Fréttablaðið - 13.02.2016, Síða 44
| AtvinnA | 13. febrúar 2016 LAUGARDAGUR6
Starf sálfræðings
er laust til umsóknar
Fjölskylduþjónusta Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir
að ráða sálfræðing til starfa. Starfið er hvort tveggja á sviði
skólaþjónustu og félagsþjónustu. Það fer eftir samkomulagi
við viðkomandi hvenær störf hefjast.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur.
• Þekking á þroska og þroskafrávikum barna.
• Reynsla af sálfræðilegri greiningu og ráðgjöf vegna barna.
• Þekking og reynsla af ráðgjöf í barnaverndar- og fjölskyldu-
málum.
• Leikni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði.
• Reynsla af starfi skólasálfræðings er kostur.
Fjölskylduþjónusta Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur á að
skipa vel menntuðu fagfólki, félagsráðgjöfum, uppeldis- og
sálfræðiráðgjafa, þroskaþjálfum, sérkennurum, kennsluráð-
gjöfum, námsráðgjafa og talmeinafræðingi. Áhersla er lögð
á heildstæða og samþætta þjónustu, þverfagleg vinnubrögð
og samvinnu þjónustustofnana. Nú vantar okkur sálfræðing
í teymið en löng hefð er fyrir vinnu sálfræðings í samstarfs-
hópnum.
Helstu verkefni sálfræðings:
• Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum.
• Ráðgjöf við foreldra og starfsmenn leik- og grunnskóla.
• Þverfaglegt starf í skóla, félagsþjónustu, barnavernd o.fl.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Laun og starfskjör eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Sálfræðingafélags Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2016
Nánari upplýsingar um starfið gefur sviðsstjóri fjölskyldu-
sviðs, Herdís Á Sæmundardóttir í síma 455-6088 eða með því
að senda fyrirspurn á netfangið has@skagafjordur.is.
Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila
í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is
(laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi