, lyftugöng og t.d.
fangelsi eða aðra staði þar sem
rafbúnaður hentar ekki. Í staðinn fyrir
hefðbundna reykskynjara er kerfið
byggt upp þannig að það sýgur loft
í gegnum litla pípu og sendir sýni
í greiningarbúnað sem skilgreinir
agnir og lætur vita ef grunur er um
eld. Kerfið er meðal annars notað
þar sem hátt er til lofts og viðhald og
eftirlit getur verið kostnaðarsamt.
Digifort – myndaeftirlitskerfi
Digifort myndaeftirlitskerfi kemur í
ferns konar útfærslu, en það fer eftir
fjölda myndavéla og möguleika sem
kerfin bjóða upp á. Fjöldi myndavéla
í Digifort Explorer er 4-16, í Standard
4-32, í Professional 8-64 og
Enterprise 8-ótakmarkað.
Einnig er hægt að bjóða upp á
númeraplötugreiningu, ítarlega
vídeógreiningu, andlitsgreiningu
og viðvörun og sjálfvirkni (Alarm
and Automation). Möguleiki
er á því að tengja allar þessar
einingar við hvaða kerfi sem er.
Digifort hugbúnaðurinn gengur
með myndavélum frá flestum
framleiðendum heims.
T.E.L.L. – öryggiseiningar
T.E.L.L. eru öryggiseiningar sem
hægt er að tengja við hvaða tæki
sem er og senda þaðan boð í
vöktunarmiðstöð. Einingarnar eru
til í IP og 3G/4G og allt frá 1 rás upp
í 6 rásir. Enn fremur er Pronet að
prufukeyra sitt eigið vöktunarkerfi
sem kynnt verður á næstunni.
SecoLink – þráðlaus og víruð
öryggiskerfi fyrir heimili og fyrirtæki
Frá SecoLink koma öryggiskerfi
sem henta fyrir heimili og fyrirtæki.
Kerfin geta tengst IP og GSM-neti.
Hægt er að fá auka lyklaborð,
fjarstýringar, hurðanema,
vatnsnema, sírenur og fleira. Kerfin
eru svæðaskiptanleg og koma
með 64 rása stjórnstöð. Kerfunum
er stjórnað með appi í síma, með
fjarstýringu eða með talnaborði.
Allir hreyfiskynjarar eru með
innbyggðum hitanema og er hægt að
fylgjast með stöðu á rými við hvern
skynjara. Hægt er að láta kerfi senda
boð með stöðu reglulega eða fá
stöðu með fyrirspurn i gegnum app.
Pronet stillir kerfi og afhendir
viðskiptavinum sínum tilbúið til
uppsetningar. Eina sem þarf að
koma með er SIM kort og þeir setja
upp kerfið fyrir viðskiptavini sína.
Pronet kemur einnig á staðinn og
metur aðstæður að kostnaðarlausu.
Vision UPS systems varaaflgjafar
Vision varaaflgjafar henta vel í öll
net- og öryggiskerfi. Pronet eru
með allt frá litlum varaaflgjöfum
1-3KVA fyrir afgreiðslukerfi í allt að
650KVA fyrir stærri kerfi.
Varaaflgjafar eru til bæði fyrir 19“
rekka og sjálfstandandi.
Nánari upplýsingar um þessar
vörur og margar fleiri er að finna á
vefsíðunni www.pronet.is
Pronet er einnig með vörur
frá General Cable (netkaplar),
Tecnosteel (tölvuskápar), Cubis
(lagnabrunnar), LinkBasic (net lagna
og tengiefni) Lantech, AOA og Moxa
(beinar og merkjabreytur).
Pronet er til húsa að Ögurhvarfi 2,
Kópavogi. Símanúmer er 540-3520.