Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2019, Page 41
PRESSAN 4120. september 2019
Synirnir vissu ekki um
leyndarmál foreldranna
n Hefðbundin bandarísk fjölskylda á yfirborðinu
n Þáttaröðin „The Americans“ er byggð á sögu hjónanna
Þ
að var ekki annað að sjá en
Tracey Foley og Donald
Heathfield væru eins og
hverjir aðrir Kanadamenn
búsettir í Bandaríkjunum. En
það voru þau ekki. Þau bjuggu
í Boston með tveimur sonum
sínum þegar þessi saga hefst árið
2010. Þá voru synirnir, Alex og
Tim, 16 og 20 ára. Donald hafði
lagt stund á nám í Frakklandi
og gegndi stjórnunarstöðu hjá
bandarísku ráðgjafafyrirtæki.
Tracey hafði árum saman látið
synina vera í forgangi og unnið
heima en fór síðan að vinna sem
fasteignasali.
Á yfirborðinu var ekki annað
að sjá en hér væri um að ræða
venjulega bandaríska fjölskyldu
með kanadískar rætur. Þau
elskuðu að ferðast til útlanda og
synirnir voru hvattir til að vera
fræðast um heiminn.
Leyndarmálið afhjúpað
En hjónin áttu sér leyndarmál,
leyndarmál sem synirnir vissu
ekki einu sinni um. Þegar Tim
fagnaði tvítugsafmæli sínu þann
27. júní 2010 fór fjölskyldan
saman út að borða til að fagna
þessum merka áfanga. Síðan
fóru þau heim og opnuðu
kampavínsflösku. Tim ætlaði
að fara út með nokkrum vinum
sínum síðar um kvöldið. Eftir að
dreypt hafði verið á kampavíninu
fóru Tim og Alex inn í herbergin
sín til að slappa af.
Síðan var barið að dyrum.
Tracy fór til dyra og kallaði á Tim
því hún taldi að vinir hans væru
komnir. En þegar hún opnaði
útidyrnar blöstu við henni svart-
klæddir og vopnaðir menn sem
öskruðu: „FBI!“
Í kjölfarið komust bræðurnir
að ýmsu um foreldra sína. Þau
voru ekki kanadísk. Þau hétu
heldur ekki Tracey Foley eða
Donald Heathfield. Það voru
nöfn tveggja kanadískra barna
sem létust mörgum árum áður.
Þau hétu í raun Andrej Bezrukov
og Elena Vavilova. Bæði fædd í
Sovétríkjunum sálugu og bæði
voru þau njósnarar rússnesku
leyniþjónustunnar SVR.
En þau voru ekki einu
Rússarnir sem komst upp um því
átta aðrir voru einnig handteknir.
Ástæðan var að bandarískri
leyniþjónustu hafði tekist að
fá Alexander Potejev, sem var
aðstoðarforstjóri þeirrar deildar
rússnesku leyniþjónustunnar
sem sá um starfsemi njósnara á
erlendri grund, til að svíkja lit og
ganga Bandaríkjunum á hönd.
Hann lagði spilin á borðið í
kjölfarið og skýrði frá nöfnum tíu
rússneskra njósnara sem bjuggu
í Bandaríkjunum.
Andrej og Elena gengu í
hjónaband í Sovétríkjunum á
níunda áratugnum. Þau voru
bæði ráðin til starfa af KGB og
síðan fluttu þau til Vesturlanda
en hvort í sínu lagi. Þau fengu
síðan nöfn tveggja kanadískra
kornabarna sem létust á sjöunda
áratugnum.
Í lok níunda áratugarins
„hittust“ hjónin síðan í Kanada
en sá fundur þeirra var sviðsettur.
Þau byrjuðu að draga sig saman
í annað sinn en nú undir nýju
nöfnunum. Þau gengu síðan í
hjónaband, öðru sinni. Því næst
fluttu þau til Frakklands og síðan
til Boston. Allt var þetta gert
samkvæmt ákveðnu skipulagi til
að fela slóð þeirra.
Bók og sjónvarpsþættir
Elena skrifaði síðar bók um líf
þeirra sem njósnarar, hún heitir
„The Woman Who Can Keep
Secrets“. Um skáldsögu er að
ræða en hún er byggð á lífi þeirra.
„Njósnari verður að vera
leikari en leikari sem þarf
ekki áhorfendur eða svið og
þarfnast ekki viðurkenningar
frá öðrum,“ sagði Elena í viðtali
við The Guardian. En málið
hefur einnig orðið uppspretta
sjónvarpsþáttaraðar því
þáttaröðin „The Americans“ er
byggð á sögu hjónanna. Elena
hefur séð þættina og sagði að
í þeim sé hinum andlegu og
sálfræðilegu þáttum, sem hjónin
glímdu við, vel lýst. Hins vegar
hafi þau ekki stundað morð og
kynlíf í tengslum við starfið. Þau
hafi aldrei beitt ofbeldi eða klætt
sig í dulargervi. Hlutverk þeirra
hafi verið að búa til trúverðugar
persónur sem lifðu venjulegu lífi.
„Fólk heldur að við höfum
lifað á ystu nöf allan tímann
en í rauninni var lífið í föstum
skorðum og frekar leiðinlegt,“
sagði Elena.
Vísað úr landi
Hjónin játuðu að hafa unnið í
leyni fyrir rússnesk stjórnvöld.
Þau voru síðan send til Rússlands
ásamt hinum átta njósnurunum
í skiptum fyrir fjóra Rússa sem
höfðu verið sakfelldir fyrir að
hafa starfað fyrir vestræna
leyniþjónustu í Rússlandi.
Nokkrum dögum eftir að
hjónin voru send til Rússland
voru synir þeirra einnig sendir
þangað. Þeir voru sviptir
kanadískum ríkisborgararétti
en þeir fæddust í Toronto í
Kanada. Þetta var mikið áfall
fyrir þá þar sem þeir töluðu
ekki rússnesku og töldu sig vera
kanadíska og upplifðu sig sem
Kanadamenn. Þeir fóru með mál
sitt fyrir dóm til að reyna að fá
kanadíska ríkisborgararéttinn
aftur. Samkvæmt kanadískum
lögum eiga öll börn sem fæðast
í Kanada rétt á að fá kanadískan
ríkisborgararétt en það er þó ein
undantekning á þeirri reglu því
barn móður, sem starfar fyrir
erlent ríki, getur ekki fengið
ríkisborgararétt.
Málið hefur farið víða í
kanadíska réttarkerfinu og bíður
nú niðurstöðu hæstaréttar. Alex
fékk kanadískt vegabréf á meðan
beðið er eftir lokaniðurstöðu í
málinu. Hann gat því farið til
Kanada á síðasta ári en hann
vonast til að geta komið sér
fyrir í landinu og fengið vinnu
í bankageiranum. En foreldrar
hans geta ekki komið í heimsókn
því þeim er meinað að koma til
Kanada.
„Þau geta ekki komið hingað
og það er refsing þeirra. En af
hverju á ég að líða fyrir eitthvað
sem þau gerðu? Það stafar engin
hætta af mér. Ég er kanadískur
ríkisborgari og er hér til að lifa
mínu eigin lífi,“ sagði Alex í
viðtali við CBS News. n
Vissu ekkert Synirnir Alex og Tim.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Fyrirmyndin Saga hjónanna
varð uppsprettan að þáttunum
The Americans.
Undir fölsku
flaggi Tracey
heitir í raun Elena
Vavilova.