Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Síða 24
Ferðafélag Íslands Með fróðleik í fararnesti er frábært samstarfsverkefni Ferðafélag Íslands og Háskóla Íslands þar sem mörg þúsund manns, ungir og aldnir, hafa gengið í borgarlandinu og hlotið þrennt: góða útivist, fína hreyfingu og fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum Háskólans. Þetta verkefni hófst fyrir tæpum tíu árum og hefur verið fróðlegt, hollt og spennandi og aukið áhuga almennings á vísindum og fræðum og á íslenskri náttúru sem víða leynist í borgarlandinu. Undanfarin ár hefur samstarfið við Háskólann að langmestu leyti verið í gegnum Ferðafélag barnanna og því hefur vísindamiðlunin helst beinst að börnum og fjölskyldufólki. Þannig verður það áfram í vetur þegar verkefnið hefst á ný með miklum tilþrifum. „Markmiðið með Ferðafélagi barnanna hefur ávallt verið að skapa skemmtilegan vettvang fyrir börn og fjölskyldur þeirra til að njóta útiveru, takast á við nýjar og spennandi áskoranir og hafa einafaldlega gaman af því að leika sér úti,“ segir Dalla Ólafsdóttir, sem leiðir Ferðafélag barnanna ásamt eiginmanni sínum, Matthíasi Sigurðarsyni. Hann segir að í verkefninu með Háskóla Íslands mæti flinkir og flottir vísindamenn sem bjóði upp á fróðleiksgöngur um fugla, skordýr, sveppi, fjöruna, eldfjöll, stríðminjar og stjörnurnar svo fátt eitt sé nefnt. „Þetta eru gríðarlega vinsælar göngur ár eftir ár og mjög ánægjulegt að geta boðið börnum upp á að njóta náttúrunnar og fá fróðleik samhliða. Vísindamenn Háskólans hafa vakið mikla athygli í göngunum fyrir að draga fram mikilvægi rannsókna og vísindastarfs fyrir íslenskt samfélag, fyrir lífríkið okkar og umhverfið.“ Stjörnur með Stjörnu-Sævari Nú er búið að raða upp fróðleiksgöngum fyrir næsta starfsár og verður byrjað strax í janúar 2020 á stjörnu- og norðurljósaskoðun með Sævari Helga Bragasyni. Markmið göngunnar er að hvetja fjölskyldur til þess að njóta náttúrunnar og himingeimsins þegar skilyrði til stjörnuskoðunar eru með besta móti. Sævar Helgi, sem er stjörnumiðlari hjá Háskólanum, mun lýsa því sem fyrri augu ber á kvöldhimninum. Hann er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir miðlun sína á undrum himingeimsins og reyndar mörgu öðru. Hann hefur t.d. kennt stjörnufræði við góðan orðstír í Vísindasmiðjunni, Háskóla unga fólksins og í Háskólalestinni undanfarin ár sem öll eru verðlaunaverkefni ætluð ungu fólki á vegum Háskóla Íslands. Þá hefur Sævar stýrt frábærri sjónvarpsþáttaröð um umhverfismál, Hvað höfum við gert, sem vakti gríðarlega athygli fyrr á árinu. Fuglaskoðun þegar vorar Þótt nú sé haust, og veturinn smám saman að herða tökin, þá er ekki í sjálfu sér langt þangað til fyrstu farfuglarnir snúa aftur heim. Þegar þeir flykkjast aftur hingað er sumarið á næsta leiti. Þess vegna er rakið að fara í fuglaskoðun í apríl og fjaran er auðvitað besti staðurinn til að skoða fugla snemma vors. Þeir Gunnar Þór Hallgrímsson, prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands, og Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, hafa leitt þessar árvissu fuglaferðir með miklum tilþrifum enda vita þeir eiginlega allt um fugla. „Minn uppáhaldsfugl er spói,“ segir Tómas Grétar aðspurður um þann fugl sem heillar hann mest. „Fuglar eru frísklegir og áberandi. Dýr sem ekki geta flogið og flúið á vængjum láta síður sjá sig og almenningur kynnist þeim því síður. Líklega værum við líka spennt fyrir fljúgandi krókódílum. Það er eitthvað heillandi við flugið sjálft. Ætli tilhneiging fólks til að velja sér uppáhaldsfugl sé eins og að halda með liði í ensku,“ segir Tómas Grétar og hlær. Gunnar Þór segir að fuglar séu einu villtu hryggdýrin hérlendis sem séu oft fyrir augum okkar. „Ástæðan fyrir uppáhaldsfuglinum er sú að við tengjumst oft fuglum í gegnum okkar M ð fróðleik í fararnesti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.