Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 16

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 16
Samfélag Kona á níræðisaldri var flutt með sjúkraflugi frá Reykja- vík til Ísafjarðar án vitneskju aðstandenda síðastliðinn þriðju- dag. Konan er búsett á Patreksfirði og hafði legið á bæklunardeild Borgarspítalans. Markmiðið með flutningnum var sá að leyfa kon- unni að liggja inni á sjúkrahúsi í heimabyggð. Á vetrum eru hins vegar 444 kílómetrar frá Patreksfirði til Ísa- fjarðar þar sem stysta leið milli Vesturbyggðar og Ísafjarðarbæjar lokast iðulega á vetrum og opnast ekki fyrr en vetri hallar. Að sama skapi eru 392 kílómetrar milli Pat- reksfjarðar og Reykjavíkur. Þetta gerir það að verkum að konan, sem fædd er árið 1930, er flutt fimmtíu kílómetrum fjær heimabyggð en ef hún hefði fengið að liggja í Reykja- vík. Ásrún Atladóttir, dóttir kon- unnar sem um ræðir, er að vonum ósátt við þetta ráðslag. „Ég fór inn á Borgarspítala til að heimsækja móður mína og þá fannst hún ekki. Eftir mikla leit var mér tjáð að hún hefði verið flutt vestur á Ísafjörð án þess að við værum látin vita. Hún á ekki aðstandendur á Ísafirði og mér var í sannleika sagt afar brugðið við að hún hefði verið flutt þangað. Sérstaklega þar sem ég veit að henni er alls ekki vel við að fljúga. Ég hefði þá viljað fara með henni og sjá til þess að henni liði bærilega,“ segir Ásrún, sem ætlar með málið lengra. „Ég ætla að láta skoða það ræki- lega hvernig á þessu stendur. Það er henni alls ekki fyrir bestu að liggja á Ísafirði.“ Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans, segist ekki geta tjáð sig um mál ein- stakra sjúklinga. Hún sagði hins vegar að málið yrði tekið til skoð- unar innan sjúkrahússins. sveinn@frettabladid.is Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið RÚV-reiturinn H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Dagskrá: Breyting á aðalskipulagi á RÚV-reit Kynnt verða drög að breytingu á aðal- skipulagi sem felst í fjölgun íbúða á svæðinu (þróunarsvæði nr. 58, miðsvæði 21). Nýtt deiliskipulag fyrir RÚV-reit Kynnt verða drög að nýju deiliskipulagi sem felst í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði í samræmi við markmið Reykjavíkurborgar í nýju aðalskipulagi. Tillagan var unnin í kjölfar hugmyndasamkeppni um deiliskipulag lóðar RÚV sem efnt var til í lok janúar 2015. Arkitektastofan Arkþing varð hlutskörpust í keppninni sem fór fram að loknu forvali. Ætlunin er að endurskoða uppbyggingar- möguleika á lóð RÚV við Efstaleiti og samliggjandi lóðum innan reitsins með þéttingu og gæði byggðar að leiðarljósi. Allir velkomnir Opinn kynningarfundur um breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag fyrir RÚV-reitinn, þriðjudaginn 16. febrúar kl. 17 á Markúsartorgi í RÚV, Efstaleiti 1. ERTU AÐ TAKA LÁN EÐA ENDURFJÁRMAGNA? Almenni lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum á upplýsingafund um lánamarkaðinn og það sem hafa ber í huga við lántöku. Erindi: • Eigið fé í fasteignum, Gyl Magnússon, dósent í viðskiptafræðideild HÍ. • Hvað þarf að hafa í huga við lántöku? Brynja M. Kjærnested og Þórhildur Stefánsdóttir ráðgjafar hjá Almenna. Eftir framsöguerindi sitja Gyl, Brynja og Þórhildur fyrir svörum ásamt Dan V.S. Wiium hdl. og löggiltum fasteignasala. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. Skráning á almenni.is. Þriðjudagur 16. febrúar kl. 20:00 á Icelandair Reykjavík Hótel Natura, Bíósalur Flutt í sjúkraflugi fjær heimili Kona á 86. aldursári frá Patreksfirði var send frá Reykjavík til að liggja á sjúkrahúsi á Ísafirði. Að- standendur voru ekki látnir vita. Er í meiri fjarlægð frá heimili sínu á Ísafirði en í Reykjavík. Ég fór inn á Borgar- spítala til að heim- sækja móður mína og þá fannst hún ekki. Ásrún Atladóttir tónmenntakennari og aðstandandi Styttra til Reykjavíkur en Ísafjarðar Öldruð kona var færð á sjúkrastofnun sem er 52 km fjær heimabæ hennar Patreksfjörður Ísafjörður Reykjavík Kleifaheiði Þröskuldar Steingrímsfjarðarheiði Barðastr andarsý sla Djúp Svínadalur Brattabrekka Borgarfjarðarbrú Hvalfjarðargöng 444 km frá Patreksfirði til Ísafjarðar 392 km frá Patreksfirði til Reykjavíkur 1 3 . f e b R ú a R 2 0 1 6 l a U g a R D a g U R16 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.