Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 114

Fréttablaðið - 13.02.2016, Side 114
Seinna undankvöldið í Söngvakeppninni verður í kvöld Sex lög etja kappi um að komast áfram. Keppendur kvöldsins svöruðu nokkrum skemmtilegum spurningum. Þegar ég var í háskóla í Nott-ingham byrjaði ég að vinna á bar og fór svo að reka bari aðeins síðar og hélt því áfram. Þú ert alltaf að hitta nýtt fólk, færð að vera skapandi og engir tveir dagar í vinnunni eru eins. Þetta er búin að vera skemmtileg ferð og núna ferðast ég um heiminn og bý til drykki sem ég er viss um að er draumur margra,“ segir barþjónn- inn Ali Reynolds sem staddur var hér á landi á dögunum að kenna nám- skeið í tengslum við World Class Bar- tending keppnina sem er ein stærsta og virtasta barþjónakeppni í heimi. Ísland tekur þátt í keppninni í fyrsta sinn í ár en hún fer fram næsta haust. Í fyrra var Ali í fjórða sæti í keppninni og atti kappi við þrjú þúsund aðra áhugasama barþjóna um að fá að fara sem fulltrúi Bretlands en hann starfar á veitinga- og kokteilastaðn- um Hawksmoor í London. Þegar hann er spurður að því hvort hann hafi búist við að barþjóna- vinnan sem hann fékk í háskóla yrði til þess að hann ferðaðist um heiminn er hann fljótur að neita því. Á Hawksmoor er kokteilalist- anum breytt mánaðarlega og segir Ali sífelldar tilraunir vera eitt af því skemmtilegasta við starfið. „Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Mér finnst það vera það góða við þennan bransa. Innblásturinn kemur alls staðar að,“ segir hann og heldur áfram: „Að ferðast og fá tæki- færi til þess að sjá nýja hluti hjálpar auðvitað til og ég mun tvímælalaust taka einhvern innblástur með mér héðan frá Íslandi og heim.“ Innblásturinn kemur alls staðar að Barþjónninn Ali Reynolds var á dögunum hér á landi og hélt námskeið fyrir kokteilakeppnina World Class Bartend- ing. Ali er á lista yfir sex bestu barþjóna heims og segir að í heimahúsi sé best að halda kokteilagerðinni einfaldri. Ali Reynolds segir sífelldar tilraunir vera það sem geri starfið skemmtilegt. FRéttAblAðið/ERniR Alda Dís Arnar- dóttir flytur lagið Augna- blik. Alma Guðmunds- dóttir og James Wong sömdu lagið. Þau sömdu einnig textann ásamt Öldu Dís. Uppáhaldsdýrið þitt? Hundar. Hvar á að halda keppnina hér á landi ef við vinnum? Í tómu vatns- verksmiðjunni í Rifi í Snæfellsbæ, ekki spurning! Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? All Out of Luck með Selmu Björns og Ne partez pas sans moi með Celine Dion. Hver viltu að verði næsti forseti Íslands? Ég þarf að kynna mér þessar forsetakosningar betur en ef ég þyrfti að svara þá var ég orðin soldið spennt fyrir Halldóru Geirharðs. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? Mamma en líka allar konur með gott sjálfstraust, það er svo aðdáunarvert og alls ekki sjálfgefið! Selma BjörnS og CelIne DIon VorU FloTTaSTar Pálmi Gunnarsson flytur lagið Ég leiði þig heim. Lag og texti er eftir Þóri Úlfarsson. Hvert er uppáhalds- dýrið þitt? Hrafninn. Hvar á að halda keppn- ina hér á landi ef við vinnum? Á Vopnafirði. Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? Waterloo. Hver viltu að verði næsti forseti Íslands? Snorri Ás- mundsson. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? Móðir mín. HölDUm keppnIna á VopnaFIrðI Guðmundur Snorri Sigurðarson flytur lagið Spring yfir heiminn ásamt Þórdísi birnu borgarsdóttur. Júlí Heiðar Halldórs- son samdi lagið og einnig textann ásamt Guðmundi Snorra. Uppáhaldsdýrið þitt? G: Uppáhalds- dýrið mitt er suður- afrísk grameðla, helst gráblá, en sætti mig alveg við annan lit. Þ: Kisa Hvar á að halda keppnina hér á landi ef við vinnum? G: Það þarf að halda hana í túninu heima. Þ: Í Herjólfsdal. Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? G: Lagið sem Malta tók árið 2001. Þ: Euphoria. Hver viltu að verði næsti forseti Ís- lands? G: Jón Gnarr þarf að koma sér á Bessastaði. Þ: Er bara frekar hlutlaus eins og er. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? G: Fyrirmyndir mínar eru faðir minn, Donald Glover & Aaron Paul. Þ: For- eldrar mínir. SUðUraFríSk grameðla og kISa í UppáHalDI Elísabet Ormslev flytur lagið Á ný. Greta Salóme Stefáns- dóttir á lag og texta. Uppáhaldsdýr? Kettir, pöndur og hundar. Hvar á að halda keppn ina hér á landi ef við vinnum? Í Kórnum í Kópa- vogi. Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? Molitva – Marija Serifovic og Love Injected – Aminata. Hver viltu að verði næsti forseti Íslands? Ég vil fá Vig- dísi Finnboga aftur. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? Mamma mín, afi minn og Adele. Helgi Valur Ásgeirsson flyt- ir lagið Óvær. Lag og texti er eftir Karl Olgeirsson. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Svarti pardusinn. Hvar á að halda keppnina hér á landi ef við vinnum? Á Selfossi. Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? Euphoria. Hver viltu að verði næsti forseti Íslands? Páll Óskar. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? Mamma. palla á BeSSaSTaðI Magnús thorlacius flytur lagið Ótöluð orð ásamt Ernu Mist. Þau sömdu bæði lag og texta saman. Hvert er uppá- haldsdýrið þitt? Magnús: Uppá- haldsdýrið mitt er kisi. Erna: Mitt uppáhaldsdýr er kisi. Hvar á að halda keppnina hér á landi ef við vinnum? Magnús: Við ættum að halda hana í Hljómskála- garðinum. Erna: Við ættum að halda hana í Hvalfirðinum. Uppáhalds Eurovisionlag allra tíma? Magnús: Monster Like Me, Noregur í fyrra. Erna: Andvaka sem lenti í öðru sæti þegar Silvía Nótt var í fyrsta sæti. Hver viltu að verði næsti forseti Íslands? Magnús: Bara einhver skemmtilegur. Erna: Páll Óskar. Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu? Magnús: Erna. Erna: Tim Burton. HljómSkálagarðUrInn eInSTaklega HenTUgUr VIll Fá VIgDíSI FInnBoga aFTUr Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is 1 3 . f e b r ú a r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r54 L í f i ð ∙ f r É T T a b L a ð i ð Lífið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.