Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Page 69
FÓKUS 6925. október 2019
Hvað varð um íslensku lukkudýrin?
n Hvað eiga BT-músin, Bingó Bjössi, KR ljónið og DV tígurinn sameiginlegt? n Komu, kættu og hurfu
Auglýsingaherferð Vodafone þar
sem „essasú“-froskurinn var í aðal-
hlutverki er með þeim íslensku aug-
lýsingaherferðum sem vöktu hvað
mesta athygli í upphafi áratugarins.
Eftir stendur einhver vinsælasti aug-
lýsingafrasi síðari tíma, „essasú?“,
196 þúsund áhorf á auglýsingar
með froskinum á myndbandavefn-
um Youtube.com og 21 þúsund að-
dáendur á síðu sem stofnuð var til
heiðurs essasú-froskinum á Face-
book. Þá má segja að það sé nokkuð
ljóst að grínarinn Pétur Jóhann Sig-
fússon hafi staðið á bak við nokkra af
þekktustu hversdagsfrösum land-
ans á þessum tíma, en „essasú?“ tók
hressilega við af „Já, sæll,“ þótt seinni
frasinn lifi enn dátt.
Sennilega eru einhverjir landsmenn sem muna eftir skemmtiþættinum
Bingó-Lottó í umsjón Ingva Hrafns Jónssonar. Það var ekki svo gott að Ingvi
Hrafn hafi sjálfur gegnt hlutverki lukkudýrs þáttanna, heldur var það bangs-
inn Bjössi. Mikið húllumhæ skapaðist í kringum tilurð Bingó Bjössa, þar sem
teiknaða fígúran var kynnt fyrir landsmönnum með hressilegum leik þar
sem börn á öllum aldri sendu inn tillögur að nafni fyrir karakterinn. Bingó
Bjössi var lendingin og gegndi bangsinn meðal annars því hlutverki að
leggja stafaþrautir fyrir krakkana.
Á tímabili var BT
stærsta raftækja-
verslun landsins
og var heldur bet-
ur stutt í músina í
kynningarefninu.
Gula BT-músin er
á meðal þekktari
íslenskra lukku-
dýra og gerði hún
gæfumun fyrir
kennimerki versl-
unarinnar, sem
margir sögðu vera
stolið frá banda-
rísku keðjunni
Best Buy. Eftir
gjaldþrotið tóku
Hagar BT yfir
en samkeppnis-
eftirlitið hafn-
aði síðar þeirri
yfirtöku. Þá var
gula músin öll
en gleymist hún
seint.
Tígurinn Tígri var lukkudýr Krakka-
klúbbs DV á sínum tíma. Hann var fyrst
kynntur til leiks árið 1992 og þótti mikill
vinur barnanna á ýmsum uppákomum.
Einnig voru gefnar út bækur um Tígra
og náði prakkarasvipur dýrsins til ófárra
barna áður en Tígri var lagður á hilluna
endanlega.
Íþróttafélögum hefur lengi verið afar annt um dýrin
og kom Fimleikafélag Hafnarfjarðar með sitt svar við
KR-ljóninu. Það var vissulega tilefni til að slá til fígúru
í svarthvítu, í stíl við FH-merkið sjálft, og var þá FH-
pandan fyrir valinu. Hermt er að valið hafi staðið á
milli hunds og pöndu, en eins og meðfylgjandi mynd
sýnir er miklu kostulegra að sjá pöndu takast á við ljón.
Kötturinn Klói hefur tekið eftirtektarverðum breytingum í gegnum árin
og þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Hins vegar eiga sjálfsagt margir
erfitt með að muna eftir svörnum óvini hans og andstæðingi sem fylgdi með
súkkulaðidrykknum Jibbí. Varan kom á markaðinn árið 1997 og var held-
ur skammlíf, en fernuna prýddi brúnleitur hundur sem gelti dátt á milli at-
kvæða í lögum sjónvarpsauglýsingarinnar og söng þar lag sem líktist þjóðhá-
tíðarlagi Íslendinga.
FH-pandan
(Fimleikafélag
Hafnarfjarðar)
Tígri
(Krakka DV)
Bingó Bjössi
(Bingó Lottó)
Fiddi froskur
(Vodafone)
Jibbí hundurinn (Sól-Víking)
BT-músin (BT)
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is