Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Síða 31
KYNNINGARBLAÐ Allt fyrir börnin MINIMO: Fallegar og vandaðar barnavörur Minimo er barnavöruverslun sem býður upp á vandað-ar vörur, fallega hönnun og sanngjarnt verð – með það að markmiði að uppfylla kröfur nú- tímaforeldra. Verslunin býður upp á barnafatnað og barnavörur frá spennandi evrópskum vörumerkjum, en flest merkin koma frá Skandinavíu. Minimo byrjaði sem netverslun í júlí árið 2015, en í júní 2018 var opnuð rúmgóð verslun í Ármúla 34. Stofnaði fyrirtæki í fæðingarorlofinu Minimo er í eigu Hildar Birnu Birg- isdóttur viðskiptafræðings, en hún stofnaði fyrirtækið árið 2015 þegar hún var nýbúin að eignast elstu dóttur sína. „Ég fann mikið af er- lendum barnavörumerkjum sem mig langaði að byrja að selja á Íslandi,“ segir Hildur, en hún hefur rekið verslunina samhliða háskólanámi og barneignum, en hún og maðurinn hennar eiga þrjú börn fædd 2015, 2017 og 2018. Það er því nóg að gera á heimilinu en Hildur fær mikla hjálp frá fjölskyldunni við allt sem tengist fyrirtækinu og er þetta því sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Vandaðar vörur á sanngjörnu verði Hjá Minimo má finna mikið úrval af barnafatnaði, barnavörum og leik- föngum, en þau eru með barnafatn- að og fylgihluti fyrir allt frá nýfædd- um börnum og upp í 8 ára aldur, eða stærðir 50–128. Einnig er gott úrval af barnavörum fyrir m.a. barnaherbergið, svefntímann og matartímann. „Við leggjum áherslu á að bjóða vandaðar vörur fyrir börn á sanngjörnu verði,“ segir Hildur. Flest vörumerkin koma frá Skandinavíu þar sem stílhrein hönnun er ein- kennandi í barnavörum, og hafa Íslendingar tekið vel í þann stíl. Rík áhersla er lögð á að fatnaðurinn sé úr lífrænni bómull og að aðrar vörur eins og leikföng séu einnig úr náttúrulegum efnum og framleidd á mannúðlegan hátt. Hildur pantar sjálf inn allar vörur í verslunina og leggur sig mjög mikið fram við að velja vandaðar og fallegar vörur sem hún sjálf myndi kaupa fyrir börnin sín. Fjölbreytt úrval Úrvalið af leikföngum er talsvert breitt og er þar mest af viðarleik- föngum sem hafa verið mjög vinsæl. Gjafavaran er einnig mjög vinsæl hjá Minimo, en þar má til dæmis nefna sængurgjafir og afmælisgjafir og þess má geta að þau bjóða einnig upp á innpökkun ef óskað er eftir því. Viðskiptavinahópur Minimo er breiður og er því úrvalið eftir því. Verðandi og nýbakaðir foreldrar eru helst að kaupa vörur fyrir barna- herbergið og fyrir nýburann eins og ung- barnahreiður og skiptidýnur. Foreldrar leikskóla- barna eru mest að kaupa útifatnað og þægileg leikskólaföt. „Svo fáum við einnig ömmur og afa að kaupa gjafir handa barnabörnum. Við reynum því að hafa nokkuð fjölbreytt úrval til að uppfylla þarfir allra okkar viðskiptavina.“ Nú í haust var vöruúrvalið aukið umtalsvert og bjóða þau nú upp á vandaðan útifatnað frá Noregi og Danmörku – úlpur, kuldagalla og hlýjar húfur. Síðan er von á pollagöll- um, stígvélum og kuldaskóm. Á næstunni bætist svo við fullt af skemmtilegum leikföngum sem eru tilvalin í jólapakkana. Verslun Minimo er í Ármúla 34, en einnig eru þau með netverslunina www. minimo.is Mikil áhersla er lögð á að sinna netversluninni vel og vera með ítarlegar upplýsingar um vörurnar, m.a. fyrir fólk á lands- byggðinni, en þau finna fyrir að margir sem koma í verslunina eru jafnvel búnir að kynna sér vöruúr- valið í netversluninni og koma svo til að skoða vörurnar betur í eigin persónu. Í versluninni er þægilegt andrúmsloft og veitir starfsfólkið góða og persónulega þjónustu. www.minimo.is www.instagram.com/minimo.is/ www.facebook.com/ minimoisland/ Myndir: Eyþór Árnason 20. september 2019 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.