Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Side 17
FÓKUS - VIÐTAL 1720. september 2019 Ragnar. „Við myndum vilja að þjóðin hefði atkvæðarétt í hverju einasta þingmáli. Ég sé til dæmis fyrir mér eitthvert kosningakerfi í gegnum internetið eða í smáforriti og fólk hefur þetta í hendi sér, getur látið sína skoðun í ljós og haft vægi. Á þessum stofnfundum í sumar komumst við að þeirri niðurstöðu að við viljum ekki sitja á þingi til að ráða einu né neinu, við viljum að þjóðin ráði. En það eru þó tvö málefni sem við viljum berjast fyrir og erum ekki tilbúin að víkja frá. Það er annars vegar alhliða breyting á núverandi kerfi, við ætlum ekki að vinna eftir því, það er ekki að virka og þó svo að stjórnmálaflokkar á borð við Flokk fólksins og Pírata, sem eru með geggjaðar hugmyndir, hafi reynt, þá er staðreyndin bara sú að gildandi kerfi virkar bara á einn veg og því verður ekki breytt nema það sé byggt upp aftur frá grunni. Hins vegar er það stjórnarskráin okkar sem þjóðin hefur valið sér og kosið um. Þó svo ráðamenn hafi talað um þjóðaratkvæðagreiðslu sem einhverja „ráðgefandi kosningu“ þá er vilji þjóðarinnar ljós í þessum málum. Við viljum nýja stjórnarskrá og það strax.“ Kerfi sem framleiðir óhamingju „Heili manna byrjar að mótast og þroskast strax í móðurkviði. Síðan elst einstaklingur upp og upplifir kannski sem barn tilfinningalega vanrækslu, ofb eldi – líkamlegt og/andlegt – eða önnur áföll og þá þroskast heilinn ekki eðlilega. Á þessu hafa verið gerðar rann­ sóknir. Því er gífurlega mikilvægt og algjör grunnkrafa að það kerfi sem börnin okkar alast upp í sé miðað að því að styrkja og efla. Maður heyrir sögur af börnum sem vakna á morgnana og neita að fara í skólann eða segjast ekki nenna því. Ef kerfið væri gott þá ættu börn að hlakka til að mæta. Samkvæmt rannsóknum frá vís­ indamönnum NASA eru um 98 prósent barna skapandi snill­ ingar við fimm ára aldur, en þetta hlutfall lækkar niður í tólf pró­ sent þegar komið er á unglings­ árin og svo niður í aðeins tvö prósent á fullorðinsaldri. Þetta er skólakerfinu að kenna. Kerfið reynir að móta alla eins til að allir passi í sömu kassana og fólk elst upp hrætt við að vera það sjálft, með lágt sjálfsmat og enga sjálfs­ virðingu. Það er bara þannig að fólk með góða sjálfsvirðingu er gott við sig, það leiðist ekki út í fíkniefni.“ Ragnar segir stöðuna á Íslandi slæma. „Að meðaltali eru um fimmtíu ungir drengir sem falla fyrir eigin hendi á ári hverju, þar eru þó ótalin andlát sem rekja má óbeint til andlegra veikinda eða fíknisjúkdóma, svo sem í bílslysum eða ofskömmtunar á vímuefnum. Þetta sýnir að við þurfum breytingar. Kerfið eins og það er í dag er að búa til þessi vandamál sem við erum að glíma við. Við erum að framleiða óhamingjusamt fólk. Að byggja upp sjálfsmyndina og sjálfsvirðingu það er ekki flókið. Það þarf ekki að taka neina brjálaða fyrirhöfn. Líkt og barn sem elst upp við vanhæfar aðstæður, ofríki foreldra og tilfinningalega vanrækslu er íslenska samfélagið að upplifa það sama gagnvart þinginu.“ Fjármagnið til, það fer bara ekki á rétta staði En hvernig sér Ragnar fyrir sér að fjármagna þessa kerfisbreytingu? „Auðmenn sem borga aðeins skatt í formi fjármagnstekna, greiða, líkt og Gunnar Smári Egilsson sósíalisti benti eftir­ minnilega á á dögunum, ekkert útsvar. Stórar fjárhæðir eru sett­ ar í skattaskjól erlendis og skila engu í þjóðarbúið. Ef þessir pen­ ingar væru að skila sér í ríkissjóð, ef auðmenn væru að greiða það sama og hinn almenni borgari þá væri til meira en nóg fyrir þessum breytingum. Það er almenn óá­ nægja í samfélaginu með þessa hluti.“ Dæmi um það sem Ragnar tel­ ur mikla brotalöm í kerfinu er til dæmis nýkynnt heilbrigðisstefna Svandísar Svavarsdóttur heil­ brigðisráðherra. „Plan til 2030, hvað þýðir það? Þá er hún löngu farin úr embætti. Það þarf eitt­ hvað að gerast núna. Það sem ég vil sjá er að fólk sé kosið inn, fólk sem hefur persónulega reynslu af þeim málum sem það vinn­ ur með, ekki að það séu mann­ eskjur að fjalla um fíknisjúk­ dóma sem hafa kannski í mesta lagi smakkað hvítvín í lífinu. Ég vil konur sem hafa misst frá sér börn inn í barnaverndarnefnd, ég vil sjómann til fjörutíu ára sem sjávarútvegsráðherra. Ég vil að þeir sem stýri málaflokkum hafi persónulega reynslu og þekkingu á þeim málum sem þeir hafa með höndum.“ Sameinuð getum við stuðlað að betra kerfi „Maður spyr sig, er þetta kerfi að virka? Er það að þjóna meirihluta­ hagsmunum? Nei, það er alveg á hreinu. Það er ekki eðlilegt að Alþingi njóti jafn lítils trausts meðal almennings og raun ber vitni, og þess vegna held ég að ég hafi fengið þennan meðbyr sem ég fékk þegar ég byrjaði að birta myndbönd á Facebook­síðunni minni og við þeim hugmynd­ um sem ég hef. Fólk er að vakna og sér hvar kúkurinn er farinn að fljóta í þessu kerfi,“ seg­ ir Ragnar sem segist loksins þora að vera hann sjálfur. „Íslendingar hafa tekið rosalega vel á móti manni og eru tilbúnir að fyrirgefa það sem tilheyrir fortíðinni. Ótt­ inn sem ég hafði fundið fyrir frá því að ég var barn, að þora ekki og geta ekki sagt hvað mér lá á hjarta, er farinn.“ Ragnar trú­ ir því enn fremur að ef þau félög/ samtök og aðrir sem berj­ ast fyrir kerfis­ breytingum taka sig saman þá séu allir vegir færir. „Ég væri einnig til í þau samtök sem berjast fyrir kerfisbreytingum, sama í hvaða formi er, minnihlutahópar á borð við Metoo, Samtökin 78 og svo framvegis tækju slaginn saman. Sameinuð getum við haft vægi. Sameinuð getum við komið á nýju og betra kerfi. Ef fólk hefur spurningar og vill vita meira þá bara hiklaust hafa samband og endilega kíkja á fundinn á laugardaginn. Ef við trúum því að hægt sé að skapa hamingjusama þjóðfélagsþegna, snúa við óhamingjunni og breyta kerfinu þá eru okkur allar leið­ ir færar. Þessu trúi ég staðfast­ lega og mun standa og falla með þessari sannfæringu minni.“ n Kynningarfundur samein- ingaraflsins Að rótunum verð- ur haldinn í húsnæði íslenskrar erfðagreiningar á laugardaginn frá 16.00–18.00. Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Ragnar segir núverandi kerfi rotið í gegn. Rækta þurfi nýtt kerfi frá rótum til að ná fram raunverulegum breytingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.