Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Page 21
KYNNINGARBLAÐ 20. september 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is SJÁVARÚTVEGSBLAÐIÐ GLÆSILEG SJÁVARÚTVEGSSÝNING Í LAUGARDALSHÖLLINNI – Nokkrar myndir frá sýningunni 2016 Sjávarútvegssýningin Sjávar-útvegur 2019/Iceland Fishing Expo 2019 verður haldin með pomp og prakt í Laugardalshöll dagana 25.–27. september. „Sýn- ingin hefur stækkað umtalsvert frá síðan hún var haldin síðast árið 2016 og fyllir nú alla sali hallarinnar,“ segir Ólafur M. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar. Mikilvæg sýning „Eftirspurn eftir sýningarsvæðum, bæði frá innlendum og erlendum aðilum, er mikil og það kemur sífellt á óvart hversu fjölþætt sú þjón- usta er sem íslenskur sjávarútvegur býr við. Stór og smá fyrirtæki sem þjóna sjávarútveginum sýna allt það nýjasta á þessu sviði. Um 120 fyrirtæki taka þátt og raunar mun fleiri því mörg eru með fleiri en eitt erlent umboð. Margir sýnendur hafa verið með bás hjá okkur í áratugi og eru ánægðir með festu í okkar sýningarhaldi. Enda telja menn það mikilvægt að hitta viðskiptavinina, rifja upp gömul kynni og skapa ný en við leggjum mikla áherslu á að sýnendur fái eins marga frímiða og hentar hverjum og einum. Þetta virðist ekki síst mikilvægt á tímum rafpóstsamskipta.“ Megum ekki gleyma sögunni Að sögn Ólafs er sjávarútvegurinn að þróast í átt til hátækniðnaðar og það hefur verið greinilegt á sýning- um undanfarinna ára. Tilgangur sýn- ingarinnar er að finna flöt fyrir bæði fagaðila og áhugafólk til að kynnast þróun og nýjungum í sjávarútvegi. „Þessi jákvæða þróun mun skipta miklu fyrir velferð íslensks samfélags. Gleymum því ekki að sjávarútveg- urinn bjargaði þjóðinni þegar allt hrundi hér fyrir um áratug. Sjálfur kem ég úr sjávarstað frá Norðfirði og ólst upp við miklar sveiflur í sjávarút- vegi og þær miklu sjávarútvegsum- ræður sem öll þjóðin tók þátt í. Til dæmis var faðir minn fréttaritari Ríkisútvarpsins í meira en fjörutíu ár og ég man vel eftir því þegar hann var að lesa upp aflatölur síldarbátanna. Hver einasti bátur var lesinn upp. Í dag er meira um hörmungarfréttir í fjölmiðlum. Menn eru fljótir að gleyma og líka því mikla afreki sem útfær- sla landhelginnar var á sínum tíma. Rekstrarumhverfið í sjávarútveginum í dag virðist einnig vera orðið stöð- ugra en áður var, þegar menn voru háðir gengisfellingum og endalausum heimsóknum til Reykjavíkur að hitta bankastjóra og aðra ráðamenn. Þá var ekki slæmt að hafa Lúðvík Jósefs- son sem sjávarútvegsráðherra. En í dag virðast sumir jafnvel vilja afhenda þessa gullkistu landsins á silfurfati ef svo má að orði komast.“ Allir velkomnir Það verður margt um að vera á sýningunni. „Ásamt fjölmörgum sýningarbásum verður settur upp glæsilegur matsölustaður. Einnig veitum við viðurkenningar þeim sem hafa skarað fram úr á árinu. Íslenskir listamenn hafa verið duglegir við að fanga sjóinn og sjómennskuna. Einn af þeim er Tolli og verður hann með myndlistarsýningu með sjávarmynd- um, svo fátt eitt sé nefnt. Þarna hitt- ast allir í geiranum og svo á almenn- ingur fullt erindi á sýninguna.“ Sjávarútvegssýningin 2019 hefst miðvikudaginn 25. september og lýkur föstudaginn 27. september. Nánari upplýsingar má nálgast á icelandfishexpo.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.