Fréttablaðið - 13.02.2016, Síða 106

Fréttablaðið - 13.02.2016, Síða 106
TónlisTin er eins og áherslupenni sem lyfTir undir ljóðin og magnar Tilfinninguna. TÓNLIST Sinfóníutónleikar HHHHH Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti Leningrad-sinfóníuna eftir Shost- akovitsj og fyrsta píanókonsertinn eftir Tsjajkovskí. Einleikari: Kirill Gerstein. Stjórnandi: James Gaff- igan. Eldborg í Hörpu Fimmtudaginn 11. febrúar Þegar þýski herinn umkringdi Len­ ingrad (St. Péturborg) árið 1941 var Dmitri Shostakovitsj staddur þar og var í óða önn að semja sjöundu sinfóníu sína. Er hún var frum­ flutt skömmu síðar auglýsti Stalín hana óspart í áróðursskyni, e.t.v. til að vekja samúð umheimsins. Það bar árangur því fjallað var um sin­ fóníuna víða um heim. Time birti ítarlega grein um verkið. Á for­ síðunni var mynd af tónskáldinu sem verkalýðshetju – í slökkviliðs­ búningi! Fyrirsögnin var: „Mitt í sprengjuárásunum á Leningrad heyrði slökkviliðsmaðurinn Shost­ akovitsj hljóma sigursins.“ Sagt var að Shostakovitsj hefði samið sinfóníuna þegar hann var ekki að horfa á eyðilegginguna frá þakinu á tónlistarskólanum, og þegar hann var ekki að grafa skurði fyrir rúss­ neska hermenn. Fyrsti kafli sinfóníunnar er mjög sérstæður. Hann minnir sterklega á Bóleró eftir Ravel. Þar er sama stefið endurtekið aftur og aftur með sívax­ andi þunga. Andrúmsloftið er eró­ tískt, en hér er stemningin allt öðru­ vísi. Hún er miklu hrikalegri. Það er auðvelt að sjá fyrir sér marserandi hermenn og skriðdreka. Hápunkt­ urinn er ógnvænlegur og öflin sem takast á, bæði í fyrsta þættinum og hinum líka, eru mögnuð. Þetta skilaði sér í vönduðum flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn James Gaffigan á tónleikum á fimmtudagskvöldið. Hljóðfæraleikurinn var nákvæmur og maður dáðist að því hve strengja­ leikararnir voru samtaka. Bæði í veikustu tónunum og einnig þegar allt ætlaði um koll að keyra. Heilt gengi af slagverksleikurum með Steef van Oosterhout í broddi fylk­ ingar var með sitt á hreinu. Sama má yfirleitt segja um málmblásarana. Almennt talað var túlkun Gaffigans á verkinu sérlega sannfærandi. Styrk­ leikabrigði voru meistaralega útfærð og uppbyggingin var markviss. Stíg­ andin var úthugsuð og hápunktarnir voru gæddir sprengikrafti. Hitt verkið á efnisskránni var hinn sívinsæli fyrsti píanókonsert eftir Tsjajkovskíj í meðförum Kirill Gerstein. Konsertinn var hér í eldri mynd sinni. Seinni útgáfan sem venjulega er spiluð kom ekki út fyrr en ári eftir að Tsjajkovskíj dó. Það er ósennilegt að hann hafi sjálfur átt hugmyndina að breytingunum sem þá höfðu verið gerðar. Konsertinn sem hér hljómaði, eldri útgáfan, var því sú sem Tsjajkovskíj stjórnaði margoft og hafði lagt blessun sína yfir. Það var forvitnilegt að heyra kons­ ertinn svona. Hann var ekki sérlega frábrugðinn venjulegu gerðinni og margt í honum var flott, þó hin gerðin sé vissulega straumlínulagaðri og glæsilegri. Hvað um það, einleikarinn var frá­ bær. Hann hristi erfiðustu tónahlaup fram úr erminni eins og ekkert væri. Túlkun hans var skemmtilega öfga­ full, hápunktarnir voru svo geggjaðir að dásamlegt var á að hlýða. Sumt var e.t.v. ívið hratt, eins og miðhluti annars kafla, sem var nánast eins og grínatriði. En í það heila var flutn­ ingurinn rafmagnaður og fullur af dirfsku. Vonandi fær maður að heyra í þessum snilldar píanista aftur sem fyrst. Jónas Sen NIðurSTaða: Stórbrotinn flutningur á Leningrad-sinfóníunni eftir Shost- akovitsj og fyrsti píanókonsert Tsjaj- kovskíjs var mergjaður. Verkalýðshetja í slökkviliðsbúningi Kirill Gerstein píanóleikari og James Gaffigan stjórnandi voru klappaðir fram af sneisafullum Eldborgarsal Hörpunnar í lokin og hljómsveitin átti örugglega sinn skerf af aðdáun gestanna. Mynd/GrEipur Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir ljóðadagskrá í Iðnó tvo næstu daga klukkan 20. Þar verða ljóð Nínu Bjarkar Árnadóttur flutt með tónum tangósveitarinnar Mandólín. Dag­ skráin nefnist „svo grætur garðurinn laufi“. Þórunn Magnea Magnúsdóttir leikkona er leikstjóri dagskrárinnar. Hún segir hana þriðju stóru ljóða­ dagskrána sem þær stöllur flytji í Iðnó. „Í þetta sinn erum við með hljómsveit með okkur,“ segir Þór­ unn. „Tangóhljómsveitin Mandólín spilar tangóa sem tvinnast saman við ljóðin, án þess að við syngjum þau. Tónlistin er eins og áherslupenni sem lyftir undir ljóðin og magnar tilfinninguna.“ Helga Björns hannar búningana. „Í upphafi eru leikkonurnar í svörtum kjólum og svo bæta þær á sig litum þegar líður á. Það er svolítið í anda ljóðanna. Við byrjum á æskunni en svo koma nýir tónar inn í lífið, ástin fer að trufla og eitt og annað.“ Þórunn kveðst hafa kynnst ljóð­ skáldinu Nínu Björk þegar þær voru fimmtán ára og fylgst með henni eftir það. „Við vorum alltaf í vin­ fengi,“ undirstrikar hún. Leikhús­ listakonurnar sem komnar eru yfir fimmtugt hittast reglulega í Iðnó, hvort sem þær eru að undirbúa við­ burð eða ekki. „Það er alltaf hitt­ ingur einu sinni í viku og þær mæta sem geta,“ segir Þórunn. „Í hópnum eru leikkonur, sminkur, búninga­ hönnuðir, leikstjórar, leikmynda­ hönnuðir, sýningarstjórar, leikhús­ fræðingar, alls yfir 100 konur. Iðnó er okkar heimili og þar eigum við alltaf skemmtilegar stundir.“ gun@frettabladid.is Tangóarnir tvinnast við ljóðin ragnheiður Steindórsdóttir, Edda Þórarinsdóttir, rósa Guðný Þórsdóttir, Guð- laug María Bjarnadóttir, Lilja Þórisdóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Helga Björnsson standa að dagskránni í iðnó að þessu sinni. FréttaBLaðið/StEFánDagur ástarinnar Valentínusardagur 14. febrúar A4 valentinusardagur.pdf 1 09/02/15 11:42 1 3 . f E b r ú a r 2 0 1 6 L a u G a r D a G u r46 M E N N I N G ∙ f r É T T a b L a ð I ð menning
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.