Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Page 51
SAKAMÁL 5125. október 2019
önnur sögðust hafa heyrt skot-
hvelli umrætt kvöld og einnig séð
til ferða hestvagns bræðranna.
Sannanir voru óbeinar en þó
efaðist enginn um sök bræðranna.
Að loknu tveggja klukkutíma skrafi
varð ljóst að kviðdómur var ekki á
einu máli og síðar kom enn frem-
ur í ljós að tveimur kviðdómurum
höfðu verið boðnir 750 dalir fyrir
að mæla með sýknu.
Ný ákæra, ný réttarhöld
Réttað var aftur yfir bræðrunum
í júlí og ákæruatriðum fækkað.
Einungis voru þeir sóttir til saka fyrir
eitt morð að yfirlögðu ráði; morðið á
Gus. Talið var að erfitt yrði að sanna
slíkt hið sama varðandi eiginkonu
Gus og börn þeirra.
Meðan á réttarhöldunum stóð
var Nellie í umsjá saksóknarans, Pi-
erce, og eiginkonu hans. Nellie var
viðstödd bæði réttarhöldin en bar
ekki vitni. Tíðum mátti þó sjá hana
klifra upp í kjöltu Pierce og koma sér
fyrir þar.
Þann 2. ágúst, 1895, komst kvið-
dómur að einróma niðurstöðu og
Taylor-bræðurnir voru dæmdir til
dauða.
Annar sleppur, hinn hangir
Bræðurnir áfrýjuðu dómnum án
árangurs og úrskurðað að þeir
skyldu hengjast 30. apríl árið 1896.
Það gekk ekki fullkomlega eftir því
bræðrunum tókst að flýja úr fang-
elsinu 11. apríl. William Taylor
náðist fljótlega aftur, en George
tókst að forðast hinn langa arm
laganna þar til hann dó, hvenær
sem það nú varð.
William hins vegar gekk til
fundar við skapara sinn klukkan
11 fimmtudaginn 30. apríl, eins og
lagt hafði verið upp með.
Af Nellie er það að segja að hún
ólst upp hjá ömmu sinni, giftist
Albert nokkrum Spray og lést af
barnsförum árið 1910.
Köttur úti í mýri setti upp á sér
stýri, úti er ævintýri. n
Heimild:
murderbygaslight.com
MORÐIN Á MEEKS-FJÖLSKYLDUNNI Í MISSOURI
n Gus var í vandræðum vegna Taylor-bræðranna n Bræðurnir voru í vandræðum vegna Gus
Meeks-fjölskyld-
an Líkin voru grafin
undir galta.
Morðingjarnir
Taylor-bræðurnir
voru auðugir og
óheiðarlegir.
William hengdur Hundruð
fylgdust með aftökunni.