Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 29
25. október 2019 ÖryggisblaðiðKYNNINGARBLAÐ
NORTEK:
Lausnir í öryggismálum
Nortek er ört vaxandi fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í öryggiskerfum sem henta
bæði heimilum og fyrirtækjum.
Það er dreifingaraðili Ajax-
snjallöryggiskerfis, sem er eitt
snjallasta og notendavænsta
öryggiskerfið sem til er í dag og
er margverðlaunað í Evrópu.
Kerfin eru stillt með snjalltækjum
notenda og auðvelt er að vakta
kerfin með snjallsímaforriti og eða
símhringingum.
Ekkert mánaðargjald
Sérstaða Ajax-öryggiskerfisins felst
ekki aðeins í snjalltækninni, heldur
því að viðskiptavinir kaupa kerfið
og eiga það og greiða því ekkert
mánaðargjald, það er því fljótt að
borga sig upp. Notandinn setur kerfið
upp sjálfur og hefur fulla yfirsýn
yfir virkni þess. Viðkomandi er ekki
háður viðbrögðum annarra aðila
ef eitthvað kemur upp á í kerfinu.
Eigandinn og þeir sem hann hefur
veitt aðgang að kerfinu fá skilaboð
í gegnum appið eða SMS og hann
metur hvað hann gerir við þær
upplýsingar. Þannig koma engar
síðbúnar rukkanir vegna falskra
útkalla umsjónaraðila.
Kisu er óhætt
Margir velta fyrir sér hvort gæludýr
heimilisins eða ryksuguróbótinn
muni sífellt vera að setja
hreyfiskynjarana innandyra í gang.
En Ajax-kerfið notar stafrænt
reiknirit til að greina hreyfingu
manna. Svo lengi sem gæludýrin
og ryksugan eru minni en 50
sentimetrar og 20 kíló ættu þau ekki
að setja Ajax-skynjara í gang.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Kerfið er vinsælt bæði fyrir fyrirtæki,
íbúðarhús og sumarbústaði enda
er öryggi í því að geta fylgst með
húseignum þegar eigendur eru
ekki á staðnum. Hreyfiskynjari úti
getur numið óeðlilegar mannaferðir
og látið eiganda vita samstundis.
Þá fær hann skilaboð og getur
athugað hvað sé á seyði í gegnum
eftirlitsmyndavélarnar. Hægt er
að velja um hvort hávær sírena
fari í gang til að fæla viðkomandi á
brott eða að eigandi hringi beint á
lögreglu. Sú ákvörðun er algjörlega
í höndum eigandans. Það er líka
mögulegt að tengja kerfið þannig
að ljós kvikni inni eða að útvarp
fari í gang til að láta líta út eins
og einhver sé staddur í húsinu. Á
þennan hátt er ekki aðeins látið
vita ef brotist hefur verið inn, heldur
er oft hægt að koma í veg fyrir að
innbrotið sé framið.
Allsherjar öryggi
Kerfið snýr ekki aðeins að hættu
á innbrotum heldur annars konar
öryggi eins og reykskynjurum
og vatnsskynjurum. Þráðlaus
reykskynjari með hitanema mælir
stöðugt bæði hita og reyk í rýminu
og lætur vita um leið og hitastig
rýmisins rís hratt. Þráðlaus
vatnsskynjari nemur fyrstu
merki um leka á aðeins nokkrum
millisekúndum. Hentar vel til að setja
undir vaska og hjá þvottavélum.
Í upphafi er keypt svokölluð
grunneining sem hægt er að bæta
við eins mörgum skynjurum og
viðkomandi vill.
Hentar þetta mér?
Ajax-öryggiskerfin verða sífellt
vinsælli hjá almenningi sem vill
tryggja eignir sínar og öryggi
heimilisins en hafa um leið fullkomna
stjórn á sínu eigin kerfi. Á heimasíðu
Nortek er hægt að kynna sér kerfin
nánar, bæði tæknina, verð og
fá hugmyndir um hversu margir
skynjarar myndu henta þinni eign.
Nortek Eirhöfða 18, 110 Reykjavík
og Hjalteyrargata 6, 600
Akureryri
Vefsíða: https://ajax.is