Fréttablaðið - 22.10.2015, Side 8
HONDA CIVIC SPORT
Nýskr. 10.12, ekinn 18 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.970 þús.
Rnr. 143013.
HYUNDAI iX35 COMFORT
Nýskr. 05.14, ekinn 75 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.690 þús.
Rnr. 103186.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
BMW X5 xDrive
Nýskr. 05.12, ekinn 40 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 143095.
HYUNDAI i10 COMFORT
Nýskr. 05.14, ekinn 71 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.590 þús.
Rnr. 120798.
TOYOTA YARIS HYBRID
Nýskr. 04.14, ekinn 13 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.890 þús.
Rnr. 283101.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06.13, ekinn 101 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.990 þús.
Rnr. 283100.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 01.14, ekinn 87 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.570 þús.
Rnr. 191904.
Glæsilegur bíll
9.680 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
LöGreGLUMáL „Það voru brotnar
rúður og gramsað í tuttugu og
einum bíl og við erum auðvitað
fælnir eftir svona,“ segir Krist-
mundur Þórisson, eigandi Almenna
bílaverkstæðisins ehf., en í byrjun
mánaðarins voru brotnar rúður í
tuttugu og einum bíl á sameigin-
legu bílastæði verkstæðisins og fleiri
fyrirtækja í Skeifunni 5.
Fyrst var lögreglu tilkynnt um
að brotnar hefðu verið rúður í
sex bílum á planinu, rótað í þeim
og ýmsu smálegu stolið. Tveimur
dögum síðar endurtók leikurinn sig
nema þá höfðu rúður verið brotnar
í fimmtán bílnum. Í bæði skiptin
voru spellvirkin unnin að næturlagi.
Bílana eiga bæði viðskiptavinir
fyrirtækjanna og starfsmenn.
„Fólk er oft með fullt af dóti í bíl-
unum sínum og í svona tilvikum
er fólk ótryggt nema það sé með
kaskótryggingu eða heimilistrygg-
ingu sem tekur til þessa,“ segir Krist-
mundur og bætir við að hann hafi
áhyggjur af því að sökudólgarnir fari
aftur á kreik.
Magnús Helgi Jónsson, stöðvar-
stjóri Aðalskoðunar hf., var sá sem
tilkynnti lögreglu um fyrra tilvikið.
Hann segir að þeir sem hafi verið
að verki hafi líklegast verið að leita
að peningum. „Því þeir stálu ekki
miklu úr þessum bílum og létu til
dæmis útvarpstækin alveg vera,“
segir Magnús Helgi.
„Eftir því sem ég best veit var
engu stolið úr bílunum frá við-
skiptavinum okkar en þetta eru
hins vegar skemmdir. Eftir atvikið
setjum við alla bíla inn á næt-
urnar,“ segir Atli Vilhjálmsson,
verkstjóri hjá Betri bílum ehf., en
viðskiptavinir þeirra urðu einnig
fyrir tjóni.
Á fundi húsfélagsins í Skeifunni
5 hefur það verið rætt að bæta lýs-
ingu á bílaplaninu og koma fyrir
myndavélum. „Mér finnst líklegt
að við látum verða af því og verður
það til þess að auka fælingarmátt-
inn,“ segir Kristmundur en hann er
formaður húsfélagsins.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
„Við erum því miður bara engu nær
um það hverjir voru að verki,“ segir
Benedikt Lund lögreglufulltrúi. „Því
ver og miður eru þarna einhverjir
einstaklingar sem mér sýnist hafa
þann tilgang einan að eyðileggja.
Það er ekki svo óalgengt.“
nadine@frettabladid.is
Tuttugu og einn bíll
skemmdur í Skeifunni
Lögreglu var tilkynnt um að brotnar hefðu verið sex rúður í bílum á bílaplani í
Skeifunni í byrjun október. Tveimur dögum síðar voru rúður brotnar í fimmtán
bílum til viðbótar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar.
Þjófnaður er óverulegur og skemmdar-
fýsn virðist ráða för. Fréttablaðið/SteFán
Eftir því sem ég best
veit var engu stolið
úr bílunum frá viðskipta-
vinum okkar en þetta eru
hins vegar skemmdir. Eftir
atvikið setjum við alla bíla
inn á næturnar.
Atli Vilhjálmsson,
verkstjóri hjá Betri bílum
Skemmdu bílana eiga bæði viðskiptavinir fyrirtækjanna og starfsmenn. Fréttablaðið/SteFán
heILbrIGðIsMáL Embætti landlækn-
is sér ástæðu til að ítreka afstöðu
sína gegn þeirri breytingu sem lögð
er fram í frumvarpi til laga um sölu
áfengis í almennum verslunum.
Vitnað er til umræðu á Alþingi í því
sambandi.
Landlæknir ítrekar afstöðu sína
í frétt á heimasíðu embættisins
þar sem segir að breytingin feli í
sér að allt áfengi, jafnt bjór, vín og
sterkt áfengi, sé gert aðgengilegt í
almennum verslunum. „Breytingar
til aukins aðgengis, eins og lagt er
til í frumvarpinu, eru til þess falln-
ar að auka heildaráfengisneyslu,
sem leiðir til aukinna skaðlegra
afleiðinga fyrir einstaklinga og
samfélagið í heild,“ segir þar.
L a n d l æ k n i r b e n d i r á a ð
umræddar breytingar stangist
á við opinbera stefnumörkun í
áfengismálum, jafnt hér á landi og
á alþjóðavísu. Nefnd er í því sam-
hengi stefna í áfengis- og vímuvörn-
um til ársins 2020, aðgerðaáætlun
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar gegn lífsstílstengdum sjúk-
dómum 2013–2020, auk þess sem
tiltekið er að breytingin sé á skjön
við heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. – shá
Landlæknir á móti frumvarpi
Frumvarpið er endurflutt á þessu þingi og
fer senn til 2. umræðu. Fréttablaðið/gva
stjórnMáL Áhrifafólk innan Vinstri
grænna hefur að frumkvæði félaga úr
ungliðahreyfingu VG skorað á Daníel
Hauk Arnarsson, starfsmann flokks-
ins, að gefa kost á sér sem varafor-
maður hreyfingarinnar á landsfundi
hennar sem hefst á morgun.
Daníel segist enn ekki hafa gert
upp hug sinn um hvort hann bjóði sig
fram. Enn sem komið er hefur Björn
Valur Gíslason einn gefið kost á sér
sem varaformaður.
Meðal þeirra sem skora á Daníel
Hauk eru Sóley Tómasdóttir, forseti
borgarstjórnar, Auður Lilja Erlings-
dóttir og Drífa Snædal, fyrrverandi
framkvæmdastjórar VG, Hildur Lillien-
dahl Viggósdóttir, starfsmaður Reykja-
víkurborgar, Ingimar Karl Helgason
fjölmiðlamaður og Svavar Knútur
Kristinsson tónlistarmaður. – srs
Vilja Daníel
Hauk á móti
Birni Vali