Fréttablaðið - 13.02.2016, Page 73

Fréttablaðið - 13.02.2016, Page 73
Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Fyrirhuguð breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Miðborgin. Landnotkun og sérstök ákvæði um starfsemi Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Þann 11. febrúar 2016 samþykkti Borgarráð Reykjavíkur verkefnislýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, er varða stefnumörkun um þróun miðborgarinnar. Megin tilgangur verkefnisins er að endurmeta heildrænt stefnuákvæði um miðborgina í ljósi þróunar undanfarinna ára, einkum varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu. Einnig er markmiðið að endurskoða ákvæði sem gilda um starfsemi við einstakar götuhliðar og almennt að gera stefnumörkun um miðborgina skýrari og markvissari. Fyrirhugaðar breytingar varða einkum svæðið sem skilgreint er sem miðborg (Ma1, M1b, M1b) í aðalskipulaginu en geta einnig fjallað um aðliggjandi svæði. Með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er verkefnislýsingin lögð fram til kynningar og umsagnar (sjá reykjavik.is). Óskað er eftir því að athugasemdum við verkefnislýsinguna verði komið á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik.is fyrir 1. mars 2016. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar Velferðarsvið Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki til forvarna- rverkefna úr Forvarnarsjóði Reykjavíkur. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni. Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til almennra forvarnarverkefna í borginni. Verkefnin gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni. Stofnanir Reykjavíkurborgar eða starfsmenn þeirra geta ekki sótt um styrki í sjóðinn en geta verið samstarfsaðilar í verk- efnum sem aðrir sækja um styrk til. Sótt er um styrkinn á heimasíðu sjóðsins: www.reykjavik.is/forvarnarsjodur Þar er einnig hægt að nálgast úthutunarreglur forvarnarsjóðs. Opnað er fyrir umsóknir 15. febrúar kl. 12:00 og er umsóknar- frestur til miðnættis 15. mars 2016. Alls eru 10 milljónir króna til úthlutunar úr Forvarnarsjóðnum árið 2016. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félags- auð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja: • Forvarnir í þágu barna og unglinga • Eflingu félagsauðs í hverfum borgarinnar • Bætta lýðheilsu • Markvisst samstarf íbúa, félagasamtaka, og fyrirtækja í þágu forvarna og félagsauðs • Önnur verkefni sem mæta þeim markmiðum sem borgarstjórn setur hverju sinni Forvarnarsjóður Reykjavíkur Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu VM, www.vm.is, þar sem nálgast má umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar. Sjóðurinn veitir tvennskonar styrki n Til rannsóknarverkefna sem tengjast vinnu-umhverfi eða aðbúnaði félagsmanna VM og þróun námsefnis og kennsluaðferða til menntunar þeirra. n Til ýmiss konar brautryðjenda- og þróunarstarfs sem hefur samfélagslegt gildi, menningarstarfsemi eða listsköpunar. n Einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og menntastofnanir geta sótt um styrk úr sjóðnum. Umsóknir berist Akki, Styrktar- og menningar- sjóði VM, eigi síðar en 14. mars 2016. auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum VM-Félag Vélstjóra og MálMtækniManna Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík 575 9800 - www.vm.is Landsfélag í vél- og málmtækni EINSTAKT TÆKIFÆRI! TIL SÖLU FYRIRTÆKI Í FRAMLEIÐSLU OG PÖKKUN Á MATVÆLUM MEÐ 5 STÖÐUGILDI. ÖFLUGT FYRIRTÆKI MEÐ MIKLA MÖGULEIKA. SALA OG DREIFING TIL HELSTU VERSLANAKEÐJA OG MÖTUNEYTA. REKSTUR SEM GÆTI HENTAÐ TVEIMUR EÐA FLEIRI EINSTAKLINGUM. Sendið fyrirspurn með upplýsingum um nafn heimilisfang, kennitölu og símanúmeri á: matvara777@gmail.com LÓÐ FYRIR VEITINGAHÚS VIÐ ARNARNESVOG Skilmálar umsóknar ALMENNT Garðabær auglýsir eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum til að byggja og starfrækja veitingahús á lóð við Arnarnesvog. Lóðin er við Ránargrund og er 4.089 m² að stærð og er heimilt að byggja á henni veitingahús sem er allt að 500 m² að stærð. Lóðin er á góðum útsýnisstað við Arnarnesvog og í góðum tengslum við útivistarsvæði Sjálandshverfis og Arnarneslækjar og við hjóla- og göngustígakerfi milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Um nánari skipulagsskilmála lóðarinnar er vísað til meðfylgjandi skipulagsuppdrátta á gardabaer.is. Verð fyrir byggingarrétt er kr. 19.194.568 (miðað við febrúar 2016). Gatnagerðagjöld eru innifalin. UMSÓKN Umsóknum skal skilað til þjónustuvers Garðabæjar í Ráðhúsinu, Garðatorgi 7 í síðasta lagi kl. 14:00 föstudaginn 27. febrúar 2016. Með umsókn skal s ila eftirtöldum gögnum: Upplýsingar um umsækjanda • Fullt nafn umsækjanda og kennitala • Ef um fyrirtæki er að ræða skal útskrift úr hluthafaskrá fylgja • Upplýsingar um fjárhag umsækjanda (t.d. í formi útskriftar frá Creditinfo) Greinargerð um væntanlegan veitingarekstur • Lýsing á hugmyndum um starfsemi veitingastaðar • Rekstrar- og fjármögnunaráætlun vegna veitingarekstrar • Áætlun um framkvæmdir sem sýnir tímasetningar megináfanga í uppbyggingu veitingastaðar Hugmyndir um byggingu • Lýsing á hugmyndum um gerð og útlit byggingar, studd með skissum eða myndum sem gefa mynd af væntanlegu húsi, veitingaaðstöðu o.fl. og þeirri stemningu sem umsækjandi hyggst ná í aðstöðunni • Fjárfestingaráætlun, þ.e. hugmyndir um stofnkostnað og fjármögnun byggingar GJÖLD AF LÓÐ Gatnagerðargjöld af lóðinni eru kr. 9.597.284 (miðað við febrúar 2016) miðað við að byggt verði 500 m² hús. MAT UMSÓKNA Garðabær mun meta umsóknir með eftirfarandi hætti: 1. Fjárhagslegur styrkur umsækjanda, þ.e. fjárhagslegt bolmagn til þess að standa undir fjárfestingu og rekstri 2. Mat á hugmyndum um fyrirkomulag byggingar 3. Raunhæfni hugmynda um uppbyggingu, fjárfestingu og rekstur veitingastaðar VIÐRÆÐUR Umsækjendum, sem þess óska, verður boðið til viðræðna um nánari skýringar á umsókn sinni og hugmyndum um uppbyggingu. Umsækjendur, sem boðið verður til viðræðna, verða valdir þannig að fyrst verður fjárhagslegt bolmagn þeirra skv. lið 1 í mat umsókna metið og síðan verður umsóknum raðað í samræmi við matsliði 2-3. Að loknum þessum viðræðum verður leitað samninga við einn úr hópi þessara umsækjanda. GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.