Fréttablaðið - 13.02.2016, Page 4
Tölur vikunnar 06.02.2016 Til 12.02.2016
14.000
dýr eru í stofni hnúfubaka
við Ísland en
voru 2.000 í
talningu 1987.
40 milljónir
af skattfé er svokallað skúffufé
ráðherra – sem þeir deila út eftir
eigin geðþótta.
250
milljónir
fékk Landspítalinn til
bráðaviðhalds en bað um
fimm sinnum meira.
80%
fatlaðra kvenna hafa
orðið fyrir andlegu og
líkamlegu ofbeldi, sýna
rannsóknir.
100.000
tonn af loðnu gefa um
12 milljarða króna í
útflutningsverðmæti.
Árni Páll Árnason
formaður Samfylkingarinnar
sagði í bréfi til flokks-
félaga sinna að
Samfylkingin
hefði gert
mörg mistök
frá því að
flokkurinn
fór í ríkisstjórn
með Sjálfstæðis-
flokknum árið 2007.
Hann reifaði meðal annars stuðning
við Icesave-samning sem ekki hefði
varið hagsmuni þjóðarinnar og
aðildar umsókn að Evrópusamband-
inu án umboðs frá þjóðinni.
Karen Sæberg
Guðmundsdóttir
sem er sjö ára
var útnefnd
skyndi-
hjálparmaður
ársins á
112-deg-
inum. Karen
bjargaði lífi
móður sinnar sem
fékk flogakast í heitum potti. Karen
var ásamt móður sinni og Júlíusi vini
sínum að leika sér í heita pottinum í
garðinum þegar móðir hennar fékk
flogakast. Karen hélt höfði móður
sinnar upp úr og bað Júlíus vin sinn
um að hlaupa inn eftir hjálp.
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri
sagði á Face-
book-síðu
sinni að það
hefði fokið
hressilega í
hann við að
lesa frétt um
að 11 ára stúlka
í Fellaskóla, sem ekki er í matar-
áskrift hjá Reykjavíkurborg, hefði
ekki fengið að taka þátt í pítsuveislu
í skólanum. Stúlkan fór með 500
krónur til að kaupa pítsusneið en
var neitað um það í mötuneytinu og
einnig hjá skólastjóra.
Þrjú í fréttum
Pólitískar deilur
og pítsupartí
26
26
sinnum tók lögreglan fjármuni
eða flugmiða af útlendingum á
árunum 2005 til 2014.
læknir starfar
fyrir Útlend-
ingastofnun og
oft er löng bið
eftir nauðsyn-
legri þjónustu.1
14,1
milljarður
var hagnaður
Icelandair Group
árið 2015.
heilbrigði Matvælastofnun (MAST)
leggur þunga áherslu á að upplýsa
uppruna og mögulega dreifingu
katta flóar sem greindist á ketti í
Garðabæ fyrir skemmstu. Um heim-
iliskött er að ræða og því enn ekkert
vitað um uppruna smitsins.
Kattafló getur valdið bæði dýrum
og mönnum miklum óþægindum
og jafnvel veikindum. Matvæla-
stofnun hvetur fólk til að vera á
varðbergi gagnvart þessari óværu
og leggur mikla áherslu á að reynt
verði að uppræta hana.
Dýralæknar á Dýraspítalanum
í Garðabæ fengu grun sinn um
katta flóna staðfestan á Tilraunastöð
Háskóla Íslands að Keldum í síðustu
viku og Matvælastofnun var til-
kynnt um greininguna á mánudag.
Þóra J. Jónasdóttir, sérgreina-
læknir hjá MAST, segir flóna lifa á
hundum og köttum, en vissulega
geti manneskja borið á milli flær í
stuttan tíma í fatnaði. Flóin sé kvik
og eigi auðvelt með að stökkva á
milli hýsla. Sjaldgæft er að flóin
beri bakteríur sem valda alvarlegum
sjúkdómum í mönnum. Hins vegar
eru dæmi þess og því mikilvægt að
uppræta flóna strax eins og tekist
hefur áður – á hundum á árunum
1980 og 1984 og á innfluttum dýrum
í einangrun í Einangrunarstöðinni í
Reykjanesbæ árin 2012 og 2013.
Þóra hvetur til þess að katta-
eigendur og aðrir séu vakandi og
skoði dýrin sín jafnvel sérstaklega
núna. „Þetta er sníkjudýr sem við
viljum alls ekki fá inn í landið, og
full ástæða er til að fólk taki þetta
tilvik alvarlega. Sérstaklega þar sem
smitleiðirnar eru ekki enn þekktar,“
segir Þóra og vísar á upplýsingar á
heimasíðu stofnunarinnar. Þar má
finna upplýsingar sem geta hjálpað
við greiningu, og það hjálpar að
fuglaflóin er almennt ekki mikið á
kreiki á þessum árstíma þannig að
ef maður sér eitthvað kvikt í feldi er
rétt að láta dýralækni skoða dýrið.
Þóra bendir á að þrátt fyrir að
sníkjudýrameðhöndlunar gæludýra
sé krafist áður en þau eru flutt inn til
landsins þá hefur komið upp fjöldi
tilfella þar sem bæði inn- og útvortis
sníkjudýr hafa greinst hjá dýrum í
Einangrunarstöðinni og þannig
verið hægt að uppræta smitið strax.
Sum þeirra sníkjudýra geta bæði
smitað menn og dýr.
svavar@frettabladid.is
Óværa sem skaðar menn og dýr
Kattafló fannst á heimilisketti í Garðabæ fyrir stuttu, en hún er ekki landlæg. Mikil áhersla er lögð á að upp-
ræta óværuna enda veldur hún bæði dýrum og mönnum miklum óþægindum og jafnvel veikindum.
Mælt er með því að kattaeigendur skoði dýr sín vel til að ganga úr skugga um að
katta fló sé þar ekki að finna. fréttablaðið/stefán
Mikilvægar upplýsingar um kattaflær
l Vel sýnilegar með berum augum.
l Ef dýrin klóra sér, sleikja eða bíta í
húðina meira en venjulega er rétt
að skoða feldinn vel.
l Flærnar eru dökkbrúnar, um 1-3
millimetrar að stærð og eru því
sýnilegar með berum augum.
l Stundum getur verið erfitt að
koma auga á flærnar sjálfar og oft
auðveldara að sjá flóaskítinn.
l Hafið samband við dýralækni ef
grunur um flær vaknar.
l Dýrin þarf að meðhöndla og
samhliða þarf að gera ráðstafanir
á heimilinu til að upp-
ræta flærnar.
l Egg flónna falla af
dýrinu og klekjast
út t.d. í teppum, hús-
gögnum og glufum í
gólfi. Lirfurnar þrífast best
við stofuhita og hátt rakastig.
l Lirfurnar púpa sig eftir nokkra
daga og fullorðnar flær koma
svo úr púpunum þegar aðstæður
eru hentugar, s.s. þegar lifandi
dýr eða manneskja er í hæfilegri
nálægð. Heimild: Matvælastofnun
viðskipTi Steinþór Pálsson, banka-
stjóri Landsbankans, vill ekki úti-
loka að bankinn leiti réttar síns í
Borgunarmálinu, þrátt fyrir svör
stjórnenda Borgunar við fyrirspurn
bankans. Landsbankinn hafi verið
grandalaus varðandi mögulegar
greiðslur til Borgunar vegna yfir-
töku Vísa í Bandaríkjunum á Vísa í
Evrópu.
Landsbankinn óskaði í síðustu
viku eftir upplýsingum frá stjórn-
endum og kaupendum Borgunar
um hvers vegna bankinn hefði ekki
verið upplýstur um þessar greiðslur
sem nema 6,4 milljörðum króna.
Borgun svaraði bankanum á þriðju-
dag en þar segir meðal annars að
stjórnendur hafi ekki búið yfir upp-
lýsingum um hvort eða hvenær Vísa
í Evrópu yrði selt né um mögulegar
greiðslur og upphæð þeirra.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 benti
Steinþór á að stjórnendur Borgun-
ar hefðu lýst því yfir að þeir hefðu
vitað að Borgun ætti tilkall til hlut-
deildar í þessum valrétti ef einhver
greiðsla kæmi til þar. „Við fengum
ekki þær upplýsingar og vorum
grandalausir um þessi verðmæti,“
sagði Steinþór.
Hið sama mætti segja um marga
aðra sem hefðu verslað með bréf af
þessu tagi á undanförnum árum.
„Aðrir hafa líka verið grandalausir.
það hefði verið gott ef við hefðum
verið upplýstir um þetta á sínum
tíma, en við vorum það ekki.“
Steinþór segir ekki liggja fyrir á
þessari stundu hvort tilefni sé til
málsóknar vegna Borgunarmálsins.
- jhh / hks
Bankastjórinn útilokar ekki málsókn
„Við fengum ekki þær upplýsingar og vorum grandalausir um þessi verðmæti,“
segir steinþór. fréttablaðið/VilhelM
1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð