Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 10
10 20. september 2019FRÉTTIR Hér búa barnaníðingarnir Fyrsti hlutiÁ Íslandi hafa margdæmdir barnaníðingar fullan rétt á því að búa nálægt börnum. Margir þeirra grípa til þess ráðs að breyta um nafn til að forðast ofsóknir. Víða erlendis eru í gildi lög um tilkynningaskyldu til almennings um dæmda kynferðisafbrotamenn sem hætta er talin stafa af, til að mynda í Bretlandi þar sem lög heimila miðlun á upplýsingum um kynferðisbrotamenn í tilteknum tilvikum. Bandaríkin hafa þó gengið einna lengst í þessum málum en hin svonefndu Megan-lög voru sett í Bandaríkjunum eftir að dæmdur kynferðisbrotamaður braut á og myrti sjö ára gamla stelpu, Megan Kanka, árið 1994. Umrædd lög eru þannig sett fram að allir sem hafa verið dæmdir fyrir kynferðisbrot eru lagalega skyldugir til þess að gefa sig fram við löggæsluyfirvöld í sinni borg eða bæjarfélagi eftir að afplánun refsingar lýkur. Í kjölfarið fara umræddir brotamenn á lista sem er aðgengilegur almenningi. Viðkomandi einstaklingur þarf að gefa yfirvöldum upplýsingar um heimilisfang sitt og persónulega hagi og gefa sig fram við lögreglu árlega, hafi hann fasta búsetu. „Eftir afplánun láta þessir menn sig hverfa“ Engin slík tilkynningaskylda ríkir á Íslandi en frum- varp til lagabreytinga sem varðar eftirlit með dæmd- um barnaníðingum var lagt fram í þriðja sinn nú á dögunum. Flutningsmaður frumvarpsins er Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Nái frumvarpið fram að ganga þurfa barnaníð- ingar sem beinlínis eru taldir hættulegir umhverfi sínu að gangast undir vissar kvaðir. Til að mynda yrði þeim bannað að búa nálægt börnum, eftirlit yrði með netnotkun þeirra og lögregla myndi hafa eftirlit með heimili þeirra. Þá er gert ráð fyrir í frumvarpinu að barnaverndarnefndir og aðrir viðkomandi aðilar verði upplýstir þegar dæmdur barnaníðingur flytur búferlum. Þá segir: „Bendi niður stöður mats sam kvæmt lög­ um um meðferð saka mála til þess að veru leg hætta sé tal in stafa af viðkom andi ein stak lingi og í refsi dómi er kveðið á um áfram hald andi ráðstaf an ir í ör ygg is skyni eft ir að afplán un lýk ur skulu Barna vernd ar stofa og Fang els is mála stofn un eiga sam starf um úrræði gagn­ vart ein stak lingn um á meðan afplán un og reynslu­ lausn var ir.“ „Þetta gengur út á að tengja kerfin betur saman. Barnavernd, löggæsluna, dómstólana og alla sem koma að þessum málum. En það yrðu ekki hengd upp plag- göt með myndum af brotamönnum á staðnum. Þetta snýst um samvinnu. Núna er þetta þannig að eftir af- plánun láta þessir menn sig hverfa, skipta um nafn og flytja til annarra sveitarfélaga. Þannig kaupa þeir sér tíma, halda áfram að brjóta af sér og eyðileggja fjölda fólks, fyrir lífstíð jafnvel. Það sem ég er að leggja fram í þessu frumvarpi er kannski ekki eina rétta leiðin en þetta er tilraun til þess að byrja einhvers staðar. Að taka umræðuna og reyna að finna leið til að koma í veg fyrir þessi brot,“ sagði Silja Dögg í samtali við DV fyrr á árinu. Hér búa þeir En hver er réttur almennings til þessara upplýsinga? Vegur sá réttur þyngra en réttur dæmdra kynferðis- brotamanna til friðhelgi? Hvor er ríkari, rétturinn til að vita eða rétturinn til að gleymast? DV gerir hér tilraun til kortleggja búsetu einstak- linga sem hlotið hafa dóm hér á landi fyrir kynferðisbrot gegn börnum og ungmennum. Upplýsingar um brotin eru fengnar úr opinberum gögnum. Er þetta fyrri partur af korti yfir íslenska barnaníðinga, en sá seinni birtist í næsta blaði. Jafnframt er þetta fyrsti hluti í greinaröð um dæmda barnaníðinga. Einstaklingarnir sem tilgreind- ir eru hér hafa allir verið sakfelldir fyrir héraðsdómi og dæmdir til fangelsisvistar og í öllum tilfellum nema einu eru brotaþolar fleiri en einn. Vert er að taka fram að við vinnslu greinarinnar var meðal annars notast við upp- lýsingar úr Þjóðskrá sem og staðfestar heimildir. Í sum- um tilfellum er stuðst við seinasta skráða heimilisfang viðkomandi einstaklings. Karl Vignir Þorsteinsson – miðbær, 101 Reykjavík Dómur: Sjö ára fangelsi Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 50+ Brotasaga Karls Vignis nær áratugi aftur í tímann en hann hefur viðurkennt opinberlega að hafa misnotað allt að 50 börn og brotin sem hann var dæmdur fyrir voru framin á árunum 1995 til 2012. Karl Vignir losnaði úr fangelsi í fyrra og leigir nú litla íbúð nálægt Hlemmi, með útsýni yfir leikvöll. Valdimar Jónsson og Bylgja Líf Þrastardóttir – 245 Sandgerði Dómur: Sjö ára fangelsi (Valdimar) og sex ára fangelsi (Bylgja) Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2 Margir íbúar í Sandgerði voru skelfingu lostnir vegna frétta þess efnis að par í bænum væri grunað um að hafa misnotað tvö börn kynferðislega. Hin meintu brot voru gróf og ítrekuð. Börnin tengjast parinu fjölskylduböndum. Þau Valdimar og Bylgja Líf voru handtekin þann 11. júlí 2018 og hafa játað að hafa brotið gegn öðru barninu. Á meðal sönnunargagna voru myndbandsupptökur sem fundust á myndavél í fataskáp parsins. Ómar Ragnarsson – Laugarneshverfi, 105 Reykjavík Dómur: Þriggja og hálfs árs fangelsi Fjöldi brotaþola (sem vitað er um): 2 Ómar Ragnarsson fékk æru sína uppreista árið 1995 vegna dóms sem hann hlaut árið 1978 fyrir að nauðga hrottalega tveimur ungum stúlkum. Önnur var fjórtán ára, en hin var aðeins 12 ára. Fyrir þetta fékk hann tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Árið 2009 var hann dæmdur í Noregi fyrir að ráðast á 10 ára stúlku í Jernbane- skóginum í Sirevåg með hníf og nauðga henni. Hann var fyrst dæmdur í Noregi í þriggja ára og níu mánaða fangelsi. Dómnum var áfrýjað og var dómurinn þá lengdur. Einnig fann lögregla mikið magn af barnaklámi á heimili hans. Ólafur Barði Kristjánsson – Breiðholt, 111 Reykjavík Dómur: 18 mánaða fangelsisvist Fjöldi fórnarlamba (sem vitað er): Þrjú Ólafur Barði Kristjánsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi árið 2006 fyrir kynferðisbrot gagnvart fimm ungum stúlkum á árunum 1999 til 2005 og einnig fyrir að hafa í vörslu sinni ljósmyndir sem sýndu börn á klámfenginn hátt, þar á meðal þrjár þeirra stúlkna sem hann braut gegn en þær voru á aldrinum fjögurra upp í tólf ára þegar brotin áttu sér stað og tengdust dætrum Ólafs vináttu- böndum. Ólafur áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem stytti dóm- inn niður í 18 mánuði. Sumarið 2011 var Ólafur aftur tekinn með barnaklám og fundust þá 15.327 slíkar ljósmyndir og níu hreyfi- myndir í tölvu hans. Hlaut hann fimm mánaða fangelsisdóm. Ólafur er í dag skráður til heimil- is í Breiðholti. Í júní á seinasta ári greindi DV frá því að hann starf- aði annað slagið við afgreiðslu í nytjamarkaðnum Von og björg- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.