Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 20. september 2019 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Spurning vikunnar Hvað þarf helst að bæta í heilbrigðiskerfinu í dag? Hraða byggingu nýja Landspítalans, betri vinnuaðstæður, betra kaup og styttri vinnuvika. Efla heilsugæsluna verulega. Magnús, þroskaþjálfi Það þyrfti að innleiða sálfræði eins og venjuleg heilsugæsla er. Geðheilsumálum á Íslandi er veru- lega ábótavant. Eyþór, nemi Ég nennti því ekki, svo ég hef ekki notað það í tvö ár Ólöf, forritari Já, ég meina, væri ekki best að bæta aðstöðuna ásamt því gera Landspítalann að meira aðlandi vinnustað fyrir heilbrigðisstarfsfólkið í landinu? Hildur, jarðeðlisfræðingur Svart og hvítt Þ að er alltaf eldfimt um- ræðuefni þegar nafn- birting dæmdra brota- manna ber á góma. Fólk skiptist í fylkingar, með eða á móti. Eins og með svo margt í ís- lensku samfélagi þurfa allir að skiptast í þessar tvær fylkingar. Orrahríð geisar meðal fólks og svo virðist sem samfélagið verði allt í einu annaðhvort svart eða hvítt – enginn millivegur. Lífið er hins vegar aldrei svart eða hvítt. Það er grátt og fjólu- blátt og brúnt og gult og alls kon- ar. Í dag birtum við hjá DV fyrsta hluta í umfjöllun um íslenska barnaníðinga. Í þessari fyrstu umfjöllun birtum við fyrri part af korti yfir aðsetur dæmdra barn- aníðinga – fólks sem hefur brot- ið á fleiri en einni manneskju og hlotið fyrir það dóm. Kveikjan að umfjölluninni er frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur um hert- ara eftirlit með barnaníðingum eftir afplánun. Einnig veltum við þeirri spurningu upp hvort al- menningur eigi rétt á að nálgast þessar upplýsingar eða hvort þær eigi að vera læstar ofan í skrif- stofuskúffu. Það er í raun margt forvitni- legt sem kemur fram í frumvarpi Silju Daggar og heilt yfir er það vel og faglega unnið. Meginþem- að í frumvarpinu er að jafna hlut barnaníðinga annars vegar og almennings hins vegar. Eins og Silja Dögg hefur bent á þá brjóta margir barnaníðingar af sér aft- ur þegar þeir losna úr fangelsi. Það sé vitað mál. Samt bíður þeirra ekkert eftirlit eftir afplán- un. Það er galið út af fyrir sig. Í frumvarpinu er mælst til þess að auka tilkynningarskyldu þannig að viðkomandi bæjarfélagi og barnaverndarnefnd sé tilkynnt um búferlaflutninga barnaníð- inga. Þá er einnig kveðið á um að barnaníðingurinn þyrfti að gang- ast undir meðferð hjá heilbrigð- isstarfsfólki, mæta í viðtöl hjá fé- lagsþjónustu, hann megi ekki neyta áfengis og annarra vímu- efna og að net- og samfélags- miðlanotkun hans yrði undir eft- irliti. Einnig hefði lögregla eftirlit með heimili hans. Silja Dögg hefur jafnframt tekið það fram að í frumvarpinu felist ekki einhvers konar gullin lausn um málefni barnaníð- inga – tillögurnar séu hins vegar skref í rétta átt að betra kerfi. Því er ég sammála. Það er ótækt að við hleypum fólki út í samfélagið sem vitað er að sé því hættulegt. Það á auðvitað ekki bara við um barnaníðinga, heldur almennt. Það er algjörlega óskiljanlegt af hverju lagaumgjörð hefur gert ráð fyrir því að setja hagsmuni brotamanna ofar en samfélags- ins í heild sinni. Það kemur bersýnilega í ljós í umfjöllun DV sem spannar næstu vikur að ákveðið hlutfall fólks sem níðist á börnum held- ur því áfram eftir afplánun. Þetta sjáum við sí og æ. Með hertara eftirliti með barnaníðingum og upplýsingaskyldu til almenn- ings í einhverju formi gæti lífið orðið aðeins bærilegra, bæði fyrir brotaþola og barnaníðinga, sem njóta vissulega mannréttinda þrátt fyrir brot sín. Mannréttindi þegna samfélagsins mega hins vegar ekki gleymast í kerfinu, hvað þá vega mun minna en mannréttindi níðinganna. n Kennarasleikjan Til snarpra orðaskipta kom á Alþingi í vikunni þegar nokkrir þingmenn þvert á flokka sökuðu Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis, um skipulagsleysi. Svo fór að Steingrímur byrsti sig við þingmenn. „Forseti segir það sem hann vill segja og þingmenn hlusta,“ sagði Steingrímur og bætti við að ekki væri málfrelsi þegar kæmi að frammíköllum. Þetta blöskraði þingmönnum mjög en það var hins vegar einn sem stóð með forseta og það var Kolbeinn Óttarson Proppé. Hrósaði hann forseta í bak og fyrir og bíður sandkornsskrifari þess að Kolbeinn slái sig enn frekar til riddara með því að færa forseta forláta epli, skínandi fínt og fullt af smeðju. 130 á móti 23 Fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, blöskraði verð á bjór á Nordica þar sem hann þurfti að borga 1.400 krónur fyrir glasið. Skellti hann skuldina á veitingamenn og háa álagningu en viðurkenndi að áfengisgjaldið væri hátt. Það mun í raun hækka um 2,5%. Sandkornsskrifari hefur tekið eftir að fjármálaráðherra er hrifnari af prósentu- og hlutfallareikningi en krónutölu þegar kemur að hækkun skatta og launa. Því vill hann benda fjármálaráðherra á að hann geti keypt rúmlega 130 bjóra fyrir 10% af laununum sínum, sem eru tæplega 1.900.000. Hins vegar getur manneskja á lágmarkslaunum, rúmlega 300.000 krónum, aðeins keypt 23 bjóra fyrir þessi 10%. Þannig að ef fjármálaráðherra blöskrar, hvernig heldur honum að almúganum líði? Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Haust Varla hefur hundi verið út sigandi undan- farna daga, en hér hefur hvutti gripið tækifærið. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.