Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 80
Ég er ekki byrjuð en strax í desember fer ég að
baka. Ég er búin að plana mörgum mánuðum
fyrr hvað ég ætla að baka og ligg yfir uppskriftum og
reyni að láta mér detta eitthvað nýtt í hug. Ég er bæði
að búa til uppskriftir og breyti líka mikið gömlum
uppskriftum.
Kristín Arnórsdóttir
Kristín Arnórsdóttir stjórnmálafræðingur sigraði í smákökusamkeppni Líflands.
Hún segist haldin bökunaráráttu og planar jólabaksturinn með margra mánaða
fyrirvara. mynd/Ernir
Polýnesíurnar heilluðu dómnefndina: „Flott og góð jólakaka sem bráðnar í munni.
Smekkleg og falleg. Gott jafnvægi milli hráefnanna. Karamellan og kókosinn gera
gæfumuninn.“
Ég hef bakað frá því ég var fimm
ára og er með hálfgerða bökunar-
áráttu. Er annars í meistaranámi
í hagnýtri tölfræði en baksturinn
er ástríða sem mig dreymir um að
gera meira úr,“ segir Kristín Arn-
órsdóttir stjórnmálafræðingur en
hún sigraði smákökusamkeppni
Líflands á fimmtudaginn.
„Ég baka allt mitt með fimmtíu
ára gamalli KitchenAid-hrærivél
sem bæði amma og mamma not-
uðu og báðar þessar konur bök-
uðu mikið. Mér finnst hún nota-
leg tenging við ömmu mína. Ég
á nokkrar handskrifaðar upp-
skriftabækur frá báðum ömmum
mínum.“
Kristín segist fá útrás fyrir
sköpunargleðina við bakstur-
inn. Hún sé þó íhaldssöm þegar
kemur að skreytingum og hafi til
dæmis ekki tekið þátt í „sykur-
massabrjálæðinu“ eins og hún
kallar það. Hún sæki innblástur
til sjöunda og áttunda áratugar-
ins. Fyrir jólin bakar hún alltaf
nokkrar sortir.
„Ég er ekki byrjuð en strax í
desember fer ég að baka. Ég er
búin að plana mörgum mánuð-
um fyrr hvað ég ætla að baka og
ligg yfir uppskriftum og reyni að
láta mér detta eitthvað nýtt í hug,“
segir Kristín.
„Ég er bæði að búa til upp-
skriftir og breyti líka mikið göml-
um uppskriftum. Það hefur ekki
allt heppnast frábærlega en inn á
milli tekst eitthvað mjög vel. Yfir-
leitt eru minnst þrjár misheppn-
aðar tilraunir að baki hverri upp-
skrift sem heppnast.“
Hvers konar smákökur heilluðu
dómnefndina?
„Ég byggi uppskriftina á amer-
ískum skátakökum en ég var au-
pair í Bandaríkjunum sem ungl-
ingur. Litla stelpan sem ég pass-
aði var í skátunum og seldi kökur
í þessum dúr. Pólýnesíurnar eru
mjög jólalegar og dálítið tíma-
frekar í vinnslu. Þetta er hin full-
komna smákaka til að dunda sér
við og hlusta á jólalög.“
Umsögn dómnefndar Líflands
um smákökur Kristínar: „Flott og
góð jólakaka sem bráðnar í munni.
Smekkleg og falleg. Gott jafnvægi
milli hráefnanna. Karamellan og
kókosinn gera gæfumuninn.“
Notar 50 ára hrærivél ömmu
Kristín Arnórsdóttir stjórnmálafræðingur fór með sigur af hólmi í smákökusamkeppni Líflands í liðinni viku. Hún segist
haldin bökunaráráttu og hrærir deigið í gamalli hrærivél ömmu sinnar. Hún planar jólabaksturinn mánuðum saman.
PólýNesíur
225 g ósaltað smjör
100 g sykur
250 g KORNAX hveiti
¼ tsk. lyftiduft
½ tsk. salt
1 tsk. vanilludropar
2 msk. mjólk
l Hrærið smjör og sykur saman í
hrærivél eða með handþeytara.
l Sigtið saman öll þurrefnin og
hrærið þau vel saman við sykur-
inn og smjörið í þremur áföng-
um.
l Bætið mjólkinni og vanilludrop-
unum saman við með hönd-
unum þar til deigið helst vel
saman.
l Skiptið deiginu í tvær kúlur og
vefjið inn í plastfilmu.
l Setjið deigið inn í ísskáp í eina
klukkustund.
l Takið deigið út og rúllið þar til
það verður minna en ½ cm að
þykkt.
l Skerið út smákökur með litlu
glasi eða smákökuhring (um 5
cm í þvermál).
l Skerið svo minni hring út úr
hverri köku með t.d. flöskutappa
eða rjómasprautustút.
l Bakið í miðjum ofni við 175°C í
10-12 mínútur eða þar til að kök-
urnar verða ljósgylltar.
KóKostoPPur
500 g ljósar karamellur
250 g kókosmjöl
3 msk. rjómi
½ tsk. salt
100 g Nóa Siríus
suðusúkkulaði
l Ristið kókosmjölið í ofni í 10 mín-
útur við 175°C þangað til það
verður gyllt.
l Gætið þess að hræra í því af og
til svo það bakist jafnt.
l Bræðið karamellurnar yfir vatns-
baði og bætið rjómanum og salt-
inu út í þegar þær hafa bráðnað
alveg. Takið frá ¼ af karamellu-
bráðinni. Blandið kókosmjölinu
við ¾ af karamellubráðinni.
l Þegar smákökurnar hafa kólnað
er ¼ af karamellubráðinni smurt
yfir þær. Því næst er kókostopp-
urinn mótaður í höndunum fyrir
hverja köku og settur í hring ofan
á karamellubráðina, kælið.
l Að lokum er suðusúkkulaðið
brætt yfir vatnsbaði og botnin-
um á smákökunum dýft varlega
ofan í þar til súkkulaðið þekur
botninn. Restin af súkkulaðinu er
svo notuð til að skreyta kökurnar
að ofan.
Nýr og spennandi asískur
veitingastaður með hollustu
og ferskleika í fyrirrúmi
Komdu og smakkaðu
Wok on // Borgartúni 29 // Sími 561-6666
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n